»  off record  »  Flett ofan af blaðamanni
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Flett ofan af blaðamanni
Laugardagur, 01. nóvember 2003

pres.gifGat ekki sleppt því að láta sjá mig á útgáfuhátíð Sigurðar Pálssonar (þessa með trefilinn) þar sem Hrókur alls fagnaðar, lista- og skemmtideild þessa æðislega fjölhæfa skákfélags sem ég er meðlimur í var með puttana í þessu.

Það er engin spurning að nóvember og desember verða þeir mánuðir sem maður nagar sig mest í handarbökin yfir því að vera hættur að drekka; hvert útgáfuteitið á fætur öðru og alltaf nóg af bjór og böbblí.
Þetta er gósentíð drykkfelldra blaðamanna sem hampa bókum þeirra útgefenda sem eru duglegastir að dæla fríbíum í þá (þetta er sko alvöru játningarannsóknarblaðamennska og ég bíð eftir hrósi frá pakki sem veit ekki rassgat um blaðamennsku, plögg og bókaútgáfu á kommentunum).
Jæja, svo ég haldi áfram að fletta ofan af mér og öðrum þá hitti ég JPV feðgana í banastuði og þeir gerðu umsvifalaust tilboð í æru mína, starfsheiður og þá dálksentimetra sem mér ber að fyllla í hverri viku.
Jóhanni Páli varð að vonum illa brugðið þegar ég sagði honum að ég væri hættur að drekka en hann er fljótur að hugsa og sagðist ætla að fara með mig á Goldfinger í staðinn.

Sigurður, skáld, Pálsson hrósaði, í ávarpi sínu, Jóhanni Páli og Hrafni Jökulssyni (afmælisbarni dagsins) fyrir það að vera svo geggjaðir að þeir hrintu öllum sínum klikkuðu hugdettum í framkvæmd. Ergo: Fyrsta, annað, þriðja Þórarinn Þórarinsson, blaðamaður, er seldur JPV-útgáfu fyrir 5 x 20 mínútna einkadansa.


| 22:49 |
komment

Tóti minn,

Það verður gaman að sjá hvernig þú munt hórast, meira eða minna meðvitað, við að sinna þessu liði í markaðsfærslu þess á eigin hugverkum.

Hvers vegna tókstu þitt afbragðsgóða viðtal við Helga Hós rétt fáum dögum áður en filman kom út?

Ef þú ert svo æðislegur blaðamaður, af hverju talaðir þú ekki við hann í fyrra, áður en hann varð svona frábær að þú fórst og hittir hann og reyndir síðan að kanónísera gæjann þannig að hann virðist stutt í að enda við hliðina á Móður Teresu?

Nr. 1 | Thornsteen | 2.11.2003 | 0:58:36 | [+] |

Heyrði utan af mér í draumi að einhver ynni hörðum höndum að bókinni "Fljúgandi bændur". Kærkomin replacement fyrir okkur sápuunnendurna sem finnst áströlsku læknandir fljúgandi þreyttir.

Nokkrir fjölþættir persónugervingar láta orð falla á baksíðu verksins:

"Fjósið er "Trump Plaza", haughúsið er hvelfingin. Danny Ocean setur landbúnaðinn í perspektív".

"Höfundur dregur lesandann á tálar inn í harmónískan söguþráð græðgi, réttlætis og félagshyggju".

"Ridge og Brooke skipta vel með sér hlutverkinu í sænskrar mjaltarkonu á Óðali feðranna, hvar svo sem það sögusvið er að finna í 109 Reykjavík".

Skál!

tc

Nr. 2 | Tony Clifton | 3.11.2003 | 21:40:51 | [+] |

Tjamm.....

Þú fyrirgefur mér Tóti þó ég sé krítískur. Þetta er ekki illa meint. Langt í frá. Ég ætla þó ekki að fara að hæla þér þó þú getir verið helvíti góður skríbent.

Nr. 3 | Thornsteen | 5.11.2003 | 0:57:41 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff