Föstudagur, 07. nóvember 2003
Fólk hefur gaman að því að tíunda teljaratölur á bloggsíðum sínum og er oft alveg í skýjunum með (hits)teljara.is sem gefur auðvitað kolbrjálaða mynd af raunverulegum gestafjölda.
Hvað um það. Gestagangurinn á BadaBing! veldur mér hvorki hugarangri né gleði en leitarstrengirnir sem draga fólk hingað eru að verða stöðugt skelfilegri.
Hvernig má það til dæmis vera að nafn Tómasar Ragnarssonar, lesblidns fyrrum vinnufélaga af Strikinu, nái 1. sætinu? Erótík er númer 2 sem er eðlilegra og svo dúkkar stebbifr upp í 3ja sæti og á eftir fylgja Ole Lund Kirkegaard og Tóta pönk.
Þau tvö geta talist heilbrigð en að öðru leyti líst mér svona mátulega á áhugamál þeirra sem detta hingað inn í gegnum leitarvélar.
Billi Fréttablaðið er að vísu no. 6. Hann er góður drengur sem hefur drukkið með mér og tekið myndir fyrir mig en þeir sem á eftir koma eru:
7. collin farrel
8. klám
9. about lizard
10. rússneska byltingin
11. stormsker
12. Brakúla Greifi
13. Charlize Theron
14. Elvis Presley
15. Harry Potter
16. Helgi Hós
17. Moulan Rouge
18. Mótmælandi Íslands
19. Nói albínói
20. TV Themes
Það yrði ljóti kleppurinn ef allt þetta hittist undir sama þaki.
Þetta gat hins vegar ekki farið öðruvísi:

You are Form 9, Vampire: The Undying.
Which Mythological Form Are You?
brought to you by Quizilla
| 0:29 |