Sunnudagur, 16. nóvember 2003
Byrjaði hryllingshegina á Texas Chainsaw Massacre endurgerðinni. Gerði mér engar vonir og get því ekki verið annað en sáttur. Áður en myndin byrjaði kom svona disclaimer upp á tjaldið eins og er alltaf á undan myndum á vídeói nema í stað þess að bann væri lagt við fjölfjöldun myndbandsins stóð á tjaldinu að fjölföldun þessarar bíómyndar væri óheimil. Þeir sem hugsanlega væru með upptökuvél í bíóinu mættu því eiga von á allt að 10 ára fangelsi. Gaman að því.
Hélt áfram að reyna að hræða mig með Deathwatch á laugardeginum. Gerði mér miklar vonir og varð að sama skapi fyrir vonbrigðum.
Fór í Laugarásvidéo eftir bíó. Þetta er pottþétt besta leigan í bænum. Gæti eytt a.m.k. viku þarna bara í að skoða hulstrin utan af allri snilldinni sem leynist í hillunum. Gat ekki stillt mig um að leigja upprunalegu Texas Chainsaw Massacre. Hún er öðruvísi, betri og miklu fyndnari en rímeikið og eldist bærilega.
Hlutverk Leatherface reynir svo sem ekki mikið á Gunnar Hansen en það breytir engu um það að hann er án efa frægasti Íslendingurinn í bíóbransanum og þó Harrison Ford og Liam Neeson séu frægari en nóboddíin sem léku í TCM þá á Ingvar Sig. enn nokkuð í land enda engin hætta á að K-19 verði endurgerð eftir 29 ár.
| 23:08 |