Laugardagur, 29. nóvember 2003
Sorry Homer, I´m a coward now. Like all recovering alcoholics.
- Barney Gumble.
Elítistinn Kolla Bergþórs er búin að banna mér að nota bleiku PowerPuff húfuna mína, segir að ég sé eins og barnaníðingur með hana og hefur boðist til að prjóna á mig almennilega húfu. Það er óneitanlega stíll yfir því að spóka sig með húfu gerða af gagnrýnandanum sem dirfðist að gefa bókum 
Eddu útgáfu láðist að bjóða mér í partýið sitt annað árið í röð þannig að ég veit ekki hver barði Tótu pönk en tel eðlilegt að ætla að þar hafi Gummi Steingríms verið á ferð (við báðum hann a.m.k. um að lemja sem flesta þarna), miklu frekar en dr. Ármann.
Annars skilst mér að Gummi hafi aðalega þurft að sannfæra fólk í þessu giggi um að við á Helgarblöðunum værum ekki rakin illmenni sem skrifuðum ekki stakt orð án þess að annarlegar hvatir lægju að baki. Þeir sem eru uppteknastir af sjálfum sér ganga víst svo langt að halda því fram að við séum með viðkomandi á heilanum. Magnað! Svo drögum við líka taum JPV, þannig að ég skil ekkert hvað við vorum að birta opnuviðtal við Arnald, síðuviðtal við Rut, Einar Kárason , David Attenborough og fleiri.
JPV sá þrátt fyrir þessi axarsköft sóma sinn í að bjóða mér í partýið sitt á föstudaginn og ég nennti að fara þó ég sé hættur að drekka. Hrafn gengur alltaf að mér vísum í þessum partýum og öfugt þannig að ég plottaði mest með honum en tók samt við fyrirmælum mínum um hvernig bókaumfjöllun næstu viku skuli háttað. Sá engan sem mig langaði að berja. Hlýtur að vera batinn.
| 23:03 |