»  off record  »  Maðurinn sem drap þjónustuna
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Maðurinn sem drap þjónustuna
Föstudagur, 14. nóvember 2003

Óli er farinn að láta í sér heyra á kommenntunum. Það er geggjað enda maðurinn andskotanum gleggri, dómharðari og skemmtilegri. Ég gæti bloggað nokkur gígabæt um árin sem við eyddum saman í tilgangsleysi bensínafgreiðslunnar en þar sagði Óli hinum ógeðfelldu systrum Markaðssetningu og Þjónustu stríð á hendur og myrti þá síðarnefndu á eftirminnilegan hátt með 20" skrúfjárni eftir að hafa náð henni á hlaupum. Smáborgarar, Lottósjúklingar, leigubílstjórar og önnur fífl fengu líka ósapart að kenna á beittu háði hans.

Skrílinn slapp að vísu við skrúfjárnið og þjónustan er ódrepandi blóðsuga sem reis upp strax aftur. Halli gamli sem var á (vondu)vaktinni (fengum sko út úr því að neita að geyma ávísanir og skrifa hjá Kópavogsskrílnum) með okkur sagði að þetta hefði allt verið miklu betra í gamla daga þegar þjónustan var bara í kirkjum og hóruhúsum.
Annars hljóta viðskiptavinir á bensínstöðvum að hafa snarbatnað í skapinu eftir að þetta Internet kom til sögunnar þar sem nú fá öll heimsins fífl útrás fyrir komplexana, heimskuna og gremjuna á spjallþráðum. Nú er einn ein þjóðarsálarsíðan komin upp. Grímulaust Málefna rip off sem heitir Alvaran.com (jú gara bí kiddíng). Þetta er gott og blessað fyrir viðkomandi en haldi kleppararnir áfram að skipta sér svona endar þetta með því að hver verður með sitt eigið eintal á eigin vef. Bensínkallarnir fyrir Norðan hljóta þó að anda rólega þar sem Stebbifr. is back and he´s angry og fúlasta alvara.

King Kong á Skonrokk klukkan 09.00 á laugardaginn. Fannst bara rétt að minna á comebakkið hjá félaga Jakobi og Steini Ármanni. Það þóttu víst stórtíðindi í dag þegar DV kom út á ný og Jón Ólafsson skrapp til Íslands að selja Norðurljósin og Garðabæ. Ekki eru það minni tíðindi úr fjölmiðlaheiminum að King Kong skuli upp risinn.


| 23:14 |
komment

Sexappílið í nafninu "Alvaran" er bæði ögrandi og solid.

Nr. 1 | Tony Clifton | 15.11.2003 | 7:13:24 | [+] |

Grow up Þórarinn

Nr. 2 | Vefarinn | 17.11.2003 | 2:15:22 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff