»  off record  »  Með snert af karlmennsku
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Með snert af karlmennsku
Miðvikudagur, 26. nóvember 2003

puffblossuminaction.gifYou kill Rock and you rape Roll. Keith Richards is rolling over in his grave and the friggin guy ain´t even dead yet!
- Ford Fairlane

Ég setti nagladekkin undir Ljónið á veginum með berum höndum alveg sjálfur í fyrradag. Fékk rosalegt kikk út úr því að finna svitadropana leka af enninu ofan í augu, að ég tali nú ekki um nautnina sem fylgdi því að þurrka olíborna drulluna af svörtum fingrunum í gamla tvistdruslu og strjúka svo framan úr mér með tætlunum. Fann bensíntittinn í mér aftur og brunaði beint á næstu Essó stöð þegar ég var búinn að fullherða alla boltana.

Mældi olíuna og frostþolið og bætti frostvara á rúðupissið. Það heitir nefnilega frostvari þetta sem fer á pissið, frostlögur sem fer á vatnskassann og ísvari sem fer í bensínið en það er tómt rugl að nota svoleiðis. Fer illa með blöndunginn til lengdar. Langbest að vera alltaf með tankinn fullan, þá hélar hann nefnilega ekki að innan sjáiði til.
Húah! I´ve still got it.
Er enn svartur undir nöglunum en mesta matsjóið lak af mér morguninn eftir þegar ég setti upp bleiku Power Puff Girl húfuna mína og þrammaði út í strætóskýli. Það er voða mikið hlegið af húfunni minni en hvað get ég sagt? Ich bin ein Feminist!
Talandi um femínista þá er Tóta pönk upprisinn og hefur þess vegna brotið utan af sér svigana hérna. Verst samt að kommentin eru horfin þar sem lesendur hennar voru upp til hópa ekki fífl. Ekkert mál að dílíta hinum perrunum jafnóðum. Þá sakna ég líka reiðu færslunnar um Fréttablaðssamsærið. Það er ábyrgðarhlutur að pósta eldfimar færslur sem starta hressum deböttum og láta þær svo hverfa. Enga bakþanka á blogginu.
En talandi um töffara. Djöfull er Laugurinn sjálfur vígalegur á forsíðu Undirtóna, umkringdur hinum rokkhundunum í Brain Police og með fáklæddar eðalgellur í forgrunni. Laugurinn er snillingur, by the way.
Sverrir Hermannsson er líka töffari af guðs náð. Hálf þunnur þrettándi samt Skuldaskilabókin og engar stórar bombur að springa (góða stöffið virðist háð bankaleynd) en kjafturinn á kallinum er alveg eðal. Mér sýnist hann að vísu ekki vera að ná sama flugi og hann gerði í öllum snilldarmoggagreinunum sem hann dældi (J´ai accuse!) út þegar hann var sem reiðastur en það er samt ekki annað hægt en að taka undir með stríðsöskrum þegar hann hjólar í Framsóknarflokkinn. Hatur Sverris á fyrirbærinu er svo einlægt og ekta að maður kemst ekki hjá því að heillast með.
Einhvern tíma hafði Framsókn tilgang en nú snýst öll hans tilvera um að vera frekasti njálgurinn sem borast að kjötkötlunum.


| 23:59 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff