»  off record  »  Mitt rómantíska æði...
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Mitt rómantíska æði...
Miðvikudagur, 05. nóvember 2003

... eða Tóti flaug yfir Gaukshreiðrið

jack.gifMér leiðist og er að spá í að hætta þessu þvaðri og leita mér að einhverju frelsisstríði sem ég get skellt mér í, tekið hitasótt og drepist.
Sá mér til mikillar hrellingar í DV að Engihjallaskríllinn er að eipa á eina kúnnanum sem ég þoldi til lengdar á Stórahjalla. Hann er að vísu tótal lúní en hver er það ekki?

Ég var að vísu búinn að afgreiða hann í mörg ár án þess að átta mig á því að hann væri nuts. Sá hann fyrir mér sem grafalvarlegan jarðfræðikennara í einhverjum menntaskóla en það breyttist aðeins þegar hann kom hlaupandi eitt kvöldið, í svitakófi, inn á stöðina og faldi sig bak við afgreiðsluborðið með 200 geimverur á mótorhjólum, með loftnet upp úr hausnum, á hælunum. Þegar hann reyndi síðan að nappa litlu systur í fatapóker og drap í sígarettu á tungunni fóru að renna á mann tvær grímur, en eftir að hann hótaði að sprengja bensínstöðina "eins og Rambó gerði" snarhækkaði hann í áliti hjá mér og varð kúnni #1.
Ekki spiltu síðar flóttasögurnar af geðdeild fyrir en nú eru smáborgararnir búnir að fá nóg. Sauðmeinlaus (eða þannig sko) kallinn nema honum hafi hrakað á þeim árum sem ég hef verið fjarverandi. Verst bara að hann er haldinn þeim leiðinlega ávana geðsjúklinga að hætta að taka lyfin sín þegar allt gengur vel.

Dóttir mín tilkynnti mér það að hún hefði byrjað í "kynþokkafræðslu" í skólanum í dag. Þegar betur var að gáð reyndist þetta ekki alls kostar rétt og fræðslan snýst um hitt kynið, bindi, tappa, foreldra og tilfinningar. Ætli það sé samt langt í að kynþokkafræðsla verði skyldufag í grunnskólum?

Embargoinu hefur verið aflétt af The Matrix Revolutions og lokatölur eru komnar. Hún er að fá blendnar viðtökur í London og almennt slaka dóma erlendis. Ég gef henni færri stjörnur en síðustu mynd þó sú sé að mörgu leyti leiðinlegri. Þessi þriðja líður væntnalega ekki síst fyrir það, hjá mér og öðrum, að nú er allur pakkinn gerður upp. Þrjár stjörnur með extreme jákvæðni.
Mystic River í gær og þar er sko gott bíó á ferðinni. Eastwood er greinilega að finna taktinn aftur og Sean Penn toppar sjálfan sig í túlkun á multi layered karakter. Þegar hann er kominn í leðurfrakkann, með hanskana og Jack Daniels pelann toppar hann enginn. Ekki einu sinni Mickey Rourke á meðan hann var eitthvað.


| 21:49 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff