»  off record  »  Skák og diss
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Skák og diss
Þriðjudagur, 11. nóvember 2003

Egill Helgason stýrði setningarathöfn KB-einvígis Friðriks Ólafssonar og Larsens með stæl og Björn Bjarnason var brattur í sínu ávarpi (ekki ónýtt að fá úrskurð frá dómsmálaráðherra þess efnis að Hrókurinn sé hinn raunverulegi Íslandsmeistari í skák).
Við Jakob mættum að sjálfsögðu enda Hrafn að verða eini vinur manns í þessum brjálaða heimi. Ég kann mannganginn (held ég) og það nægði til að hafa gaman að þessu.

Helvíti fór Páll Baldvin illa með bókina hans Gumma á Stöð 2 í gær. Ég las hana nú í próförk og fannst nú bara alveg sjálfsagt að bókin yrði prentuð og sett á markað. Þá fékk Gummi einnig seal of approval frá bókmenntaátorítetinu Kollu Bergórs. Það er nú ekki ónýtt og reiðilestur Páls kom því á óvart og var full brútal. Hann vakti hins vegar athygli og ég hvet fólk endilega til að lesa bókina og komast þannig sjálft að kjarna málsins. Já, Páll Baldvin fann táfýlu af bókinni en ég get huggað Gumma með því að sumar af mínum uppáhaldsbókum anga af viðbjóðslegri fúkkalykt. Nægir bara að nefna eldri ljóðabækur Ísaks Harðarsonar sem ég hef keypt á niðursettu verði en þær virðast hafa fengið að liggja í einhverjum myglukjallara árum saman. Góðar bækur, samt.

Óli, snillingur og fyrrum félagi minn úr bensínstríðinu, hringdi í dag meðal annars til að tala um SprinkleNetwork fréttina hans RT. Óla bauðst að taka þátt í þessu. Söluræðan var eitthvað á þessa leið: "Ég er hér með 10 milljónir handa þér. Það eina sem þú þarft að gera er að leggja fram 300 000." Óli tók boðinu á staðnum: "Ókey, láttu mig fá þessar 10 milljónir. Dragðu bara 300 þúsund kallinn frá fyrst." Það þarf auðvitað ekki að fjölyrða um það að dílinn var off med det samme.


| 22:45 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff