»  off record  »  Söltuð vegamynd
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Söltuð vegamynd
Miðvikudagur, 19. nóvember 2003

Það var stappað á frumsýningunni á Salt. Fjöldi útsendra boðsmiða hefur líklega miðast við Háskólabíó en myndin var hins vegar sýnd í Regnboganum. Þetta er auðvitað ekkert einsdæmi og ég lét mig til dæmis hafa það að sitja í tröppunum á Lalla Johns á sínum tíma en það var allt í lagi enda Andrea Gylfa í banastuði í næstu tröppu fyrir ofan.

Leikstjórinn Bradley Rust Gray kom alveg af fjöllum þegar ég færði honum kveðju frá Eli Roth en það er önnur saga. Nennti ekki í frumsýningarpartíið í boði sendiráðs Bandóðríkjanna á Borginni enda gulrótin eina sem dregur mann á þannig samkomur forboðin. Ég geri ráð fyrir að tapa ekki undir 200 þúsund krónum í fríum drykkjum í nóvember og desember. Djöfuls óheppni að vera alki.


| 23:39 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff