Til varnar Kristjáni...
Þriðjudagur, 25. nóvember 2003
Friðrik Erlingsson, krefjandi, drullar yfir Kristján Kristjánsson í Kastljósinu í The Sunday Times þeirra á Mogganum. Reiðilestur Friðriks er innblásinn af viðtali sem Kristján tók við dýravininn David Attenborough og Friðrik er harður á því að Kristján sé handónýtur spyrill þar sem hann hafi ekki komist lönd né strönd með breska sjéntílmanninn.
Friðrik hefur sjálfsagt aldrei þurft að tala sjálfur við Attenborough og telur manninn líklega vera jafn leiftrandi skemmtilegan og hressan og hann er í dýralífsþáttunum sínum. Það virðist að vísu bara vera blekking eins og svo margt annað á skjánum. Sjálfur held ég að ég hafi ekki rætt við erfiðari viðmælanda en Attenborough og hef ég þó dílað við þá nokkra. Attenborough var stuttur í spuna og svaraði með eins atkvæðisorðum og þau þurfti að toga upp úr honum með töngum. Kannski er hann ekki old fart og er æðislegur í svörtustu Afríku en á Íslandi var hann álíka skemmtilegur og Seinfeld og Robbie Williams.
Ég var búinn að kreista 60 dálksentimetra út úr honum áður en hann mætti í Kastljósið og ég dauðvorkenndi Kristjáni að vera með hann í sjónvarpi og fannst hann standa sig eins og hetja.
Bandaríski kvikmyndaleikstjórinn Eli Roth er hins vegar með kjöftugustu og skemmtilegustu mönnum sem ég hef talað við og ég þurfti að þagga niður í honum, frekar en hitt. Ég er búinn að sitja fyrir Eli alveg frá því ég skrifaði fyrst um húðsjúkdóminn sem hann fékk á Selfossi og varð kveikjan að tryllinum Cabin Fever. Náði svo loksins í skottið á honum með hjálp Ísa hjá Kvikmyndasamsteypunni.
Eli talaði svo mikið að mér var gert að stytta hann, nánast um helming, svo hann kæmist fyrir í Fréttablaðinu. Mesti bíó nördisminn fékk því skiljanlega að fjúka en áhugasamir geta lesið viðtalið í heild hér.
Leoncie sendi mér póst í gær en hún er síður en svo sátt við það hvernig Gísli Marteinn klippti spjall þeirra fyrir útsendingu. Leoncie er mikið niðri fyrir, eins og venjulega, og sakar Gísla Martein um ritskoðun og tilraun til að blekkja skattgreiðendur landsins.
Sjálfur skil ég ekki allt bréfið en það er svohljóðandi:
Sæll Gísli
Ég vil gjarnan vita, af hverju ég var ritskóðað á laugardagskvöld með Gisla Marteinni ???
Er þetta kallað Lyðveldisríki Gísli? Þú spurði mig hvað skeiði við menntamálaráðuneytið?
Ég svaraði : "Einhverju sagði við mig að senda bréf til Menntamáláráðuneytisins, og svarið sem ég fékk frá þeim var: "Þú færð engann styrk,enga peninga að skyggja á poppara okkar." Hjálmar Hjálmarsson sagði.......Björk og Sigurrós. "Og ég sagði svona er það með Menntamálaráðuneytið"
Hvers vegna var svo nauðsynlegt að ritskóða þetta, sérstaklega þetta??? You think you'll can fool the tax-payers in this country forever?? Þú lífir í fortiðinni Gísli, meðan ég er að lífa í Nútið og framtið. Þetta skot um DV.
Með von um skjótt svar............ Icy Spicy Leoncie.
| 11:42 |