»  off record  »  Tími til að deyja
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Tími til að deyja
Sunnudagur, 30. nóvember 2003

grim2.gifÉg hef hingað til verið laus við alla aldurskomplexa og fílaði það til dæmis alveg í botn að verða 30 ára og man að Hrafn óskaði mér þá sérstaklega til hamingju með að hafa lagt þennan óhjákvæmilega áratug sjálfsvorkunnar og aumingjaskapar að baki.

Það var búið að hóta mér skalla upp úr fermingu þar sem afi var orðinn sköllóttur 21 árs en ég er enn með helling af hári þó kollvikin fari hækkandi og þar sem amma var lengi vel minn besti og skemmtilegasti drykkjufélagi get ég ekki séð að ellin sé alslæm en ef Rás2 er orðin tvítug þá hlýt ég að vera orðinn helvíti gamall.
Fann feigðina fyrst læðst að mér um daginn þegar ég sá Blondie myndband á einhverri poppstöðinni en þar kom fram að lagið væri rúmlega 20 ára. Man það eins og gerst hafi í gær þegar það var vinsælt og þegar Gísli Marteinn hætti sér í beina útsendingu í gær til að fagna afmæli Rásar2 ákvað ég að það væri tímabært að fara að borga aftur af líftryggingunni.
það eina ánægjulega við þessa veislu var að Brain Police spilaði og Gulli var svalur. Hann er greinilega kominn í elítuna þar sem hann fær að spila hjá Gísla Marteini með Stuðmönnum, Sálinni og Bubba. Það er hins vegar stór spurning hvort það sé mjög rokkað að vera í sama prógrammi og lúin gamalmenni sem sökka en Brain Police rokkar anyway.


| 13:05 |
komment

já, hvað er þetta með þessi ÖSKUR í honum gísla marteini ?

er hann eini maðurinn á landinu sem fattar ekki hvað þetta er ömurlegt hjá honum ? svo getur hann ekki haldið uppi samræðum... kann ekki að hlusta, nema þá kannski bara á sjálfan sig.

þegar ég var að byrja hjá útvarpinu var manni "sagt svo vel til" af eldri og reyndari starfsmönnum að jaðraði við einelti... og maður lærði sko hratt og vel hvernig átti að gera hlutina RÉTT.

nei, þeir eru eitthvað að klikka á sjálfskrítikinni þarna inni á sjónvarpi...

Nr. 1 | Lana | 30.11.2003 | 23:27:33 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff