off record desember 2003
a long time ago...
|
 |
Áramótablús - Taka 3
Miðvikudagur, 31. desember 2003
Enn ein andskotans áramótin. Ég spái, af gamalli venju, vondu ári en óska engu að síður öllu fólki sem ekki er fífl, nær og fjær, farsældar á þessu skítaári 2004. Alltaf eru þessi áramót eins - nema auðvitað að ég þarf að fara edrú inn í nýtt ár í fyrsta sinn í 12 ár. Gangi mér vel.
Hafði lofað einhverri últragremjufærslu í dag en get ekki staðið við það. Það bíður nýja ársins. Tók mig nefnilega til í dag, sem ritstjóri Hrókurinn.is, og ruslaði upp áramótaannál þessa magnaða skákfélags. Hann er að vonum langur enda afrek ársins mörg. Þegar ég fór í gegnum þetta komst ég ekki hjá því að efast í augnablik um geðheilsu míns góða vinar Hrafns Jökulssonar en framkvæmdagleði hans á árinu nálgast sjúkleikamörk.
Krummi varð í öðru sæti í vali Rásar 2 á manni ársins og er vel að því kominn en Ómar Ragnarsson, góðvinur Hróksins, varð númer 1. Sætti mig við það.
Stóra Hannesarmálið er að verða helvíti þreytt en það er þó óhjákvæmilegt að tékka á grein Jakobs F. Ásgeirssonar um það frábæra fólk sem skipaði nefndina sem tilnefndi Halldór til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Greinin er ekki síst skemmtileg og söguleg í ljósi þess að hún er birt áður en tilvitnanamálið skall á af fullum þunga. Ingó er búinn að grafa textann upp og birtir á síðunni sinni. Gó sí.
Umtalsverðar breytingar standa fyrir dyrum á BadaBing! á nýja árinu um leið og samningar nást við Önnu.is en í millitíðinni hef ég gert minniháttar tilfærslur sjálfur með því að setja hópblogg fyllibyttugengisins hans Billa (fyrrum hirðljósmyndara BadaBing) í skjallbandalagið þar sem það brýtur odd af oflæti sínu og linkar hingað. Hendi þeim samt út fljótlega ef ljósmyndarinn sem aldrei notar Y fer ekki að láta meira til sín taka.
Þar sem ég reyni að hafa þann góða sið í hávegum að tengja á þá sem tengja á mig skellti ég Beturokk líka í skjallbandalagið, þó ég þekki hana ekki neitt. Í þessu felst ákveðin fyrirgefning á því að hún hafi haldið mig einhvern Hörð og talið mig eiga von á barni. Ég frábið mér vitaskuld allt slíkt og mun ekki bæta frekar við úrsérgengið mannkynið. Þessi misskilningur sýnir þó svo ekki verður um villst að ég þarf að fá mér betri PR mann. Hélt að allir vissu að ég væri málaliði í þjónustu Baugs á Fréttablaðinu. Hef meira að segja sem slíkur talað fjórum sinnum við Betu; einu sinni spurði ég hana hvaða bók hún væri að lesa, einu sinni vantaði mig inside information úr bókmenntafræðinni og tvisvar neitaði hún mér um þátttöku í bloggfítjörum.
Jamms, þessi áramót eru alltaf eins og þar sem ég nenni ekki að fara yfir þetta leiðinda ár eða ávarpa mannskapinn að hætti DO og ÓRG endurbirti ég gamla pistilinn Áramótablús þriðja árið í röð. Sleppi að vísu því sem greinilega á ekki við núna.
Áramótablús einu sinni, einu sinni enn.....
Tímamót eru einhver sú ömurlegasta uppfinning sem sögur fara af og virðast hafa þann tilgang einan að afmarka þjáningar og leiðindi á lífsleiðinni og auðvelda lánadrottnum að halda utan um skuldir vorar, reikna vexti ofan á þær og innheimta eftirstöðvar fortíðarsukks, sem væri auðvitað bara nútíðarsukk ef það þyrfti ekki alltaf að vera að rjúfa þá sögulegu samfellu sem fábreytileg tilveran er, með endalausum mótum mánuða og ára.
Árið skiptist í 52 vikur og innan þess eru vikumótin einna meinlausust og einkennast aðallega af landlægri sunnudagsþynnku og angistinni sem fylgir því að byrja nýja vinnuviku á mánudögum. Mánaðarmótin eru öllu verri en þá skiptast á augnabliki á skin og skúr í lífinu; launin detta inn á bankareikninginn og út aftur augnabliki síðar, þegar þjónustufulltrúinn gerir manni þann greiða að dreifa uppskeru þrældómsins jafnt á miskunnarlausa lánadrottnana, sem eru jafn misjafnir og þeir eru margir en lausleg könnun mín bendir þó til þess að það sé þægilegast að skulda Glitni og verst af öllu að lenda í vanskilum hjá LÍN. Glitnir þykist nefnilega vera vinur manns og gefur alltaf gálgafrest á meðan LÍN fer ekkert í grafgötur með það að hann hatar mann og vill refsa manni endalaust fyrir að hafa að vera að slæpast í námi.
Mánaðarmótin eru þó hátíð samanborið við bölvuð áramótin, en þá rennur upp einhver svona skelfileg "stund sannleikans" þar sem farið er yfir hörmungar ársins; fjölmiðlarnir rifja upp sameiginlegar martraðir okkar á meðan banka- og lánastofnanir troðfylla póstkassana af yfirlitum yfir einkahrylling liðins árs, þannig að maður getur meira að segja gerst völva og spáð fyrir um hversu morkið sultarlífið verði í afborgunarhelvítinu næstu árin. Blindfullur og aðframkominn af þunglyndi, angist og sorg gónir svo hinn íslenski meðljón ofan í vodkablönduna sína á gamlárskvöld og ákveður að bæta ráð sitt með rausið í Markúsi Erni í bakgrunninum; hætta að reykja, drekka minna, klippa kreditkortið, skokka a.m.k. þrisvar á árinu, drekka meira vatn og hvað eina annað sem getur lyft tilverunni á æðra plan.
Farinn á Ægissíðubrennuna eins og allir fínir Vesturbæingar.
Fram til sigurs!
|
|
 |
 |
Strengjabrúður
Þriðjudagur, 30. desember 2003
Ég, Jakob Bjarnar Grétarsson, Kolbrún Bergþórsdóttir, Guðmundur Steingrímsson, Þröstur Emilsson, Hafliði Helgason, Reynir Traustason, Birgir Örn Steinarsson, Svanborg Sigmarsdóttir, Þóra Karítas Árnadóttir, Brynjólfur Þór Guðmundsson, Þórlindur Kjartansson, Trausti Hafliðason, Illugi Jökulsson, Mikael Torfason, Eiríkur Jónsson, Kristinn Hrafnsson, Kristján Guy Burgess og síðast en alls ekki síst Bergljót Davíðsdóttir og böns af fleira öndvegisfólki til viðbótar erum viljalaus verkfæri (bloody likely) sem lútum öll vilja Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og skrifum ekki stafkrók í Fréttablaðið og DV án þess að Baugsforinginn gefi okkur heimild til þess eða beinlínis segi okkur að gera það. Það er í raun mesta furða að hann skuli finna sér tíma til að ritstýra okkur öllum á milli þess sem hann fjárfestir fyrir milljarða heima og erlendis og ber fé á forsætisráðherra.
Kannski er ástæðan sú að þetta er helvítis kjaftæði og Ásta Möller viti bara ekkert hvað hún er að segja þegar hún tjáir sig um eignarhald á fjölmiðlum og áhrif eigenda á þá.
Ég er búinn að fá að heyra þessa strengjabrúðukenningu svona 5-10 sinnum á dag síðustu mánuði og lesa hana í ýmsum versjónum enn oftar á spjallþráðum á Netinu, þar sem saman eru komnir bjánar sem vita enn minna um blaðamennsku en Ásta Möller en láta það ekki koma í veg fyrir innantóman fávitabelging, besserwissku og samsæriskenningar sem myndu fá Fox Mulder til að skjóta sig i hausinn.
Þetta er auðvitað ekki svaravert en þessi taktík; að þrástagast á einhverju innihaldslausu rugli þangað til það verður að heilögum sannleika hefur oft skilað sjálfstæðismönnum góðum árangri. Þetta virðist líka vera að virka núna og strengjabrúðukenning þeirra sem eru sjálfir miklu líklegri til að ganga erinda eigenda sinna, flokksformanna og yfirboðara, en einhverjar blaðamannstuskur úti í bæ eru að festa sig í sessi sem heilagur sannleikur.
Margur heldur mig sig, eða er það ekki alveg á tæru að RÚV er sá fjölmiðill sem mest fær að finna fyrir beinum afskiptum fulltrúa eigenda sinna?
Félagi Jakob hætti sér út á þann hála ís að hefja umræðu um þetta á Press.is en lenti strax í deilu um keisarans skegg, skapahár vondu drottningarinnar og einhver vindstig í vatnsglasi. Það er kannski ekki skrítið enda er grunnur þessara umræðu tóm kúamykja og því varla hægt annað en að missa hana út í þvælu. Þetta er samt orðið svo þreytandi að Jakob á hrós skilið fyrir að taka fyrstu skóflustunguna í flórinn. Friðrik Þór Guðmundsson kemst helvíti nálægt kjarna málsins í innleggi sínu þarna en þar segir hann meðal annars innan gæsalappa (feitletur mitt):
"Í umræðu hér um þann þátt sagði ég efnislega að Sjálfstæðismenn (á borð við Ástu) hefðu síður áhyggjur af fáokun á fjölmiðlamarkaði en hinu að þessi fáokun væri á röngum höndum. Og ég tók undir með Steingrími, sem sagði í þeim þætti, að drifkraftur umræðunnar væri hatrið. Einkum hatur Davíðs á Jóni Ólafssyni og Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, en einnig á hinn veginn að því er virðist.
Málflutningur Ástu Möller í bæði Silfri Egils og í Kastljósi er að megninu til einfaldlega tóm þvæla. Og gróf árás á stétt fjölmiðlamanna, sem hún er ekki ein sek um. Ég hef áður á þessum vettvangi hvatt stjórn BÍ og/eða félagsmenn til að fjalla um þessar árásir á orðstí félagsmanna."
Vaskleg framganga Jakobs fölnar þó í samanburði við dirfsku Hafliða sem hætti sér út á Málverjaforaðið en sjálfsfróun með ostarifjárni er skemmtilegri og geðslegri dægradvöl en að eiga orðastað við þau erkifífl sem þar ríða húsum:
"Þessi paranoia gagnvart okkur sem skrifum í þetta blað er að verða óþolandi. Við erum engar strengjabrúður í höndum eins eða neins. Okkur eru mislagaðar hendur eins og flestum öðrum. Við þurfum að vinna mjög hratt og við eigum misjafna daga í starfi okkar eins og aðrir. Það er leiðinlegt að sitja undir þeirri umræðu að við séum óheiðarlegt fólk."
Hafliði segir allt sem segja þarf þarna og svo merkilega vill til að örvitarnir taka skyndilega sönsum og bakka aðeins með helvítis bullið.
Dómsmálaráðherrann vaski, Björn Bjarnason, er í hópi þeirra sem kaupa strengjabrúðukennininguna og hafði til að mynda þetta að segja um fullkomlega eðlilegt val á viðmælendum í Sunnudagsblað Fréttablaðsins á dögunum:
"Baugstíðindi, Fréttablaðið og DV, héldu áfram stríði sínu við Davíð í vikunni einkum á grundvelli eftirlaunamálsins. Þau fengu nýjan efnivið, þegar Jón Ólafsson ákvað með aðstoð Ragnars Aðalsteinssonar og Sigríðar Rutar Júlíusdóttur lögmanna að höfða meiðyrðamál á hendur Davíð. Sunnudaginn 21. desember birtir Fréttablaðið forsíðuviðtal við Ragnar um óttann (líklega við valdamenn) í þjóðfélaginu og opnuviðtal við þau Ragnar og Sigríði Rut, greinilega í því skyni að sýna lesendum, hvílík hetjudáð það sé hjá Jóni að draga Davíð á þennan hátt fyrir dómstólana."
Í ljósi þessa er mér fyrirmunað að skilja erinda hverra við gengum þegar við birtum opnuviðtal við Björn sjálfan á sama stað og Ragnar í blaðinu fyrir einhverjum vikum síðan? Það dettur varla nokkrum manni í hug að Björn Bjarnason hafi verið í viðtali þarna að undirlagi Jóns Ásgeirs? En hvers þá? Ekki tóku strengjabrúðurnar upp á því hjá sjálfum sér að ákveða að lesendum gæti þótt áhugavert að heyra hljóðið í Birni og svo Guðna Ágústssyni nokkru síðar?
Grundvallarfeillinn í þessum spekúlasjónum er svo auðvitað sú reginfirra að blanda saman persónulegum skoðunum blaðamanna og viðhorfum viðmælenda þeirra þannig að það að eiga viðtal við einhvern feli í sér einhverja sérstaka viðurkenningu á viðkomandi. Það sé þá einhver gæðastimpill eða ígildi fálkaorðu fyrir réttar skoðanir að fá birt við sig viðtal.
Þetta er kannski Moggamentalítet en ég þekki þetta ekki og ég á mig sjálfur.
(Hannesaði fyrirsögninni frá ritsnillingnum Jóni Óttari Ragnarssyni sem gaf einu sinni út tímamótaskáldsögu með þessu nafni. Þessi næst síðasta færsla þessa annars ömurlega árs, númer hvað sem það svo er, er vintage Tóti, full af alkóhólískri gremju, paranoju og þvermóðsku. .)
|
|
 |
 |
Hefðin og hæfileiki Hannesar
Mánudagur, 29. desember 2003
Tóti Leifs var eitthvað að hnýta í mig um daginn fyrir að vera jafn bitlaus og kerling með falskar í Smáa letrinu. Sjálfsagt er eitthvað til í því hjá honum þar sem ég er alltaf að ná betri tökum á skrifum sem stuða engan og var þar fyrir utan að komast að því að pistlarnir hafa hingað til verið allt of langir hjá mér og hafa því eitthvað rýrnað áður en þeir komust á prent. Hafði bara ekki hugmynd um þetta þar sem ég les aldrei það sem ég skrifa.
Anyway, Smáa letur sunnudagsins komst víst í einhvern fréttatíma í gærkvöld (birti hér extended night version - fyrir styttingu) þannig að ég er sennilega orðinn fótgönguliði í aðför gramra kreddukomma og vinstramenningarpakks að Hannesi Hólmsteini. Það finnst mér leitt vegna þess að ég hef gaman að Hannesi. Það breytir því svo aftur ekki að hann verður ganga sama gæsalappagang og aðrir.
Frami minn innan Sjálfstæðisflokksins verður þó varla mikill úr þessu en aðrir fjölmiðlar virðast aldrei sjá ástæðu til þess að vitna í skrif mín nema þegar ég hnýti í vini Davíðs, samanber Hrafn Þumal og svo nú Hannes.
Hannes ætlar að svara fyrir sig síðar og það verður bara að hafa það en ég vil fá að heyra eitthvað strax frá þessari nefnd sem tilnefndi bókina til Bókmenntaverðlaunanna. Nenni samt ekki að vera að fjasa um það enda Múrarinn Sverrir Jakobsson búinn að analísa þann vinkil ágætlega.
|
|
 |
 |
Nördar og Nam
Sunnudagur, 28. desember 2003
Hvað er þetta með nörda og Víetnam myndir? Hulli er Apocalypse Now! og ég er Platoon. Oliver Stone er geðveikari en Coppola og Coppola er ofmetnari en Stone. Finnst ég samt vera að fá the short end of the stick.
|
|
 |
 |
Jólaperrar
Laugardagur, 27. desember 2003
Fór niður í geymslu í gær og ætlaði að finna stutta ritgerð sem ég skrifaði fyrir c.a. 20 árum um Íslensku jólaperrana. Fann bara bókmenntafræðiglósur þannig að þessi snilld er væntanlega glötuð að eilífu.
Byggði hana á spjalli við gamlan og víðlesinn mann sem sagði mér frá því, fyrir lifandis löngu, að jólasveinarnir hefðu ekki bara verið hrekkjusvín og óbermi. Það væri sögufölsun. Þetta voru nefnilega fyrst og fremst allt perrar og kynglæponar.
Rökin? "Skoðaðu nöfnin á þeim drengur!"
Stekkjastaur: "stinnur eins og tré", "laumaðist í fjárhúsin og lék á bóndans fé"!!! "Hann vildi sjúga ærnar" Say no more!
Giljagaur: "Heldurðu kannski að hann hafi verið einhver gaur sem kom niður úr giljum. Gilja, kom on!"
Stúfur: "Stóð ekki úr hnefa. Ekki orð um hann meir."
Gluggagægir: Peeping tom?
Gáttþefur: "Hann þefaði sko af allt öðrum gáttum en þú heldur!" (Hef alltaf verið hrifnastur af þessum.)
Ketkrókur: "Hann heitir á ensku Meat snatcher. Gæti alveg eins verið Rassaklípir."
Hurðaskellir : "Helvítis læti í honum alltaf enda alveg að drepast úr brundillsku."
Þvörusleikir og Bjúgnakrækir sluppu ekki heldur en tengingarnar voru orðnar svo klúrar að ég held ég reyni ekki að rekja þær eftir minni.
I rest my case.
Djöfull er þessi vinna mín mikil fíkn eða ég mikill fíkill. Fjórði frídagurinn í dag og ég var við það að sturlast. Gafst upp klukkan 16 og fór upp á blað, kveikti á tölvunni og skrifaði einn pistil. Leið strax betur.
Jamms. Mér leiðast jólin. Jólabókaflóðið var svo fátæklegt í ár að ég var búinn að lesa allt sem ég tel þess virði en fattaði mér til mikillar sáluhjálpar á jóladag að ég átti þriðju Artemis Fowl bókina eftir. Festist strax enda tók helvítis höfundurinn upp á því að kála uppáhaldinu mínu, lífverðinum Butler, strax á fyrstu síðunum. Ekki frá því að þetta sé besta Artemis bókin so far.
Kolla Bergþórs veit kvenna best hversu þetta var dapurt í ár og gaf mér Violets Are Blue eftir Patterson í kilju. Mér finnst Patterson ekkert sérstaklega góður en er samt að stytta mér stundir með því að lesa um bræður sem ólust upp í kommúnu og stunduðu kynlíf jafnt með foreldrum sínum og örðum en taka upp á því á besta aldri að gerast vampírur og éta fólk. Kolla gaf mér hana af því ég er svo pervers.
|
|
 |
 |
Andlegur leiðtogi minn á afmæli
Fimmtudagur, 25. desember 2003
Samkvæmt Dagatali Woodys frænda fæddist Jesú frá Nasaret (aka Krosslafur) í gripahúsi í Betlehem á þessum degi árið 0.
Það breytir svo sem engu fyrir mig persónulega enda ekkert verið að dýrka gaurinn sérstaklega þó hann hafi sjálfsagt verið ágætis hippi.
Andlegur leiðtogi minn, leikarinn, fyllibyttan og töffarinn Humphrey Bogart, fæddist hins vegar 25. desember árið 1899.
Ætli ég hafi ekki verið 9 ára þegar ég sá The Maltesse Falcon, Casablanca og The Big Sleep með stuttu millibili í Sjónvarpinu. Ég hef ekki á mér heilum tekið síðan. Fann svo The Big Sleep í sjúskaðri kilju uppi á háalofti hjá afa þegar ég var 12 ára. Bógí var framan á henni þannig að ég tók hana (hef ekki skilið hana við mig síðan) og byrjaði að lesa.
Það má því segja að Bogart hafi kynnt mig fyrir Raymond Chandler enda hef ég alltaf átt mjög erfitt með að greina Bogey frá Marlowe og öfugt. Marlowe, Chandler og Bogart eru eiginlega þríeinn.
Texti Chandlers heillaði mig gjörsamlega og það varð ekki aftur snúið; ég varð einfari, þunglyndur, alkóhólisti, komst ekki hjá því að byrja að reykja, festist í níhilisima og síðan breskri rómantík og varð dæmdur til að fara í bókmenntafræði og þar sem einkaspæjarar eru halló fyrirbæri á Íslandi varð ég að fara í næsta djobb við og gerast blaðamaður.
Sé ég eftir einhverju? Nei. Jessi hefur ekkert gert fyrir mig en Bogí allt.
Here´s looking at you kid!
Jólahugvekja úr The Big Sleep eftir Chandler.
What did it matter where you lay once you were dead? In a dirty sump or in a marble tower on top of a high hill? You were dead, you were sleeping the big sleep, you were not bothered by things like that. Oil and water were the same as wind and air to you. You just slept the big sleep, not caring about the nastiness of how you died or where you fell.
(Var ég ekki örugglega búinn að taka fram að þetta er ekki eftir mig heldur Raymond Chandler?)
|
|
 |
 |
Stolið frá höfundi Íslands
Þriðjudagur, 23. desember 2003
Þetta hefði ekki verið galin fyrirsögn á frétt af halarófunni sem hyggst kæra aumingja Hannes Hólmstein fyrir ritstuld. Annars er málið eiginlega sjálfleyst. Vilhjálmur H. var bara látinn skrifa nýja lokaritgerð í staðinn fyrir þessa með lánsköflunum frá Úlfari og Hannes er þegar búinn að lofa að skrifa 2 bækur til viðbótar. Hann gerði því eiginlega yfirbót áður en meintur glæpur komst á prent. Skil samt ekkert því hvernig Hannesi datt í hug að taka sénsinn á að styggja Helgu Kress, þar sem hann hefur nú alltaf verið talinn fluggáfaður. Ekki vildi ég vita af Helgu angry out there to get me.
Nú hef ég ekki lesið Halldór og ætlaði mér ekki að gera það næstu áratugina en ef þetta er rétt hjá hinum þefvísa Páli Baldvin að bókin sé ekki bara full af lítillega breyttum textabrotum Halldórs Laxness, heldur líka illa yfirlesin og full af innsláttar- og prentvillum situr þessi þriggja manna nefnd sem tilnefndi bókina til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki fræðirita uppi með mestu skömmina. Og svo auðvitað Mogginn sem eyddi heilu Reykjavíkurbréfi í að mæra þrekvirkið.
Annars er örugglega ekkert að þessari bók og þetta upphlaup er bara hefðbundin árás Baugs og illa innrætts vinstra pakks á Hannes. Ég meina, Jón Ásgeir er ekki fyrr búinn að kaupa Norðurljós en Páll Baldvin slátrar Hannesi gjörsamlega? Björn er örugglega búinn að kveikja á þessu.
|
|
 |
 |
DV afhjúpar mörgæs
Sunnudagur, 21. desember 2003
DV nafn- og myndbirti Gústa Mörgæs (hann er einn og tuttugu á hæð og starfaði í myrkri, eins og einn fyrrum samstarfsmaður lýsti honum í vor) barnaklámssafnara og pótensíal níðing í gær. Abát fokking tæm. Bíð spenntur eftir heilögum vandlætingarkórnum.
Ég var nú á því í sumar að Fréttblaðið ætti að birta nafn hans, ekki síst þar sem hann hefur gengið laus frá því yfirheyrslum lauk og hefur sett a.m.k. eitt fjölbýlishúsfélag á annan endann. Kerlingin sem tengdist hýslum hans þar skyldi ekkert hvaða læti þetta væru enda hefði hann aldrei lagst á börn undir 2 ára aldri.
Þorði þó ekki að nafngreina hann sjálfur í barnaklámsgrein sem ég skrifaði fyrir nokkrum vikum en þar sagði ég frá rökstuddum grun um að hann væri byrjaður að leita að litlum strákum á Einkamál.is. Skil ekkert afhverju það vakti ekki meiri athygli en ég lét egna fyrir hann góða gildru og skeytin sem hann sendi "14 ára" stráknum mínum voru ekkert of geðsleg. Ef DV hefði verið til þarna hefði ég sett upp deit og látið fíflið mæta og hitta Mikka og ljósmyndara niðrá höfn. Það hefði verið flott forsíða.
|
|
 |
 |
Með hauspoka í IKEA
Laugardagur, 20. desember 2003
Fór af illri nauðsyn í IKEA (einn af hringjum Vítis) í dag. Kaldsvitnaði af áhyggjum yfir því að einhver sem þekkti mig sæi mig þarna. Mér líður eins og smáborgara í kynlífshjálpartækjabúð þegar ég þarf að fara þarna inn. Hitti engan en ákvað samt að upplýsa þetta hér just in case ef einhver skyldi hafa séð mig og hyggst nota þetta gegn mér. Mæli með að IKEA láti hauspoka fylgja með kerrunum þannig að töff fólk sem hefur rep to protect geti notið nafnleyndar þarna. Greiddi að sjálfsögðu með reiðufé og var fljótur að forða mér.
Þar sem ég á börn get ég ekki leitt jólaviðbjóðinn með öllu hjá mér og þurfti líka að fara í Kringluna og miðbæinn. Slapp heill en ætla að horfa á Hard Boiled og aðra ofbeldismynd á eftir til að hreinsa sálina. Æðruleysisbænin er ekki nóg.
Fréttablaðið birtir ekki lengur Leiðréttingar á la EIR og ég læt því þessa sem Hafliði snillingur stakk upp á í gær fljóta með:
Að gefnu tilefni skal vakin athygli á því að Davíð ætlaði aldrei að nota Össur sem stoðtæki í eftirlaunafrumvarpinu.
Svo var þessi helvíti góð síðast þegar Geirfinnsmálið komst í hámæli. Blaðið er auðvitað sómakært og við þorðum ekki að birta hana:
Að gefnu tilefni er Geirfinnur Einarsson beðinn að hringja heim til sín.
|
|
 |
 |
Ich bin ein Berlinerbolla
Miðvikudagur, 17. desember 2003
Oh, þegar ég var latur eins og Clinton og svaraði bara 18 spurningum var ég Clinton en þegar ég tók allan pakkann varð ég Einstein eins og allir hinir nördarnir. Helvítis bögg. Clinton er minn maður. Hef aldrei skilið þessa fokkings afstæðiskenningu.
Þessar LOTR forsýningar eru alveg sér kapítuli út af fyrir sig. Í fyrra var maður þuklaður í bak og fyrir. Slapp við það í ár en var spurður hvort ég væri með farsíma á mér. Það er nenfnilega alveg bannað að fara með soleiðis græjur á ROTK. Veit ekki hvers vegna en það skiptir ekki öllu máli. Ég skildi símann eftir í hanskahólfinu en Mausi litli var ekki jafn séður og var bent á að láta geyma símann sinn í miðasölunni.
Hann var ekki einn um þetta þar sem að sýningu lokinni myndaðist álíka löng biðröð í miðasölunni eftir símum og miðum á sjálfa myndina. Magnað. Þeir hefðu átt að rukka geymslugjald af öllu draslinu.
Mér láðist að koma því að í síðustu færslu þar sem ég skjallaði samstarfsmenn mína að Jakob er að sjálfsögðu lang skemmtilegastur og fyndnastur. Rétt að halda þessu til haga.
|
|
 |
 |
Aha this kiss you give, it's never ever gonna fade away
Þriðjudagur, 16. desember 2003
Enola Gay, you should have stayed at home yesterday
Aha words can't describe the feeling and the way you lied
These games you play, they're gonna end it more than tears someday
Aha Enola Gay, it shouldn't ever have to end this way
-OMD
Það er ljóta hvað þessi vinna mín er krefjandi og slítandi. Það er eins gott að sé eitthvert páwer í eftirlaunagreiðslunum þar sem maður verður örugglega útbrunninn fyrir fertugt.
Í gær þurfti ég til dæmis að leggja það á mig að horfa á tvær úrvalsbíómyndir. Big Fish eftir meistara Burton í hádeginu og The Return of the King um kvöldið. Þetta var í það heila eitthvað um 6 klukkutímar í bíó! Það þarf auðvitað ekki að taka það fram að ROTK er yfirþyrmandi stórbrotin og geðveikislega flott. Aragorn er töff og Legolas er kúl. Eða var það the other way around?
Talandi um LOTR þá held ég að bókmenntarýnirinn skeleggi Kolla Bergþórs hafi átt setningu vikunnar þegar hún gaf þríleiknum einkunn án þess að hafa séð lokakaflann.
Þetta er jafnvel betra en Gone With the Wind....
Ef þetta á ekki erindi á ROTK plaggat eða í það minnsta auglýsingu þá veit ég ekki hvað.
Það er annar stór galli við að vinna þar sem ég vinn. Manni verður nefnilega voðalega lítið úr verki þegar maður hefur jafn skemmtilegt fólk og Kollu og Reyni Traustason til að tala við en RT er eins og allir sem þekkja hann vita snilldarpersóna og vinur vina sinna og fegurðardottninga.
Þeir eru alltaf jafn huggulegir hjá LÍN. Hringdi í dag til að fá gálgafrestinn lengdan. Það var auðsótt og ekkert mál verð bara að vera búinn að gera upp fyrir 24. desember. Sem betur fer hef ég alltaf litið á það sem fánýta iðju og óarðbæra fjárfestingu að gefa jólagjafir þannig að það fé sem ég á í vændum er eyrnamerkt Lánasjóði íslenskra námsamanna. Fyrir ári síðan hefði peningurinn líklega aldrei komist lengra en í ÁTVR en það er önnur og miklu skemmtilegri saga.
|
|
 |
 |
Opinber persóna í rottuholu óskar nafnleyndar
Mánudagur, 15. desember 2003
Maður á áttræðisaldri fannst í lítilli holu úti í eyðimörk í Írak um helgina. Maðurinn, sem er meintur stríðsglæpamaður, var illa til reika og fúlskeggjaður og þrátt fyrir það að hann hafi enga dóma hlotið eða það þyki fullvíst að hann geti talist opinber persóna þar sem hann hefur ekki prýtt forsíðu Séð&Heyrt var nafn hans birt í fjölmiðlum út um allan heim og til þess að bíta höfuðið af skömminni var því sjónvarpað þegar maðurinn fór í gegnum niðurlægjandi lúsarleit og tannskoðun. Réttarhöld yfir manninum hljóta að vera óþörf þar sem fjölmiðlar hafa þegar dæmt í máli hans. Dómsmálaráðherra Íslands telur þó rétt að hann verði dreginn fyrir dómstóla, ekki til að fá skorðið úr um sekt hans heldur dæma hann harkalega fyrir meinta glæpi sem talið er fullvíst að hann hafi framið.
BadaBing.is telur ekki rétt að greina frá nafni mannsins að svo stöddu og hefur þá fyrst og fremst hagsmuni fjölskyldu hans og fórnarlamba fyrir augum.
|
|
 |
 |
Á pizzan að vera ferköntuð?
Sunnudagur, 14. desember 2003
Djöfuls læti. Maður má ekki sofa í sólarhring þá verður allt vitlaust. Háhyrningurinn Siggi er dauður. Mér gæti varla verið meira sama en kvikindið er sem sagt out of its misery. Svo er búið að finna hellisbúann Hussein. Það hefur líklega bara slæmar afleiðingar þegar upp er staðið þar sem Bush heimskari er orðinn föðurbetrungur og tryggir sér önnur fjögur ár í Hvíta húsinu með þessu. Bin Laden verður algert aukatriði enda gerði Hussein þetta örugglega allt. USA! USA!
Þegar manni leiðist er fátt betra en að spjalla við EIR. Ég var að útskýra hvernig Arnaldi Indriðasyni tókst að bjarga Bettý frá að vera stöðnuð tálkvenndis saga með snjöllum viðsnúningi. Þetta fannst EIR asnalegt enda alger óþarfi að snúa upp á hluti og breyta stöðnuðum formúlum. Það er ekki hægt. Viltu kannski hafa pizzuna ferkantaða? Eða breyta Dairy Queen ísnum? Það er ekki hægt. Annars hefur EIR að eigin sögn aldrei lesið neina bók. Bara lifað.
Þetta minnti mig á það þegar einn af mínum skemmtilegri kennurum í gegnum tíðina, Sveinn Skorri Höskuldsson heitinn, sagði að maður þyrfti ekki að fara í genum langtíma nám til þess að vera menntaður. Það væri nóg að lesa 10 bækur; Biblíuna, Íslendingasögu, stóra norræna skáldsögu til dæmis Sjálfstætt fólk, Hómer, grískan harmleik og eitthvað fleira sem ég man ekki í augnablikinu.
Smá tiltekt. Fréttir.com eru hættar og harmurinn mikill en það er töff að hætta þó það sé engin leið að hætta. Respect!
Hinn ógurlegi blaðamaður Páll Ásgeir bloggar hressilega. Hann kíkir hingað af og til og fer því í Skjallbandalagið. Skelli honum undir Tótu pönk. Fer örugglega vel um hann þar.
|
|
 |
 |
That´s awsome man!
Föstudagur, 12. desember 2003
Brilliant! Fantastic! Horror fans have been waiting years for a movie like 'Cabin Fever.' I loved it!
- Peter Jackson.
Tók Hulla með mér á Cabin Fever frumsýninguna í gær. Nýja bókin hans, Drepið okkur, er helvíti góð. Plögga hana betur síðar.
Eli Roth var í tótal banastuði á Cabin Fever og var með hreint og klárt uppistand þegar hann svaraði spurningum í lokin. Ég spurði einskis þar sem ég er búinn að fylgjast með honum og Cabin Fever í um það bil ár og fékk að vita allt sem ég þurfti þegar ég tók viðtalið við hann um daginn. Hann var þrælskemmtilegur í símanum þar sem hann var á setti 2001 Maniacs og var enn hressari á Vegamótum eftir bíó í kvöld. Ákaflega, innilega hress gaur sem finnst allt awsome man! Fékk mér einn kaffibolla með honum og Salt parinu Brad og So (sem voru auðvitað ferlega hress með dóminn hans Bigga um Salt í Fréttablaðinu, þó þau hefðu ekki skilið hann) en þessi bíóþrenning naut þess munaðar að vera í rauðvíninu.
Bóndinn sem hýsti Eli á Ingólfshvoli fyrir áratug og átti skemmda heyið sem varð kveikjan af Cabin Fever mætti einnig á staðinn en Eli er að fara á hestbak hjá honum á morgun enda eru hestar og drykkja honum alltaf ofarlega í huga þegar Ísland ber á góma. Hann langar meira að segja að taka íslenskan hest með sér heim en efast um að hrossið fíli sig í skítnum í LA.
Já, að öllu neimdroppi slepptu þá er myndin alveg drullugóð. Besti horror sem hefur komið í bíó í háa herrans tíð og greinilegt að Eli veit nákvæmlega hvað hann er að gera when it comes to horror; pottþétt blanda viðbjóðs, gríns og nektar. Cabin Fever er the right stuff.
Alveg drepfyndin.
Dómurinn er kominn. 3 stjörnur, stilli mig um að gefa þá fjórðu þar sem hryllingsfíkn mín er meiri en góðu hófi gegnir.
Varúð spoilerar!
Flest sem Eli sagði í spurningasessjóninu hefur komið fram hér áður en þetta er nýtt:
Hvað er í kit kassanum? Sálin úr Marsellusi Wallace.
Aukaleikararnir voru margir hverjir alvöru freakshow að sögn leikstjórans. Þögli strákurinn er með alvöru karatedellu og kom með það dót inn í myndina. Eli þurfti að endurskrifa eitt atriðið með honum eftir prufutökuna. Krakinn sendir honum tölvupóst á hverjum degi og foreldrar hans vilja að Eli geri hann frægan. Hringi í Hollywood og segi þeim að hann eigi að vera Pétur Pan.
Gaurinn sem heldur á Kit boxinu er alvöru lúní og var nýkominn af hæli, eftir að hafa stolið þungavinnuvél pabba síns og valtað bæinn niður, þegar hann var ráðinn. Hann spurði Eli líka hvort hann mæti gefa ljósmyndurum og blaðamönnum á kjaftinn á frumsýningunni og skildi ekkert í því afhverju Bruce Willis mætti ekki.
Þar sem þessir aukaleikarar eru Suðurríkjamenn eru þeir svolítið fastir í fortíðinni og buffið spurði Eli hvort hann gæti ekki fengið Bob Saget til að mæta frumsýninguna. Það yrði sko æði!
Helstu áhrifavaldar Elis í Cabin Fever fyrir utan heyið á Ingólfshvoli eru Evil Dead, Texas Chainsaw Massacre og The Thing. Þar fyrir utan er myndin full af vísunum í gamlan horror. Endirinn kallast til dæmis óneitanlega á við The Night of the Living Dead, sem er snjallt.
Eli hefur unnið fyrir David Lynch og lék þann magnaða brjálæðing með nokkrum tilþifum eftir myndina. Lynch hefur reynst stráknum vel ekki síður en Angelo Badalamenti sem semur tónlist í Cabin Fever.
Tarantino hefur líka hrósað honum í hástert þegar hann er að kynna Kill Bill á blaðamannfundum. Stuðningur frá svona löxum er vitaskuld gríðarlega mikilvægur en Eli segir að hrósið frá Peter Jackson hafi breytt öllu. Þá fyrst hafi allir farið að sperra eyrun.
Jackson fékk myndina senda á meðan hann var að ganga frá The Return of the King og gerði hlé á þeirri mikilvægu vinnu og rúllaði Cabin Fever í gegn í klippiklefanum og bauð Eli strax í mat. Þegar það var nefnt við Jackson hvort það væri séns að hann kæmi með setnignu sem hægt væri að setja á auglýsingaplakat eins og Stephen King gerði fyrir Evil Dead spurði hann hvort það myndi hjálpa eitthvað. Eli hélt nú það, "frægasti leikstjóri í heimi!" Jackson bunaði út úr sér 10 setningum og Eli gat valið úr - og síðan þá haf allir verið að sjá Cabin Fever.
Eli segist hafa það eina takmark að búa til myndir sem fólk fær peninga sinna virði fyrir. Hann er greinilega á réttri leið, það er að segja ef fólk er fyrir hrylling. Viðkvæmir geta beðið eftir DVD-útgáfunni en þar lét Eli setja chick vision bfídus sem virkar þannig að puttar skyggja á skjáinn þegar eitthvað ógeð birtist. Mæli samt með að fólk horfi á hana með bæði augun opin.
|
|
 |
 |
Svífur yfir vötnum...
Mánudagur, 08. desember 2003
...andi látinna snillinga.
Þegar maður er innantómur og heimskur og hefur ekkert að segja er bara tvennt til í stöðunni; birta niðurstöðu úr persónuleikaprófi eða segja frá því sem gerðist á þessum degi í gamla daga. Dagurinn í dag er bæði merkilegur og sorglegur en þann 8. desember 1980 tók geðveikur háfviti sig til og drap John Lennon í New York.
Ég hef ekki getað á mér heilum tekið síðan.
All you need is love, John Lennon, smart man, shot in the back very sad.
- Julius Levinson, Independence Day
Fyrir nákvæmlega 60 árum var svo í þennan heim borinn seiðkarlinn, eðlukóngurinn, snillingurinn, brjálæðingurinn og fíkillinn James Douglas Morrison. Hann dó skömmu eftir að ég fæddist.
Ég hef ekki verið samur maður síðan.
The days are bright and filled with pain
Enclose me in your gentle rain
The time you ran was too insane
We'll meet again, we'll meet again
-The Doors, Crystal Ship
Respect!
|
|
 |
 |
Ve(g)gur frægðarinnar
Sunnudagur, 07. desember 2003
Yesterday, December 7, 1941 - a date which will live in infamy.
- Franklin Delano Roosevelt
Á þessum degi fyrir 62 árum gáfu Japanir Jerry Bruckheimer tilefni til að búa til skítvonda stórmynd 60 árum síðar.
Jakob hefur verið að salta mig á The Wall of Fame sem er að vísu bara orðinn renningur eftir að við fluttum í Skaftahlíðina. Hann var kominn með Guðna Ágústsson á blaðaljósmynd ársins, Hemma Gunn og svo Hrafn Gunnlaugsson í Lauganesinu.
Ég gat bara teflt fram Helga Hós gegn þessu gengi og þó fróðir menn hafi sagt mér að Helgi einn mátaði hina þrjá léttilega ákvað ég að gera skurk og bætti hinni ótrúlega, gullfallegu skákdrottningu Reginu Pokornu á vegginn. Ég lét þó ekki þar við sitja og lét mynda mig með Mende Nazer líka. Ég er nefnilega Sirrý Fréttablaðsins (við Sirrý höfum líka verið ágætis kunningjar eftir að við stukkum saman í fossinn á eftir Kolbrúnu Pálínu eins og frægt er orðið) og tek alltaf að mér að tala við konur sem hafa gengið í gegnum ótrúlegar eldraunir. Þorði samt ekki að láta mynda mig með Waris Dirie í fyrra. Var einfaldlega drulluhræddur við hana og vissi ekkert hvernig ég átti að vera. Ekki bætti úr skák þegar ég spurði rangrar og viðkvæmrar spurningar og hún tjúllaðist. Munaði minnstu að ég migi á mig en ég reddaði í horn með því að segja henni að ég og amma hefðum drukkið bjór með Amal á Andarunganum. Þá féll allt í ljúfa löð og hún sagði we´ll meet again. Það hefur ekki gerst enn.
Ég var ekkert hræddur við Mende enda hef ég ekki hitt jafn hlýja og heillandi manneskju lengi. Það var ákaflega þægilegt að spjalla við hana og svo skrifaði hún krúttlegt fyrir mig í bókina og faðmaði mig að skilnaði. Sætt.
Það er því 3:3 hjá okkur félögunum núna. Ég er með flottasta mótmælanda Íslands, fallega skákdrottningu og heillandi stúlku úr Núbafjöllum á móti ráðherra sem öryrkjar hata, sjónvarpsstjörnu Íslands og "talentlausa dugnaðarforknum" (orð Laxness en ekki mín).
Sagan verður að skera úr um hvor okkar er á réttri leið en Jakob má eiga það að myndirnar hans eru skemmtilegri.
Restin af svarta genginu hefur eitthvað verið að reyna að trana sér fram; Gummi með mynd af sér og foreldrum sínum og heldur því fram að pabbi sinn sé sá frægasti á veggnum og Kolla með Niles og Frasier . Hún er líka á leiðinni í Madamme Tussauds til að sækja fleiri selebs.
Tómt svindl.
|
|
 |
 |
Guli bastarðurinn og annað pakk
Laugardagur, 06. desember 2003
Allt of löng, innihalds- og tilgangslaus bloggfærsla bara fyrir þig. Hírs lúkking at jú Þór!
Fimm mánaða edrúafmæli í dag. Sleppti Ljóta andarunganum þar sem ég var á ferð á kvöldmatartíma og minnir endilega að maður verði að éta af hlaðborðinu til að fá sæti þá. Endaði á alkacafé Paris. Byrjaði samt í Nexus. Var hvorki í stuði fyrir Elektru né DD þannig að ég skelti mér á Sin City Yarnið That Yellow Bastard eftir meistara Miller. Þetta er ekki bara besta Sin City sagan og það besta sem Miller hefur gert heldur er þetta líka ein besta comixbók ever. Púra noir sem gerir það af verkum að maður getur lesið hana aftur og aftur. Hef bara lesið eina pulp bók (The Big Sleep) oftar en TYB.
Löggutöffarinn Hartigan á nokkra klukkutíma eftir af síðasta vinnudeginum þegar hann reynir að bjarga henni Nancy litlu úr klóm barnaníðingsins gula. Sá er valdaður af manninum sem á pleisið þannig að það er no way out. Nancy verður svo flottasta strippgella sem (Sin City) sögur fara af þegar hún verður stór.
SIN CITY SHRINKS IN THE REARVIEW MIRROR, AS CRANKY AND WEARY AS A TIRED WHORE WAITING FOR DAWN AND SOLITUDE
Þvílíkur prósi! Þvílík snilld! Hef verið að hlusta á nýja best of diskinn með Rikshaw og er alveg að kafna í nostalgíunni. Fannst þeir skelfilega ömurlegir á sínum tíma og þeir báru maskarann og blásna hárið engan veginn jafn vel og John Taylor og Simon Le Bon. Ég fílaði vitaskuld og að sjálfsögðu ekkert nema Djúranið á þessum gullaldarárum tónlistarinnar en hef mildast með árunum og hlusta nú á allt eighties dótið eins og það leggur sig. Herbert er kóngurinn en Scobie kemur fast á hæla hans. Into The Burning Moon, Sentimental Eyes, Great Wall Of China, Ordinary Day, Promises Promises, Celestial Garden.... gegt mar.
Sá Love Actually fyrir löngu en er loksins búinn að dæma hana og tékkaði svo á Wonderland í gær á meðan aðrir horfðu á Idolið. Val Kilmer gerir mikið af því að leika mína menn (Morrison, Holmes) og gerir það jafnan með bravúr. Ég man það eins og gerst hafi í gær þegar John Holmes drapst 1988. Var í 3F í MR og samkvæmt Moggafréttinni dó hann úr endaþarmskrabbameini (finn þessa helvítis frétt hvergi í gagnasafninu sem Árvakur gaf þjóðinni) en seinni tíma sagnfræðingar fullyrða að alnæmi hafi orðið Holmes að aldurtila.
Pétur Richter reif fréttina úr Mogganum og hún var hengd upp á vegg í gamla, kalda fatahenginu sem var notað sem kennslustofa fyrir busa frá Mosó, Garðabæ, Kópavogi, Breiðholti, Seltjarnarnesi og öðrum óæðri stöðum. Hún fékk að vera í friði í tvo daga en gufaði svo upp. Guðni og Jón Gúm liggja enn undir grun ásamt Hauki leikfimikennara sem bannaði það með látum að Tyrkja Gudda væri sunginn í sturtu. Við áttum bara að gera okkur grein fyrir því í hvað skóla við værum. Ég hætti.
Jæja, elsku kallinn. Var þetta ekki flott? Nú veistu hvar ég drakk kaffi í dag, hvaða bíómyndir ég hef séð, hvaða tónlist ég er að hlusta á og svo öllu sé haldið til haga þá er ég að fara að halda áfram að lesa Bettý...
|
|
 |
 |
Peepshow
Föstudagur, 05. desember 2003
Það hefur marg oft komið fram hér og annars staðar að ég hef mikinn og ástríðufullan áhuga á skuggahliðum mannlífsins, fíklum, fyllibyttum, nektardansi, morðingjum, leigubílstjórum, blaðamennsku og bensínafgreiðslu. Ég reyndi því að sjálfsögðu að koma strípibúllunum til varnar þegar Reykjavíkurborg gerði rekstur þeirra ómögulegan með skriffinnskuofbeldi og 4 metra reglunni. Stakk upp á því í pistli á Reykjavik.com fyrir rúmu ári að Geiri á Maxims sneri sig út úr þessu með því að opna Peepshow búllu. Og hvað gerist nú, mörgum mánuðum seinna?
Geiri tekur mig á orðinu (þetta er skúbb) og stefnir að því að opna Peepshowbúllu þar sem gamla Vegas var. Þetta er auðvitað skothelt dæmi. Verst að ég var framtakslaus fyllibytta þarna annars hefði ég gert þetta sjálfur. Geiri er flottur!
Svona hljómaði tillagan í hnotskurn:
Annars þarf Geiri ekkert að vera að standa í málaferlum frekar en hann vill. Ég er nefnilega með góða rekstrarhugmynd fyrir hann og hina súlukóngana. Hættiði bara að eltast við einkadansinn og breytiði búllunum í peep-show staði. Þá stripplast stelpurnar í lokuðu herbergi með gluggum og allt í kring eru litlir klefar sem menn geta keypt sig inn í. Þaðan geta þeir svo horft á herlegheitin í gegnum gler og þá þarf ekki að pæla neitt í tilteknum metarfjölda þar sem það verður veggur á milli dólgs og meyjar. Það verður svo að sjálfsögðu eldhúsrúlla í hverjum klefa svo menn geti runkað sér yfir þessu öllu saman, en það er auðvitað megintilgangur hverrar heimsóknar á súlustað er það ekki? Menn borga svo vitaskuld mínútugjald fyrir afnot af klefanum, þannig að þeir sem eru fljótir að ljúka sér af eyða lægri upphæðum en hinir. Kosturinn við þetta er auðvitað sá að allir fá það sem þeir vilja. Geiri og stelpurnar fá pening og runkararnir fá að eyða þeim og hrista úr honum á öruggum stað og enginn þarf lengur að fróa sér í bakgörðum í Grjótahverfinu.
|
|
 |
 |
Blaðamannalíf
Miðvikudagur, 03. desember 2003
Á hverjum degi verður hann [blaðamaðurinn] að finna til þess að blaðamennskan, hin daglega þátttaka í öllu því sem gerist og máli skiptir, er gróandi þjóðlífsins á öllum sviðum - er lífið sjálft.
Þetta sagði Valtýr Stefánsson, höfundur Morgunblaðsins, þann 2. nóvember árið 1933. Úff, það þarf þá engan að undra að maður sé dauðþreyttur í lok hvers dags ef þetta er málið. Er að blaða í bók Jakobs F. Ásgeirssonar um Valtý. Fullt af gömlum myndum. Matti Jó. er lang flottastur. Algjör töffari með Reuters fréttastrimlana. Svona eiga blaðamenn að líta út. Vantar bara hattinn.
Nenni engu en er samt búinn að uppfæra Úrklippurnar. Eðalstöff á ferðinni, að sjálfsögðu, og nú eru klippurnar komnar í pop-up. Miklu betra að lesa.
Tók annars viðtöl við tvær eðaldömur í dag. Það getur verið gaman að taka viðtöl, ekki síst þegar viðmælandinn snertir við manni á einhvern hátt og faðmar mann að skilnaði. Priceless! Það var líka stuð í gær að snuddast í kringum fagurbókmenntatilnefningarnar þó eitthvað sem er tilkynnt á fimmtudegi komi helgarblaðamanni ekkert átakanlega mikið við. ´
DV tæklaði þetta þó á svipaðan hátt og ég og sessunautar mínir á Vegamótum í gær hefðum gert, en við vorum einmitt að velta þessu risastóra fokk jú merki sem skrifandi konum á Íslandi var sýnt með þessu. Konurnar sem telja hausa í fjölmiðlum hljóta að láta í sér heyra.
Skilst að RÚV og bókmenntaelítan séu í fýlu yfir því að DV hafi skúbbað þessu en svona á þetta nú bara að vera. Til hvers að vera blaðamaður og vita eitthvað en þegja yfir því til að skemma ekki beinnar útsendingarfílíngin fyrir Kastljósinu? Það er varla hægt að standast svona freistingu og ég man það til dæmis vel hvað það var gaman að kjafta frá þessu á Pressunni með Hrafni tvö ár í röð við litla hrifningu bókakreðsunnar.
Sverrir ræðir fréttina í dag og telur hana skrifaða af JPV. Finnst það full langsótt þó Ólafur Gunnarsson hljóti að vera helvíti heitur þegar kemur að afhendingu. Það vissu þetta nú bara svo margir í gær að ég held að DV hafi ekki þurft JPV til að skrifa fréttina.
Við sátum a.m.k. þrír yfir kaffibolla síðdegis og vissum þetta og það er nú einu sinni þannig að þegar eitthvað svona er á annað borð sloppið út þá ferðast það hratt og víða og er dæmt til að enda hjá blaðasnápum.
Mér finnst fulltrúi almennings í nefndinni skondinn en hef mikið álit á Kötu Jakobs og þóttist vita að hún gæti fundið a.m.k. eina konu en eins og bróðir hennar staðfestir um leið og hann bendir á að einn nefndarmaður ráði vitaskuld ekki öllu. Mér skilst nú á fólki sem hefur setið í svona nefndum að þetta séu eintómar vílíngar, dílingar, hrossakaup og málamiðlanir. Alveg eins og í pólitíkinni, þannig að það er líklega ekki svo galið að hafa tvo varaformenn stjórnmálaflokka við samningaborðið. En vildi virkilega enginn koma Guðmundi Andra að?
|
|
 |
 |
Páverpöffstrákur
Þriðjudagur, 02. desember 2003
22 dagar til jóla
288 dagar þangað til Davíð hættir.
Það er alltaf hægt að stóla á að Hullboy finni einhver skemmtileg persónuleikapróf. Við erum báðir Bubbles sem hlýtur þá að vera best.

Nóvember var vitaskuld og að sjálfsögðu (Rásar2 lingó en í árdögum Rásarinnar voru öll lög vitaskuld og að sjálfsögðu nýir smellir á listanum) metaðsóknarmánuður á BadaBing! , rétt eins og október og september áður.
Alltaf jafn áhugavert að skoða vinsælustu leitarstrengina Leoncie er nú komin á toppinn og Brain Police fylgja á eftir. 12 spora kerfið er í 4. sæti og svo dúkkar ágætur vinnufélagi minn og FH-ingur Freyr Bjarnason upp.
Elling, Mávahlátur og Stöð 2 koma einnig við sögu, ásamt kynlífi.
Aðrir merkismenn sem fólk leitar að og finnur á BadaBing! eru svo til dæmis Hugleikur Dagsson, Hjálmar Blöndal, Þórarinn Óskar Þórarinsson og Twiggy.
Allt eru þetta fyrirtaks leitarorð en því miður held ég að þeir sem álpist hingað inn verði litlu nær um viðkomandi aðila og fyrirbæri. Hér er til dæmis ekki að finna neinn fróðleik um Brain Police annan en þann að Gulli er vinur minn og fyrrum vinnufélagi og um Frey segir ekkert annað en að hann muni skrifa fjölmiðlapistla í minn stað á meðan ég er í meðferð. Um hin ágætu 12 spor hef ég ekki sagt neitt af viti annað en það að það er þeim og AA samtökunum að kenna að George W. Bush er að steypa heiminum í glötun, væntanlega í 12 sporum.
1. spor - Svindla í kosningum,
2. spor - Sprengja Afganistan aftur í steinöld,
3. spor - Jafna Írak við jörðu...... og svo framvegis.
12 spor - Núka alla helvítis hálvitana í hinu liðinu og biðjast svo afsökunnar á öllu saman.
Snillinguirnn Jónas á spakmæli vikunnar. Ég hef líka alltaf sagt þetta; blaðamenn eru ýmist málaliðar eða hórur, bara í mismunandi gæða- og verðflokkum.
Við skulum ekki fara neitt í felur með eðli breytingarinnar. Dulin kynning og kostun felur í sér eina tegund af vændi, fjölmiðlavændi. Í trássi við lög og siðareglur, menntun og hefðir hafa blaðamenn og útgefendur gerzt hórur.
|
|
 |
 |
Ljóðahornið
Mánudagur, 01. desember 2003
Fékk fyrsta ljóð jólaljóðadagatals Ljósálfs í dag. Þetta er strangt tiltekið ekki jólaljóð sem hann byrjar á enda er 1. desember ekki bara fullveldisdagur Íslands heldur líka alþjóðlegur alnæmisdagur og eins og Ljósálfur orðar það þá er ljóðið sem hann "valdi fyrir þennan dag er eftir hana Védísi Leifsdóttur sem lést af völdum alnæmis í janúar 1993. Eftir hana liggur ljóðabókin Tímaspor, úrval ljóða sem hún orti frá 1981 – 1992 en þar er þetta ljóð að finna."
Þú komst
dróst svarta skýið frá sálu minni
gafst mér lítinn sólargeisla
örlitla von
um hlýnandi veðurfar
|
|
 |
 |
Ofmetnir Íslendingar í áratug
Mánudagur, 01. desember 2003
Mér líst ágætlega á nýja DV so far og ef þetta versnar ekki hjá vinum mínum þá er þetta allt á réttri leið. Einhverjir sítuðarar hafa verið að fárast yfir því að það sé of þunnt. Eins og þykktin sé mælikvarði á gæði dagblaða (Mogginn, anyone?).
Innihaldið skiptir meira máli og þar er DV að koma sterkt inn. Þetta segi ég fyrst og fremst sem gamall úrklippusafnari þar sem mér sýnist að nú sé loksins aftur að koma blað sem gefur manni ástæður til að taka aftur fram dúkahnífinn og skærin. (Smellið á Hannes til að lesa)
Featurarnir í DV eru til dæmis oftar en ekki fínerísstöff. Galddi mig til dæmis sérstaklega að sjá úttekt á Ofmetnum Íslendingum í laugardagsblaðinu. Ekki beint eftirsóknarvert að komast á þann lista og þannig villist aumingja Snæi í Bjarti þarna inn.
Bjartsmenn eru ekki sáttir og benda á að fjölmiðlar undir stjórn Gunnars Smára Egilssonar hafa birt slíka lista í áraraðir og eru þeir nokkuð breytilegir frá ári til árs enda þótt sum nöfn eigi þar sinn fasta samastað. Þannig hefur Páll Skúlason háskólarektor verið fastagestur á listanum allt frá því að Pressan var og hét.
Þessi fullyrðing vakti forvitni mína og ég rauk í Úrklippubókina mína fyrir árin 1994 og 1995. Þar er Helgarpóstsfeature um ofmetna Íslendinga. Þar segir í inngangi:
Gunnar Smári Egilsson tók að sér að skrá þessa ör-palladóma og fékkst til verksins sökum þess að hann er herpt sál sem unir ekki nokkrum neins. Og á hann herjar sá grunur að hann sé stórlega ofmetinn af þeim fáu sem elska hann.
Hvað um það Páll Skúlason er ekki á þessum lista en þar er Gunnar Dal. Páll kemur þó við sögu þar sem hann er sagður þurfa að sætta sig við að "gamall kverúlant úr Keflavík" hafi stolið hlutverki hans. "Þjóðinni finnst Gunnar miklu klárari en Páll."
Annars telst það helst til tíðina að aðeins tveir halda sæti sínu á listanum frá HP yfir til DV, nefnilega Gunnar Dal og Hannes Hólmsteinn. Af tvennu illu hlýtur þó að vera betra að lafa inni í áratug frekar en að detta út og gleymast. Frábær frammistaða, Gunnar og Hannes! Hver eru til dæmis Þórunn Sigurðardóttir, Sigurður Hróarsson, Sverrir Ólafsson og Þorgrímur Þráinsson??
Ofmetnir Íslendingar í Helgarpóstinum fyrir áratug eða svo:
Þráinn Bertelsson
Sigmar B. Hauksson
Heimir Steinsson
Þórunn Sigurðardóttir, leikstjóri
Björgvin Halldórsson
Karl Ágúst Úlfsson
Magnús Jónsson, veðurstofustjóri
Séra Pálmi Matthíasson
Dr. Sigrún Stefánsdóttir
Gunnar Dal
Sigurður Hróarsson
Ragnar Aðalsteinsson
Sigurður G. Tómasson
Sverrir Ólafsson, myndhöggvari
Steingrímur Hermannsson & Birgir Ísleifur Gunnarsson
Egill Jónsson, þingmaður
Dr. Guðmundur Emilsson, tónlistarstjóri
Pétur H. Blöndal
Friðrik Ólafsson
Þorgrímur Þráinsson
Ómar Ragnarsson
Gunnlaugur Sigmundsson, þingmaður
Illugi Jökulsson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Ögmundur Jónasson
Bogi Nilson, rannsóknarlögreglustjóri
Jón Baldvin Hannibalsson
Ellert B. Schram
Ofmetnir Íslendingar í DV árið 2004:
Hallgrímur Helgason
Ólafur Jóhann Ólafsson
Sigurjón Kjartansson
Mörður Árnason
Karl Sigurbjörnsson
Ágúst Einarsson
Páll Skúlason
Jóhannes í Bónus
Linda Pétursdóttir
Gunnar Dal
Karl Garðarson
Vigdís Finnbogadóttir
Ofmetnir fyrst og fremst af sjálfum sér:
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Björn Bjarnason
Stefán Jón Hafstein
Snæbjörn Arngrímsson
Ofmetnir stjórnmálamenn:
Davíð Oddsson
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Helgi Hjörvar
Gísli Marteinn Baldursson
Halldór Ásgrímsson
|
|
 |
 |
|
|
 |
Blóðbönd
First Aid
Mjölfiðlar
Elítan
Bloggar
shit and stuff
|
|