»  off record  »  Á pizzan að vera ferköntuð?
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Á pizzan að vera ferköntuð?
Sunnudagur, 14. desember 2003

huss.gifDjöfuls læti. Maður má ekki sofa í sólarhring þá verður allt vitlaust. Háhyrningurinn Siggi er dauður. Mér gæti varla verið meira sama en kvikindið er sem sagt out of its misery. Svo er búið að finna hellisbúann Hussein. Það hefur líklega bara slæmar afleiðingar þegar upp er staðið þar sem Bush heimskari er orðinn föðurbetrungur og tryggir sér önnur fjögur ár í Hvíta húsinu með þessu. Bin Laden verður algert aukatriði enda gerði Hussein þetta örugglega allt. USA! USA!

Þegar manni leiðist er fátt betra en að spjalla við EIR. Ég var að útskýra hvernig Arnaldi Indriðasyni tókst að bjarga Bettý frá að vera stöðnuð tálkvenndis saga með snjöllum viðsnúningi. Þetta fannst EIR asnalegt enda alger óþarfi að snúa upp á hluti og breyta stöðnuðum formúlum. Það er ekki hægt. Viltu kannski hafa pizzuna ferkantaða? Eða breyta Dairy Queen ísnum? Það er ekki hægt. Annars hefur EIR að eigin sögn aldrei lesið neina bók. Bara lifað.
Þetta minnti mig á það þegar einn af mínum skemmtilegri kennurum í gegnum tíðina, Sveinn Skorri Höskuldsson heitinn, sagði að maður þyrfti ekki að fara í genum langtíma nám til þess að vera menntaður. Það væri nóg að lesa 10 bækur; Biblíuna, Íslendingasögu, stóra norræna skáldsögu til dæmis Sjálfstætt fólk, Hómer, grískan harmleik og eitthvað fleira sem ég man ekki í augnablikinu.

Smá tiltekt. Fréttir.com eru hættar og harmurinn mikill en það er töff að hætta þó það sé engin leið að hætta. Respect!
Hinn ógurlegi blaðamaður Páll Ásgeir bloggar hressilega. Hann kíkir hingað af og til og fer því í Skjallbandalagið. Skelli honum undir Tótu pönk. Fer örugglega vel um hann þar.


| 22:20 |
komment

Þeir hafa læðst að'onum sofandi. Eða dælt gasi í kofann'ans. Það er nefninlega engu að treysta í fréttaflutningi kanans af hernámsmálum Íraks og hefur aldrei verið, allt frá fyrstu tilburðum til innrásar.

Nr. 1 | BP49 | 15.12.2003 | 14:02:56 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff