Miðvikudagur, 03. desember 2003
Á hverjum degi verður hann [blaðamaðurinn] að finna til þess að blaðamennskan, hin daglega þátttaka í öllu því sem gerist og máli skiptir, er gróandi þjóðlífsins á öllum sviðum - er lífið sjálft.
Þetta sagði Valtýr Stefánsson, höfundur Morgunblaðsins, þann 2. nóvember árið 1933. Úff, það þarf þá engan að undra að maður sé dauðþreyttur í lok hvers dags ef þetta er málið.
Er að blaða í bók Jakobs F. Ásgeirssonar um Valtý. Fullt af gömlum myndum. Matti Jó. er lang flottastur. Algjör töffari með Reuters fréttastrimlana. Svona eiga blaðamenn að líta út. Vantar bara hattinn.
Nenni engu en er samt búinn að uppfæra Úrklippurnar. Eðalstöff á ferðinni, að sjálfsögðu, og nú eru klippurnar komnar í pop-up. Miklu betra að lesa.
Tók annars viðtöl við tvær eðaldömur í dag. Það getur verið gaman að taka viðtöl, ekki síst þegar viðmælandinn snertir við manni á einhvern hátt og faðmar mann að skilnaði. Priceless! Það var líka stuð í gær að snuddast í kringum fagurbókmenntatilnefningarnar þó eitthvað sem er tilkynnt á fimmtudegi komi helgarblaðamanni ekkert átakanlega mikið við. ´
DV tæklaði þetta þó á svipaðan hátt og ég og sessunautar mínir á Vegamótum í gær hefðum gert, en við vorum einmitt að velta þessu risastóra fokk jú merki sem skrifandi konum á Íslandi var sýnt með þessu. Konurnar sem telja hausa í fjölmiðlum hljóta að láta í sér heyra.
Skilst að RÚV og bókmenntaelítan séu í fýlu yfir því að DV hafi skúbbað þessu en svona á þetta nú bara að vera. Til hvers að vera blaðamaður og vita eitthvað en þegja yfir því til að skemma ekki beinnar útsendingarfílíngin fyrir Kastljósinu? Það er varla hægt að standast svona freistingu og ég man það til dæmis vel hvað það var gaman að kjafta frá þessu á Pressunni með Hrafni tvö ár í röð við litla hrifningu bókakreðsunnar.
Sverrir ræðir fréttina í dag og telur hana skrifaða af JPV. Finnst það full langsótt þó Ólafur Gunnarsson hljóti að vera helvíti heitur þegar kemur að afhendingu. Það vissu þetta nú bara svo margir í gær að ég held að DV hafi ekki þurft JPV til að skrifa fréttina.
Við sátum a.m.k. þrír yfir kaffibolla síðdegis og vissum þetta og það er nú einu sinni þannig að þegar eitthvað svona er á annað borð sloppið út þá ferðast það hratt og víða og er dæmt til að enda hjá blaðasnápum.
Mér finnst fulltrúi almennings í nefndinni skondinn en hef mikið álit á Kötu Jakobs og þóttist vita að hún gæti fundið a.m.k. eina konu en eins og bróðir hennar staðfestir um leið og hann bendir á að einn nefndarmaður ráði vitaskuld ekki öllu. Mér skilst nú á fólki sem hefur setið í svona nefndum að þetta séu eintómar vílíngar, dílingar, hrossakaup og málamiðlanir. Alveg eins og í pólitíkinni, þannig að það er líklega ekki svo galið að hafa tvo varaformenn stjórnmálaflokka við samningaborðið. En vildi virkilega enginn koma Guðmundi Andra að?
| 22:09 |