»  off record  »  Opinber persóna í rottuholu óskar nafnleyndar
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Opinber persóna í rottuholu óskar nafnleyndar
Mánudagur, 15. desember 2003

Maður á áttræðisaldri fannst í lítilli holu úti í eyðimörk í Írak um helgina. Maðurinn, sem er meintur stríðsglæpamaður, var illa til reika og fúlskeggjaður og þrátt fyrir það að hann hafi enga dóma hlotið eða það þyki fullvíst að hann geti talist opinber persóna þar sem hann hefur ekki prýtt forsíðu Séð&Heyrt var nafn hans birt í fjölmiðlum út um allan heim og til þess að bíta höfuðið af skömminni var því sjónvarpað þegar maðurinn fór í gegnum niðurlægjandi lúsarleit og tannskoðun.

Réttarhöld yfir manninum hljóta að vera óþörf þar sem fjölmiðlar hafa þegar dæmt í máli hans. Dómsmálaráðherra Íslands telur þó rétt að hann verði dreginn fyrir dómstóla, ekki til að fá skorðið úr um sekt hans heldur dæma hann harkalega fyrir meinta glæpi sem talið er fullvíst að hann hafi framið.
BadaBing.is telur ekki rétt að greina frá nafni mannsins að svo stöddu og hefur þá fyrst og fremst hagsmuni fjölskyldu hans og fórnarlamba fyrir augum.


| 18:53 |
komment

Skrýtið hvað fólk heldur að fréttir séu mikill sannleikur... eiginlega er það rétt að þessi handtaka var einhvers konar opinber aftaka... og var einhvers skonar goðsaga - svona hraðsoðin nútíma þjóðsaga - sögð frá sjónarhóli vestrænna fjölmiðla. Sagan af manni sem sem var lítill í sér, var svona moldbúi og grafinn niður í jörðina, sagan af hvernig hann sveik og ætlaði að svíkja (peningarnir), sagan af því hvernig hann var svikinn (uppljóstrunin) og af hverjum hann var svikinn (meðlimi úr eigin fjölskyldu). Kannski var tilbúningur á þessari þjóðsögu ekki verk eins manns... en það var óhugnanlegt að fylgjast með hvað hún var tekin fljótt upp og með hve miklum leifturhraða hún barst um heimsbyggðinni.

Nr. 1 | Salvör | 15.12.2003 | 21:44:21 | [+] |

Ég held reyndar að það sé nýlega búið að skjóta svona megnið af familíunni hans og örugglega öll fórnarlömbin hans þannig að það þarf kannski ekkert að vera að hlífa þeim neitt.

En í "alvöru" talað þá finnst mér hann Saddam sýna gott fordæmi með því að vera ekki að berast mikið á eins og flestir þjóðhöfðingjar gera heldur búa í litlum kofa úti í sveit og þaraðauki vildi hann ekkert vera að nota kofann of mikið heldur hélt sig aðallega í einhverri holu ofan í jörðinni.

Nr. 2 | ERS | 15.12.2003 | 23:23:03 | [+] |

Tóti. Þú og aðeins þú, ert:

ÆÐI!

Nr. 3 | pallih | 16.12.2003 | 3:59:10 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff