»  off record  »  Stolið frá höfundi Íslands
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Stolið frá höfundi Íslands
Þriðjudagur, 23. desember 2003

Þetta hefði ekki verið galin fyrirsögn á frétt af halarófunni sem hyggst kæra aumingja Hannes Hólmstein fyrir ritstuld. Annars er málið eiginlega sjálfleyst. Vilhjálmur H. var bara látinn skrifa nýja lokaritgerð í staðinn fyrir þessa með lánsköflunum frá Úlfari og Hannes er þegar búinn að lofa að skrifa 2 bækur til viðbótar. Hann gerði því eiginlega yfirbót áður en meintur glæpur komst á prent.

Skil samt ekkert því hvernig Hannesi datt í hug að taka sénsinn á að styggja Helgu Kress, þar sem hann hefur nú alltaf verið talinn fluggáfaður. Ekki vildi ég vita af Helgu angry out there to get me.
Nú hef ég ekki lesið Halldór og ætlaði mér ekki að gera það næstu áratugina en ef þetta er rétt hjá hinum þefvísa Páli Baldvin að bókin sé ekki bara full af lítillega breyttum textabrotum Halldórs Laxness, heldur líka illa yfirlesin og full af innsláttar- og prentvillum situr þessi þriggja manna nefnd sem tilnefndi bókina til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki fræðirita uppi með mestu skömmina. Og svo auðvitað Mogginn sem eyddi heilu Reykjavíkurbréfi í að mæra þrekvirkið.
Annars er örugglega ekkert að þessari bók og þetta upphlaup er bara hefðbundin árás Baugs og illa innrætts vinstra pakks á Hannes. Ég meina, Jón Ásgeir er ekki fyrr búinn að kaupa Norðurljós en Páll Baldvin slátrar Hannesi gjörsamlega? Björn er örugglega búinn að kveikja á þessu.


| 23:56 |
komment

Hefur einhver lesið BS ritgerðina hans HHG?

Nr. 1 | AlanHudson | 24.12.2003 | 0:20:19 | [+] |

Helga Kress er ein greindasta manneskja sem nú er á dögum. Bara að það komi fram. Annars: Gleðileg jól félagi Tóti. Með óskum um gott og þurrt komandi ár. Takk fyrir skot og skemmtilegheit á árinu sem er næstum því liðið.

Nr. 2 | Tóta P. | 24.12.2003 | 2:07:14 | [+] |

mikið finnst mér gaman að lesaðig...glel jól.

Nr. 3 | beta | 24.12.2003 | 17:04:44 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff