»  off record  »  That´s awsome man!
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
That´s awsome man!
Föstudagur, 12. desember 2003

aritun.gifBrilliant! Fantastic! Horror fans have been waiting years for a movie like 'Cabin Fever.' I loved it!
- Peter Jackson.

Tók Hulla með mér á Cabin Fever frumsýninguna í gær. Nýja bókin hans, Drepið okkur, er helvíti góð. Plögga hana betur síðar.
Eli Roth var í tótal banastuði á Cabin Fever og var með hreint og klárt uppistand þegar hann svaraði spurningum í lokin. Ég spurði einskis þar sem ég er búinn að fylgjast með honum og Cabin Fever í um það bil ár og fékk að vita allt sem ég þurfti þegar ég tók viðtalið við hann um daginn.

Hann var þrælskemmtilegur í símanum þar sem hann var á setti 2001 Maniacs og var enn hressari á Vegamótum eftir bíó í kvöld. Ákaflega, innilega hress gaur sem finnst allt awsome man! Fékk mér einn kaffibolla með honum og Salt parinu Brad og So (sem voru auðvitað ferlega hress með dóminn hans Bigga um Salt í Fréttablaðinu, þó þau hefðu ekki skilið hann) en þessi bíóþrenning naut þess munaðar að vera í rauðvíninu.
Bóndinn sem hýsti Eli á Ingólfshvoli fyrir áratug og átti skemmda heyið sem varð kveikjan af Cabin Fever mætti einnig á staðinn en Eli er að fara á hestbak hjá honum á morgun enda eru hestar og drykkja honum alltaf ofarlega í huga þegar Ísland ber á góma. Hann langar meira að segja að taka íslenskan hest með sér heim en efast um að hrossið fíli sig í skítnum í LA.
Já, að öllu neimdroppi slepptu þá er myndin alveg drullugóð. Besti horror sem hefur komið í bíó í háa herrans tíð og greinilegt að Eli veit nákvæmlega hvað hann er að gera when it comes to horror; pottþétt blanda viðbjóðs, gríns og nektar. Cabin Fever er the right stuff.
Alveg drepfyndin.

Dómurinn er kominn. 3 stjörnur, stilli mig um að gefa þá fjórðu þar sem hryllingsfíkn mín er meiri en góðu hófi gegnir.

Varúð spoilerar!

Flest sem Eli sagði í spurningasessjóninu hefur komið fram hér áður en þetta er nýtt:

Hvað er í kit kassanum? Sálin úr Marsellusi Wallace.

Aukaleikararnir voru margir hverjir alvöru freakshow að sögn leikstjórans. Þögli strákurinn er með alvöru karatedellu og kom með það dót inn í myndina. Eli þurfti að endurskrifa eitt atriðið með honum eftir prufutökuna. Krakinn sendir honum tölvupóst á hverjum degi og foreldrar hans vilja að Eli geri hann frægan. Hringi í Hollywood og segi þeim að hann eigi að vera Pétur Pan.
Gaurinn sem heldur á Kit boxinu er alvöru lúní og var nýkominn af hæli, eftir að hafa stolið þungavinnuvél pabba síns og valtað bæinn niður, þegar hann var ráðinn. Hann spurði Eli líka hvort hann mæti gefa ljósmyndurum og blaðamönnum á kjaftinn á frumsýningunni og skildi ekkert í því afhverju Bruce Willis mætti ekki.
Þar sem þessir aukaleikarar eru Suðurríkjamenn eru þeir svolítið fastir í fortíðinni og buffið spurði Eli hvort hann gæti ekki fengið Bob Saget til að mæta frumsýninguna. Það yrði sko æði!
Helstu áhrifavaldar Elis í Cabin Fever fyrir utan heyið á Ingólfshvoli eru Evil Dead, Texas Chainsaw Massacre og The Thing. Þar fyrir utan er myndin full af vísunum í gamlan horror. Endirinn kallast til dæmis óneitanlega á við The Night of the Living Dead, sem er snjallt.
Eli hefur unnið fyrir David Lynch og lék þann magnaða brjálæðing með nokkrum tilþifum eftir myndina. Lynch hefur reynst stráknum vel ekki síður en Angelo Badalamenti sem semur tónlist í Cabin Fever.
Tarantino hefur líka hrósað honum í hástert þegar hann er að kynna Kill Bill á blaðamannfundum. Stuðningur frá svona löxum er vitaskuld gríðarlega mikilvægur en Eli segir að hrósið frá Peter Jackson hafi breytt öllu. Þá fyrst hafi allir farið að sperra eyrun.
Jackson fékk myndina senda á meðan hann var að ganga frá The Return of the King og gerði hlé á þeirri mikilvægu vinnu og rúllaði Cabin Fever í gegn í klippiklefanum og bauð Eli strax í mat. Þegar það var nefnt við Jackson hvort það væri séns að hann kæmi með setnignu sem hægt væri að setja á auglýsingaplakat eins og Stephen King gerði fyrir Evil Dead spurði hann hvort það myndi hjálpa eitthvað. Eli hélt nú það, "frægasti leikstjóri í heimi!" Jackson bunaði út úr sér 10 setningum og Eli gat valið úr - og síðan þá haf allir verið að sjá Cabin Fever.
Eli segist hafa það eina takmark að búa til myndir sem fólk fær peninga sinna virði fyrir. Hann er greinilega á réttri leið, það er að segja ef fólk er fyrir hrylling. Viðkvæmir geta beðið eftir DVD-útgáfunni en þar lét Eli setja chick vision bfídus sem virkar þannig að puttar skyggja á skjáinn þegar eitthvað ógeð birtist. Mæli samt með að fólk horfi á hana með bæði augun opin.


| 0:54 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff