Sunnudagur, 07. desember 2003
Yesterday, December 7, 1941 - a date which will live in infamy.
- Franklin Delano Roosevelt
Á þessum degi fyrir 62 árum gáfu Japanir Jerry Bruckheimer tilefni til að búa til skítvonda stórmynd 60 árum síðar.
Jakob hefur verið að salta mig á The Wall of Fame sem er að vísu bara orðinn renningur eftir að við fluttum í Skaftahlíðina. Hann var kominn með Guðna Ágústsson á blaðaljósmynd ársins, Hemma Gunn og svo Hrafn Gunnlaugsson í Lauganesinu.
Ég gat bara teflt fram Helga Hós gegn þessu gengi og þó fróðir menn hafi sagt mér að Helgi einn mátaði hina þrjá léttilega ákvað ég að gera skurk og bætti hinni ótrúlega, gullfallegu skákdrottningu Reginu Pokornu á vegginn. Ég lét þó ekki þar við sitja og lét mynda mig með Mende Nazer líka.
Ég er nefnilega Sirrý Fréttablaðsins (við Sirrý höfum líka verið ágætis kunningjar eftir að við stukkum saman í fossinn á eftir Kolbrúnu Pálínu eins og frægt er orðið) og tek alltaf að mér að tala við konur sem hafa gengið í gegnum ótrúlegar eldraunir. Þorði samt ekki að láta mynda mig með Waris Dirie í fyrra. Var einfaldlega drulluhræddur við hana og vissi ekkert hvernig ég átti að vera. Ekki bætti úr skák þegar ég spurði rangrar og viðkvæmrar spurningar og hún tjúllaðist. Munaði minnstu að ég migi á mig en ég reddaði í horn með því að segja henni að ég og amma hefðum drukkið bjór með Amal á Andarunganum. Þá féll allt í ljúfa löð og hún sagði we´ll meet again. Það hefur ekki gerst enn.
Ég var ekkert hræddur við Mende enda hef ég ekki hitt jafn hlýja og heillandi manneskju lengi. Það var ákaflega þægilegt að spjalla við hana og svo skrifaði hún krúttlegt fyrir mig í bókina og faðmaði mig að skilnaði. Sætt.
Það er því 3:3 hjá okkur félögunum núna. Ég er með flottasta mótmælanda Íslands, fallega skákdrottningu og heillandi stúlku úr Núbafjöllum á móti ráðherra sem öryrkjar hata, sjónvarpsstjörnu Íslands og "talentlausa dugnaðarforknum" (orð Laxness en ekki mín).
Sagan verður að skera úr um hvor okkar er á réttri leið en Jakob má eiga það að myndirnar hans eru skemmtilegri.
Restin af svarta genginu hefur eitthvað verið að reyna að trana sér fram; Gummi með mynd af sér og foreldrum sínum og heldur því fram að pabbi sinn sé sá frægasti á veggnum og Kolla með Niles og Frasier . Hún er líka á leiðinni í Madamme Tussauds til að sækja fleiri selebs.
Tómt svindl.
| 22:29 |