»  off record  »  Áramótabomban eina
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Áramótabomban eina
Fimmtudagur, 01. janúar 2004

Þeir drekka rauðvínið sem mega það

-bjó til þennan málshátt sjálfum mér til hugarhægðar um daginn og staglast nú oftar á honum en Æðruleysisbæninni.

Áfengislaus áramót voru pís of keik. Ægissíðubrennan var þó tótal feilíjör. Lítil og lág. Svona draga staðlar og reglugerðir alla gleði smám saman úr lífinu.
Uppörvandi samt að horfa á þetta aumkunarverða lið á brennuni með sultardropana, að frjósa í hel en lepja samt ískaldan bjór. Pathetic. Ég var þannig í fyrra og kann betur við mig núna.

Skaupið er mál málana í dag. Ég hef úrskurðað mig vanhæfan til að fjalla um það sökum kunningsskapar við einn höfundanna. Held samt að þetta hafi ekki beinlínis verið hugsað fyrir edrú fólk. Eina Skaupið sem skiptir einhverju raunverulegu máli í menningarsögulegu samhengi er snilldin 1984, eða öllu heldur 1985 samkvæmt nýjustu leiðréttingu.
Tinna Gunnlaugsdóttir í símaklefanum er ógleymanleg og hafði mótandi á mig sem kynveru og pervert. Tinna er enn bomba í mínum huga og af virðingu við hana ætla ég að láta kvikmyndagerðarhæfileika bróður hennar liggja milli hluta í kvöld. Ég afgreiddi Myrkarahöfðingjann á sínum tíma og það verða aðrir að slátra Hannesi.
Kaldaljós áðan og þar er hins vegar alvöru kvikmyndagerð á ferðinni. Það hefur fylgt Hilmari Oddssyni svolítið að hann þykir gera leiðinlegar myndir en Kaldaljós er allt annað. Falleg, fagmannleg, látlaus, sorgleg og fantavel leikinn. Eðalmynd.


| 22:55 |
komment

"Falleg, fagmannleg, látlaus, sorgleg og fantavel leikinn. Eðalmynd."

Þú gætir alveg eins verið að lýsa myndinni Tár úr steini um Jón Leifs eftir Hilmar Oddsson. Eðalmynd líka.

Nr. 1 | Igor | 1.01.2004 | 23:09:33 | [+] |

skaupið var vont og hannes var viðbjóður. hvers konar óhroða er verið að bjóða manni uppá? ekki furða að íslensk þáttagerð fái ekki styrki ríkisins og áhuga lýðsins ef allt sem er sýnt er svona merkilega viðbjóðslega leiðinlegt.

Nr. 2 | beta | 2.01.2004 | 0:49:02 | [+] |

Örlítil leiðrétting: Tinna í klefanum var í skaupinu '85

Nr. 3 | Dagur Jónsson | 2.01.2004 | 10:15:10 | [+] |

en heyrðu. nú er dv í sama pakka með ykkur er það ekki? eruði ekki sama lið? hvað er með forsíðuna í dag...eða semst í gær????

ha? einhverjar útskýringar???

Nr. 4 | beta | 3.01.2004 | 6:29:34 | [+] |

æh. var ennþá tipsí í morgunröflinu. mar á ekki að setjast við tölvuna á eftir djamm. komin yfiretta núna...

Nr. 5 | beta | 3.01.2004 | 23:42:14 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff