Fimmtudagur, 15. janúar 2004
Ég var búinn að gleyma hversu mikið puð það er að skrifa í blöð með deadline á hverjum degi. Alveg beat bara eða Tired baby...Tired eins og Þór myndi orða það. Sé ekki fram á mikla action hérna á næstunni með þessu áframhaldi.
Þarf ekki að blogga um Ingva Hrafn og Hall. Félagi Hafliði gerði þeim góð skil í fjölmiðlapistli í Fréttablaðinu á þriðjudaginn. Þrír vitringar á trúarstöðinni Útvarp Saga með endalaust bull, erglesi og pirru, jafnvel firru líka.
Hallur alltaf á uppleið samt orðinn PR meistari Heimstjórnarafmælisins. Hlýtur að vera gott veganesti í almannatengslagiggi að vera nýbúinn að drulla yfir þrjá fjölmiðla. Jakob var með frétt um þetta í DV undir fyrirsögn vikunnar:
Hallur undir Davíð
Ég stakk upp á þessu í spurninguna á blaðsíðu 2 hjá okkur:
Hallur, nú er síðasta stórverkefnið þitt dautt. Hvernig fer með það næsta?
Talaði við Leoncie í gær. Alltaf jafn hress. Þegar hún var búinn að komast að því að ég væri grannur þar sem ég hefði ekki tíma fyrir mat og lifði á Prins Póló bauð hún mér að leika "róna" í myndbandinu sem hún er að fara að gera við ensku útgáfuna á Ást á barnum. Afþakkaði og sé strax eftir því. Smeykur samt við að detta strax í karakter og jafnvel dettaíða í framhaldinu. Sagði henni að ég væri alki en hún er ekki með fordóma gegn svoleiðis fólki þannig að við erum enn á buddyleveli.
Hundurinn hans Drew Carey heldur að Ally McBeal sé bein. Magnað.
Hef aldrei þolað Tom Cruise en hann böggaði mig nánast ekkert í The Last Samurai.
| 22:21 |