»  off record  »  Brestir
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Brestir
Mánudagur, 12. janúar 2004

Flottasta blaðamannagengi íslenskrar fjölmiðlasögu, hið svokallaða Svarta gengi, sem sá um helgarblöð Fréttablaðsins hefur verið leyst upp.

Þegar hefur verið greint frá skyndilegu brotthvarfi Jakobs yfir á DV og í dag tók ég við Innblaði Fréttablaðsins. Þetta eru vitaskuld ótíðindi fyrir fjölmarga aðdáendur mína þar sem ég mun skrifa miklu minna framvegis. Plöggarar alls konar munu þó ef að líkum lætur verða enn hrifnari af mér.
Guðmundur fær að halda Kollu og reyna að halda uppi merkjum Svartstakkanna (Villi sem leysir Billa af sem hirðljósmyndari tók þessa mynd af okkur síðasta daginn í Suðurgötunni en þá lék allt í lyndi þó Jakob virðist átta sig á þeirri vá sem bjó í lofti) með hjálp Björns Þórs úr Dægurmálaútvarpinu og hinum engum líka Hafnfirðingi Kristjáni Hjálmarssyni.
Vér, hinir svörtu, vorum búnir að toppa Sunnudagsblað Moggans í öllum Gallup flokkum nema þeim yngsta 12-19 ára þar sem við erum núna með 33% lestur. Minn aldurshópur var botninn hjá okkur í byrjun en nú erum við með 54% hjá 20-29 ára, 58,1% hjá 30-39 ára, 65,3% hjá 40-49 ára, 68,2% hjá 50-59 ára og toppum svo í öldungadeildinni með 74,6% hjá 60-80 ára og heil 80,7% á laugardögum. Greinilega soldið gamaldags, en góðir.
Held samt að skýringin á lága skorinu hjá þeim yngstu sé einfaldlega sú að mamma og pabbi eru alltaf með Fréttablaðið og skilja Moggann eftir fyrir krakkana, hversu uppbyggilegt sem það svo er.
Fréttablaðið rúlaði til dæmis um helgina með Sverri tattú og litlu fjölskylduna hans, Hallgrím Helgason, Hannes Hólmstein í drottningarviðtali á sunnudaginn (ætli það hafi verið samkvæmt pöntun Jóns Ásgeirs eins og Ragnar Aðalsteinsson um daginn?) og svo Sigurð G. Guðjónsson í dag.

Það er alltaf eitthvað í Fréttablaðinu.

Nennesseggi. Tek Ingva Hrafn og Hall fyrir næst. Laglega tjónaðir gaurar.


| 21:50 |
komment

Minn kæri Tóts; þetta verður topp innblað hjá þér hjá þér innan fárra daga; hefur hörku fólk eins og Svanborgu sem ætti að fara að blómstra hjá þér hvað úr hverju sem aldrei fyrr. Og svo færðu sæta og elskulega stelpu til viðbótar innan tíðar.
Geri mér samt ljóst að það er sjónarsviptir af okkur Þóru Karitas og veit að við hefðum slegið öllum Eir eintökum við í þannig tími. En þeir bestu geta ekki endalaust troðið á tærnar á hvert öðru svo vel fari.
Væri samt alveg til í að vera í tíminu þínu ef ég væri ekki þar sem ég er. Þannig er nú það elsku kallinn minn,
Baráttukveðja frá Beggu

Nr. 1 | Begga | 12.01.2004 | 23:34:32 | [+] |

Hvað er Innblað Fréttablaðsins? Þetta er allt í einni samfellu fyrir okkur sem lesum það sem pdf skjöl.

Nr. 2 | Organistinn | 13.01.2004 | 0:31:11 | [+] |

Djöfull er ég hrifinn af svona svörtum náungum. Eigiði ekki Blues Brothers gleraugu í stíl?

Annars er þessi mynd dæmi um hversu villandi hugmyndir maður gerir sér yfirleitt um karaktera út frá rödd eða myndum. Þið Guðmundur lítið út eins og upprennandi mafíósar sem eigið bara lokaprófið eftir, en Jakob er eins og kórdrengur á svipinn. Svo þegar maður les textann hans á press.is þá sér maður að þetta er hreinræktað villidýr.

Hvenær færðu Bakþankana Tóti?

Nr. 3 | AlanHudson | 13.01.2004 | 5:54:45 | [+] |

Minn kæri Tóti - Svartur litur fer mér ekki og því kemst ég seint í eitthvert svart gengi - enda er það ekki litur til að lífga upp á tilveruna. En við eigum eflaust eftir að gera stóra hluti með þetta blessaða innblað, djöst vats ðis speis! ;)

Nr. 4 | Svanborg | 13.01.2004 | 17:03:30 | [+] |

Lífið er svart það er nú málið! og þá passar vel að vera í svörtu. Ég fílaþað sem er svart svart kaffi, svartan bacardi og svört föt. Litaglat fólk er ljót og leiðinlegt Það er svona fólk sem er alltaf að brosa en það á nú að skjóta svoleiðis lið sjáið bara þetta bros fífl í Idol!!!!!!

Nr. 5 | óli v. | 17.01.2004 | 12:12:56 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff