»  off record  »  Ég er svo meinstrím
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Ég er svo meinstrím
Laugardagur, 03. janúar 2004

Toti.gifJæja, eftir Fréttir Stöðvar 2 í gær veit víst alþjóð að ég hef ekkert betra að gera í vinnunni en glápa út í loftið og sveifla hedaphone snúrunni minni. Annars var ég nú bara að þykjast vera upptekinn til þess að vera ekki látinn sverja Jón Ásgeir af mér on national television.

Jakob var því miður upptekinn í símanum og þjóðin varð því af hans áliti sem er sko ekkert slor. Egill ætti að fá Jakob og Ástu Möller í Silfrið til að ræða áhrif eigenda fjölmiðla á blaðamenn.
Gummi er búinn að sverja Skaupið af sér og eftir að hann útlistaði hugmyndir sínar, sem komust ekki að, fyrir mér er deginum ljósara að áhrif hans á Skaupið voru lítil sem enginn. Jamms, þetta var sem sagt rusl.

Dómurinn um Kaldaljós er kominn. Hef ekki enn nennt að skrifa um Looney Tunes þó mér beri alltaf siðferðisleg skylda til að hrósa Daffy. Ég gef Kaldaljósinu 4 stjörnur og játa fúslega að ég fór að hágrenja í lokin. Heldur finnst mér samt Mogginn gera lítið úr þessari prýðisgóðu mynd. 3,5 stjörnur þegar Opinberun Hannesar fær 3, þetta eru sem sagt svipaðar myndir að gæðum?
Fyndnu kallarnir í vinnunni telja Opinberunina vera mynd í algerum sérflokki, svokölluðum K-flokki en slíkar myndir hafa allt yfirbragð klámmynda, vondan leik, lélegt hljóð, skelfilega tónlist og engan söguþráð. Það eina sem vantar er klámið.

Ferlega er ég að verða meinstrím með aldrinum. Það sést best á þessum lista mínum yfir 10 bestu bíómyndir síðasta árs. Nú bíð ég bara eftir að Organistinn, Loki, Hudson og TC slátri mér fyrir að vera með 5 myndir af lista Stebbafr. á mínum. Ávísun á einhverjar kenningar um andleg tengsl mín og björtustu vonar Sjálfstæðisflokksins á blogginu.

Tótalistinn 2003

1. Kill Bill vol. 1
2. The Lord of the Rings: The Return of the King
3. 28 Days Later
4. Mystic River
5. Bowling For Columbine
6. Nói albínói
7. Lilya 4-Ever
8. Finding Nemo
9. The Pirates of the Carribean
10. The Hulk

5 verstu myndir ársins 2003

A Man Apart
Daredevil
Johnny English
Legally Blonde 2
Tomb Raider 2

Mausi litli og Þráinn stóðu vörð um heiður Fréttablaðsins og til þess að tryggja nú að það yrði almennileg beidd í þessu fékk ég Hulla til að birta sinn lista líka enda finnst mér Hullboy ferskasti og hressilegasti gagnrýnandinn í bænum. Gott hjá Hulla og Bigga báðum að setja Chigaco á svarta listann. Þvottekta dæmi um geðsýki Óskarsverðlaunaakademíunnar.

Talandi um Hulla þá finnst mér bókin hans, Drepið okkur , ekki hafa fengið verðskuldaða athygli í fjölmiðlum. Frábær bók sem allir ættu að kaupa og þeir sem eiga ekki fyrri bókina, Elskið okkur , ættu svo að hugsa sinn gang alvarlega. Hulli er soldið veikur en ofsalega fyndinn og sniðugur. Þeir sem misstu af viðtalinu mínu við hann í Fbl. geta nálgast það hér.

Ég hef þurft að verja Kill Bill í fyrsta sætinu en þó ROTK sé stórfengleg þá bakka ég ekki. Kill Bill er mynd síðasta árs. Það er ekkert flóknara. 28 Days Later er, eins og horror almennt, vanmetin en ég vek athygli á að Hulli setur Cabin Fever á sinn Topp 10. Gott hjá honum.
Þá er það mikill áfellisdómur yfir Daredevil að við myndasögunördarnir þrír setjum hana alla á lista yfir verstu myndirnar.

Meiri Elektru - Minni Affleck!


| 22:10 |
komment

Ég var dálítið hissa að Lost in Translation komst ekki á neinn lista hjá Fbl-mönnum. Hún er númer 1 bæði hjá Organistanum og Stefáni Snævarr (held ég). Fellur hún ekki að íslenskum smekk?

Nr. 1 | organistinn | 4.01.2004 | 1:27:04 | [+] |

Ég þarf að fara að lesa bloggið hans Stebba - hann hefur ekki bara kópíerað þinn lista?

Nr. 2 | AlanHudson | 4.01.2004 | 2:02:26 | [+] |

Hún var nú framleidd 2002, en Hable con ella undir stjórn Almodóvar sá ég snemma í vor. Varð hugfanginn. Hef annars andskotakornið ekki haft tíma fyrir kvikmyndir á liðnu ári.
Mystic River stendur annars upp úr.

Nr. 3 | Tony Clifton | 4.01.2004 | 8:27:37 | [+] |

Nei, Tony, hún var 2003. Sá að Elvis Mitcell og Stephen Holden frá NYT settu hana #6 og #5, respectively.

Nr. 4 | Organistinn | 4.01.2004 | 11:47:54 | [+] |

Organistinn!

Eru nokkuð með urlið á þessar síður hjá NYT, ég finn þetta ekki. Væri gaman að lesa listann, því ég er sjálfsagt að gleyma einhverju, hef séð meira ein tvær bíómyndir í ár.

Fannst reyndar "Confessions of a dangerous mind" hrútleiðinleg, sennilega vegna þess að það var of mikill "Wild Bill" (úr The Green Mile) yfir Sam Rockwell.

Ohh, volare!

tc

Nr. 5 | Tony Clifton | 4.01.2004 | 17:17:06 | [+] |

Það er allt í lagi að henda mynd Wolfgang Becker's "Goodbye Lenin" inná listann. Fín blanda af nóstalgíu og pólitískri satíru. Hún birtist sjálfsagt í einhverju íslensku kvikmyndahúsi bráðlega eða á komandi kvikmyndahátíð. "Matrix Reloaded & Revolutions" ásamt "Kill Bill" voru svona klassísk "hype" dæmi. Annars var fólk mest hrifið af "Bloody Sunday", "Adaptation" og "24 hour party people" hérna.

Nr. 6 | Refurinn Loki | 5.01.2004 | 9:41:09 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff