Miðvikudagur, 28. janúar 2004
Lagði lykkju á leið mína út í strætóskýli í morgun til að kaupa Kók á bensínstöðinni og missti fyrir vikið af númer 6. Allt of taugaveikluð týpa til að standa í skýli í 15-20 mínútur og lesa Fréttablaðið þannig að ég arkaði í átt að Bóksölu stúdenta til að taka einn af hundraðogeitthvað hraðvögnunum.
Beið þar hálfa sígarettu eftir 115 en akkúrat þegar vagninn mætti kom Mausi hlaupandi og það fyrsta sem mætti okkur í vagninum var Svanborg að lesa í bók. Vantaði bara Guðstein og þá hefði deildin mín öll verið mætt og við hefðum getað afgreitt morgunfundinn.
Í staðinn fórum við yfir það sem hefði mátt betur fara í blaðinu sem ég var með í Jurassic Park 3 töskunni minni og ræddum sársaukann sem fylgir því þegar auglýsingar ryðja efni af síðum. Blaðamenn og auglýsingasalar þrífast illa í sambúð, en þetta er svolítið eins og hjá venjulegum hjónum. Hvorugt getur án hins verið. Lífið er asnalegt.
| 22:01 |