»  off record  »  Hustler í allar lúgur
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Hustler í allar lúgur
Miðvikudagur, 07. janúar 2004

hustler.jpgDoddsson var í banastuði hjá Ingva Hrafni í dag og hraunaði yfir Fréttablaðið. Hann er alltaf jafn skemmtilegur þó það sé stöðugt að verða erfiðara að skilja hann.
Fréttablaðið er að hans sögn rekið með "handstýrðum auglýsingum"? Enginn úr auglýsingabransanum, sem ég hef talað við í dag, kannast við hugtakið sem er því væntanlega nýtt orð yfir það val auglýsenda að vekja á sér athygli í útbreiddum miðlum.

Þá fullyrti Davíð að lestur Fréttablaðsins væri í raun alls ekki jafn mikill og hann er í raun og veru og blaðamenn þar komist upp með óvönduð vinnubrögð og geti skrifað hvaða þvælu sem er þar sem aðhaldið frá lesendum er ekkert, enda blaðinu "troðið inn um allar lúgur" á landinu á hverjum degi.
Það les semsagt enginn Fréttablaðið ótilneyddur af því að það er ókeypis? Nú kannast sjálfsagt flestir við það að hafa hent ógrynni auglýsingapésa ólesnum í tunnuna enda ekkert þar á ferðinni nema auglýsingar (ef til vill ekki handstýrðar). Þessir bæklingar mælast líka frekar illa í lestrarkönnunum Gallup, ólíkt Frétablaðinu sem hefur verið í stöðugri sókn síðasta árið.
Fólk les nefnilega ekkert frekar það sem kemur ókeypis inn um bréfalúgunua hjá því bara vegna þess að það er ókeypis. Það þarf eitthvað meira til. Segjum til dæmis að óprúttnir aðilar tækju upp á því að bera klámblaðið Hustler ókeypis heim til biskupsins, forsetans, forsætisráðherra og Gunnars í Krossinum mánaðarlega. Þeir myndu varla leggjast svo lágt að fletta sorpriti Larrys Flint, eða hvað?
Þeir myndu líklega frekar bara henda því og ekki láta þess getið í Dagbókarkönnunum Gallup að þeir hefðu farið höndum um sorann.
Fréttablaðið er því ólíkt Hustler og auglýsingabæklingum að þessu leyti og lesendur veita blaðamönnum þess víst aðhald og þess vegna held ég mig meira að segja innan velsæmismarka þó það geti oft verið erfitt fyrir rætið kvikindi að sitja á strák sínum.


| 21:02 |
komment

getur maður þá hringt í fréttablaðið og pantað hustler í staðinn fyrir fréttablaðið? það væru góð skipti!

Nr. 1 | klámhundur | 8.01.2004 | 13:48:08 | [+] |

Hvaða rugl er þetta? Það er alveg hægt að rífa ó hann yfir fréttablaðinu!! Prófið bara næst þegar þið lesið skoðanir Gunnars Smára ;o)

Nr. 2 | óli | 10.01.2004 | 9:21:53 | [+] |

Þetta átti að vera í en ekki ó! er soddan klaufi á þetta helvítis tölvudrasl

Nr. 3 | óli | 10.01.2004 | 9:35:32 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff