Miðvikudagur, 21. janúar 2004
thehun.com er algengasta leitarorðið sem glepur fólki inn á BadaBing! Hvaða rugl er nú það. Hver leitar að Húninum í leitarvél? Nafnið eitt vísar á allt klámið. Leoncie stórvinkona mín er í 2. og 3. sæti en klám.is fylgir í kjölfarið.
ogvodafon er í fimmta, Idol í sjötta og Stöð 2 í sjöunda.
Dorrit Moussaieff í níunda og Harry Potter í því tíunda.
Badabing kemur nýtt inn á listann í 11 sæti en stebbifr hrapar af toppnum niður í 15. opinberun hannesar er í 17. sæti og Ísland í dag og Kaldaljós reka lestina.
BadaBing er einhverra hluta vegna mikið sóttur af vefþjónum Alþingis og Stöðvar 2 og heimsóknir frá Íslandi eru í stórsókn, komnar úr 56% af kökunni í 65%. Útlagarnir í hirðinni eru sennilega dauðir.
Allt skiptir þetta engu máli en skúbbin verða víst að fá að birtast í Fréttablaðinu. Held bara áfram að lesa Skuggasjónaukann. Þessi þríleikur Pullmans er frábært stöff, eiginlega fullorðins og toppar Harry Potter algerlega. Ekki spillir fyrir að kirkjan, svonefnt almætti og allt þess hyski er í vonda liðinu. Þessar bækur rista djúpt og munu að öllum líkindum spara mér fermingu eftir 2 ár þar sem andúð dóttur minnar á skylduáskriftartrúnni fer stöðugt vaxandi. Það er auðvitað ekki bara vegna þessara bóka. Barnið er skynsamt og hefur efast frá því það byrjaði að hugsa og tjá sig með orðum.
| 23:52 |