»  off record  »  Innihaldslaust hjal
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Innihaldslaust hjal
Þriðjudagur, 06. janúar 2004

M.gif... eða týpískt blogg öllu heldur

6 mánaða edrúammæli í dag. Magnaður andskoti. Hélt upp á tímamótin í Nexus með því að kaupa Sin City (það má endalaust lesa sér til ánægju um það þegar Marv hefnir, Goldie, hórunnar með gullhjartað, með því að drepa beisikklí fokking evríboddí) og drakk svo kaffibollana tvo á Ljóta andarunganum.

Þessi tvö fyrirtæki ættu að fara að sponsa þennan vef og Tveggja spora kerfi Tóta. Ákvað að dagurinn í dag væri rétti dagurinn til að hætta að reykja. Reykti þá síðustu yfir seinni bollanum. Djöfull eru bláar Camel rosalega góðar sígarettur (sú mí). Það eina sem hægt hefur verið að reykja síðan tjörumagnið var minnkað í rauðum Winston. Þær voru nú alltaf bestar.
Nú er bara að búa sig undir þunglyndið og sjálfsmorðshugleiðingarnar sem fylgja söknuðinum og tómleikanum sem blossa upp eftir að maður drepur í þeirri síðustu. Eníveis, á leiðinni niður Laugaveginn sá ég tvær fyllibyttur. Annar skreið á meðan hinn hvatti hann áfram með reiðiöskrum. Ekki svo galið að vera sóber eftir allt saman.


| 22:20 |
komment

Tóti minn; til hamingju með að gera tilraun til að hætta að reykja; vona sannarlega að þér gangi betur en mér sem legið hef í lungabólgu og hreint ekki getað reykt. Hef þó skjögrað fram annað slagið og kveikt í; reykt einn smók og kafnað síðan í hósta. Það hefur ekki breytt því að ég hef reynt aftur og aftur án árangurs: Auk þess þykja mér þær vondar en merkilegt nokk; ég geri alltaf aðra tilraun.
Nú á fimmta degi lungnabólgu get ég komið oní mig smávegis af reyk þegar líða tekur á daginn með því að anda að mér gufu áður og eftir. Sjaldan lent í örðum eins hremmingum með smókinn og segi í hvert sinn "Ég get þetta ekki, nú er ég hætt." Kemur fyrir ekki. Það nýjasta er að reyna að pína oní mig þar til þann 8. á afmæli Röggu en þá er meiningin að nota tækifærið og hætta. Mikill djöf... aumingi er maður nú.
Vona a þetta takist hjá þér en þú getur samt komið út og kjaftað annað slagið er það ekki?

Nr. 1 | Begga | 7.01.2004 | 0:21:20 | [+] |

Til hamingju með daginn. Þarna misstum við brennivínsberserkirnir góðan félaga. Verra þykir mér ef þú ætlar að svíkja reykingarmennina líka. Begga mín, hefði ég vitað af þessu fyrr þá væri ég löngu kominn í heimsókn með sítrónute. Góðan bata!

Nr. 2 | Ingólfur | 7.01.2004 | 10:56:00 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff