Fimmtudagur, 08. janúar 2004
Hórumorðinginn Kobbi kviðrista starfaði í Lúndúnaþokunni rétt fyrir aldamótin 1900. Á Íslandi í dag starfar blaðamaðurinn Kobbi kjölfesta og er að öllum líkindum eini kjölfestublaðamaðurinn á Íslandi.
Ég hef auðvitað vitað það lengi að vinur minn og vopnabróðir, Jakob Bjarnar Grétarsson, er enginn venjulegur blaðamaður en gerði mér ekki grein fyrir að hann væri kjölfestublaðamaður fyrr en hin geðþekki rannsóknarblaðamaður, Reynir Traustason, benti mér á þessa augljósu staðreynd.
Jakob var einu sinni fréttastjóri Alþýðublaðsins á gullaldarárum þess þegar Hrafn sjálfur ritstýrði blaðinu og Kolla gaf bókmenntaverkum
Hann hefur þar fyrir utan starfað á flestum uppáhaldsblöðunum mínum í gegnum tíðina sem eiga það öll sameiginlegt að hafa verið sett á laggirnar af Gunnari Smára Egilssyni. Lausleg athugun okkar Jakobs á Úrklippubókunum mínum bendir til þess að Kobbi hafi skrifað um 55% af ölu sem ég hef safnað saman í gegnum árin.
Jakob kom til liðs við Fréttablaðið í desember 2002 og skömmu síðar fór blaðið að taka þessi feykilegu heljarstökk upp á við í lestrarkönnunum Gallup. Það þarf auðvitað að skoða þetta í sögulegu samhengi til að átta sig á þætti Jakobs en þarna kemur kjölfestueðli hans skýrt fram og það þarf því engan að undra að Jakob hafi verið skúbbað yfir á DV sem vantaði tilfinnanlega kjölfestu. Það eru því góðir tímar fram undan hjá Mikka og Illuga eftir að þeir eru fengu kjölfestu.
Ég og RT sitjum eftir bitrir og afbrýðisamir með okkar 90.000 lesendur og hugsum Kobba kjölfestu þegjandi þörfina. Það er hins vegar svo gaman hjá honum að hann er farinn að missa það út úr sér á mjög freudískum forsendum að það sé svo miklu skemmtilegra að vinna á Alþýðublaðinu en Fréttablaðinu. Þetta segir sjálfsagt meira en 1000 orð um stemninguna á DV.
Talandi um Jakob er ekki úr vegi að minna á útvarpsþátt Kobba kjölfestu og Steins Ármanns á Skonrokki á laugardagsmorgnum. Jakob gæti hæglega orðið kjölfesta Norðurljósa líka og það er vel þess virði að rífa sig upp klukkan 09.00 á laugardögum og hlusta á King Kong. Þeir voru bestir í denn og eru það enn.
Dr. Gunni og Sigurjón Kjartansson eru með næst besta útvarpsþátt landsins alla virka morgna milli eitthvað og eitthvað. Ég frétti að þeir hefðu verið með Pál Ásgeir í spjalli um daginn og rætt við hann bæði sem fyrrum meint handbendi Óla Björns og ekki síst sem bloggara. Ég geri því ráð fyrir að King Kong kalli mig fljótlega til sem bloggálitsgjafa hjá sér enda fæ ég ekki séð í fljótu bragði að neinn annar standist kröfur þeirra.
PÁÁ er samt auðvitað hörkubloggari og allir áhugamenn um fjölmiðla og blaðamennsku ættu að fylgjast með kauða. Sá því haldið fram á einhverju bloggi að PÁÁ væri umsjónarmaður Helgarblaðs DV. Ekki veit ég hvort hann er að fíla þann misskilning en heimskingjum er hér með tjáð að hann sá um Helgarblað dauða DéVaffs.
PÁÁ sagði Uppvakningunum að hann læsi helst blogg Tótu pönk, Tóta Leifs og BadaBing. PÁÁ, Tóta og Tóti eru öll í Skjallbandalaginu hér til hliðar og eru ásamt mér vitaskuld bestu bloggararnir. Við erum svo góð að við erum eiginlega kjölfestubloggarar. Það eina sem gæti raskað þessu jafnvægi væri helst ef EIR léti undan þrýstingi mínum og byrjaði að blogga. Það yrði magnað.
Talandi um Skjallbandalagið þá er hin eitursnjalla eiginkona hans Totil, Auður Jónsdóttir, aftur byrjuð að blogga en kallinn hefur verið voða grand á því við hana og uppfært síðuna hennar með glæsibrag. Auja er auðvitað í elítunni og ætti að vera löngu komin í Skjallbandalagið. Þetta er feill sem skrifast á mig og verður leiðrétt med det samme.
Oj, hvað þetta sjálfshól, vina-, kunningja- og kjölfestumærðarhjal er orðið langt og leiðinlegt. Læt því Hannesar Hólmsteins færsluna bíða til morguns en HHG er bara helvíti seigur í málsvörninni. Sverrir Múrari er alveg með essensið í þessu hjá honum á hreinu. Hann svarar efnislega og er bara eiginlega málefnalegur og það er magnað. Go Hannes! Þetta er samt varla búið enn.
| 20:44 |