Föstudagur, 09. janúar 2004
Már bendir á undarlega stemningu sem skapast hefur í kringum Opinberun Hannesar og vekur athygli á því að ég hafi veigrað mér við að dæma verkið með því að segja "pass".
Það er vissulega rétt að ég bloggaði strax um það að ég nennti ekki að fjalla efnislega um myndina en benti á að þeim sem það ætluðu að gera bæri að "slátra" myndinni. Síðan þá hef ég lýst því yfir í Ísland í dag að Sæbjörn Valdimarsson hafi rústað stjörnukerfi Moggans með gölnum þriggja stjörnu dómi sínum um myndina. Þá hef ég einnig flokkað myndina sem K-mynd, eða klámmynd án klámsins.
Ég hef ekki lagt í að skrifa bíógagnrýni um myndina þar sem ég efast um að hún sé í raun bíómynd, þó Kvikmyndasjóður (RIP) hafi styrkt hana. Þar erum við Hrafn sammála þar sem hann segir í DV að hann búist ekki við að fólk fari að sjá myndina í bíó.
Þá hef ég ekki heldur séð ástæðu til að skrifa sjónvarpspistil um Opinberun Hannesar þar sem það má einnig draga í efa að um sjónvarpsmynd sé að ræða þó RÚV hafi styrkt gerð hennar. Fjallaði að vísu um frábæran Kastljóssþátt þar sem Hrafn varði gjörðir sínar meistaralega.
Valur á DV hefur fjallað um Opinberunina og var svo raunsnarlegur að hann gaf henni 1 stjörnu sem er í sjálfu sér réttlætanlegt þar sem hún var ekki alvond (Helga Braga var nú í henni oghún er stjarna).
Hvað hræðslu mína við Hrafn Gunnlaugsson bendi ég sem fyrr á umfjöllun mína um Myrkrahöfðingjann og sú staðreynd að ég þori að vinna á Fréttablaðinu segir svo allt sem segja þarf um ótta minn við höfund smásögunnar sem Opinberun Hannesar byggir á.
Breyti í spaða!
Enn um vini Davíðs. Hannes Hólmsteinn opinberaði (nýtt tískuorð) greinargerð sína í gær og var bara nokkuð málefnalegur. Missti sig svo aðeins í Kastljósinu og meint aðför að honum varð svolítið áberandi, ekki síst þar sem veist var að honum fjarstöddum. Hann telur sig hafa lagt öll spilin á borðið en fór nú samt soldið loðið í kringum þetta þannig að málinu er síður en svo lokið. Ég trúi því heldur ekki að Helga Kress muni sitja þegjandi undir ásökunum Hannesar um hroðvirknisleg vinnubrögð og fljótfærni (er þetta ekki komið í hring?)
JR Ewing sagði einhvern tíma að enginn berðist jafnt ákaft og sært dýr í sjálfheldu og Hannes hefur í það minnsta sjaldan verið skemmtilegri en í Sjónvarpinu í gær. Ég hef hann grunaðan um að hafa gaman að þessu öllu saman. Kristján og Svanhildur voru helvíti ströng við hann en Hannes lék hlutverk fórnarlambsins af stakri snilld og vildi fá að verja sig á sinn hátt. Stuðaði Læðuna greinilega og nú er lýðnum það ljóst að hún er aldrei jafn foxý og þegar hún er reið.
Málverjavitringarnir eru farnir að myndast við að hafa vit á bókmenntafræði og einn þeirra rifjar upp ársgamla grein Dagnýjar Kristjánsdóttur um Auga Saurons sem píku og vill þannig sýna fram á heimsku bókmenntafræðinga. Þeir sem vilja kynna sér píkupælinguna betur geta skoðað færslu mína um málið.
Djöfull var ég góður á meðan ég var í neyslu!
| 18:20 |