Svona er Ísland í dag...
Mánudagur, 05. janúar 2004
Það er búið að skamma mig fyrir að hafa verið vondur við Hrafn Gunnlaugsson í Íslandi í dag áðan. Mér fannst nú Hrafn sleppa helvíti vel enda gafst hvorki tími né ráðrúm til að taka Opinberunina almennilega í gegn. Ég hafði meira að segja hugsað mér að koma Davíð til bjargar og benda á að þessi loðmulla hans Hrafns á lítið skilt með smásögunni þannig að það er ástæðulaust að vera að kenna hæstvirtum forsætisráðherra um floppið. Honum væri auðvitað hollast að púlla Gumma og afneita heila klabbinu.
Þetta var fyrsta almennilega beina útsendingin mín og ég er miklu ánægðari með útkomuna en þegar Brynja X lét mig tala um Stallone í Panorama. Þá var Fjölnir líka með og hver stenst samanburð við hann?
Þórhallur var svalur í dag og er greinilega búinn að fyrirgefa mér úttektina á metrósexúalmönnunum og Jóhanna er sætari in the flesh en á skjánum. Þannig er Ísland í dag.
Alltaf gaman í sminkinu og svo fær maður bleikt BabyWipes on the house til að skafa klístrið framan úr sér.
Síamstvíburarnir Tóti og Jakob Bjarnar voru aðskildir með sársaukafullri aðgerð í dag. Mér finnst mér hvorki heill né hálfur maður en DV nýtur hins vegar góðs af skilnaðinum en þar mun Mobbi láta til sín taka frá og með morgundeginum.
It was fun while it lasted.
| 21:53 |