»  off record  »  ...what separates the two is The Doors
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
...what separates the two is The Doors
Þriðjudagur, 27. janúar 2004

Geimflaugin Challenger sprakk á morgun árið 1986. Þá detta mér í hug Challenger brandararnir sem tröllriðu öllu í den.

Do you know what NASA stands for? Need Another Seven Astronauts.

Do you know where Christa McAuliffie is vacationing this summer? All over Florida!

Hvað gerði Christu McAuliffie að svona góðum kennara? Hún sprakk bara einu sinni fyrir framan bekkinn sinn.

Svona var nú húmorinn í den með slatta af Eþíópíubröndurum í bland.

Allir eru að pæla í þessum Óskarsverðlaunatilnefningum og gleyma því um leið að þessu markaðsverðlaun eru enginn mælikvarði á gæði kvikmynda yfirleitt.

Alltaf gaman samt þegar Tom Cruise fær ekki tilnefningu. Hatann. Minn heittelskaði Johnny Depp átti fyllilega inni fyrir sinni tilnefningu, rétt eins og Sean Penn sem á að vinna ef eitthvað réttlæti er til í þessum skítabransa.
Bjánarnir í Akademíunni gengu fram hjá Nóa albínóa, það er þeirra mál. LOTR ætti auðvitað að hirða allt draslið í sínum 11 kategóríum en ég treysti ekki þessi þjóðernissinnaða skítapakki og læt mér ekki bregða þó myndin verði sniðgengin í öllum helstu flokkum. Fæ heldur ekki alveg skilið hvers vegna enginn leikari úr ROTK var tilnefndur? Alltaf gaman að þessu Óskarsdóti samt.

Sennilega hef eg brotið mannorð mitt í mél með því að viðurkenna það í 90 000 eintökum að ég fíla 70 mínútur en eins og Hafliði benti mér á þá er það hluti af prógramminu að horfast í augu við veikleika sína og viðurkenna þá og þessir gaurar eru bara fyndnir.

Hjördís hitti einhvern gaur um helgina sem er óhress með bíóumfjöllun mína og dagblaða yfirleitt, skildist mér. Hann vill meiri greiningu. Ekki kannski alveg það sem hinn almenni lesandi er að leita að. Þá keypti hann ekki afsökunina um plássleysið en málum er nú bara þannig háttað í Fbl að bíóumsögnum er gefið ca. 12 dálksentimetra pláss. Því verður ekki breytt. Við munum þó eflast til muna í bíóskrifunum þar sem Kristófer Dignus er genginn til liðs við mig og Bigga. Þá ætlum við að gera skurk í comix umfjöllun, Biggi, ég og hinn eini sanni Hulli. Spái miklu stuði á næstunni.
Fann engar kvikmyndagreiningar á harða disknum mínum en þessar glósur um Psycho, bók og mynd, frá því ég var í hryllingskúrsinum hjá Guðna í bókmenntafræðinni ættu að gefa góða mynd af því hversu greiningar eru dagblaðavænt efni. Sé alveg Jóa á bolnum í úthverfunum nenna að lesa þetta.
Þórlindur benti mér á það fyrir löngu síðan að það vantaði tengil á Deigluna frá BadaBing! Nokkuð til í þessu en ég þarf aðeins að vinna meira í sjálfum mér áður en ég tengi á hægrisinnaðan vef. Deiglan er samt til fyrirmyndar og gaman að nasistagreininni þar.

Djöfladýrkendur eru meinlausir vegna þess að þeir eru fífl.
Kristnir bókstafstrúarmenn í sértrúarsöfnuðum eru stórhættulegir þó þeir séu fífl.
Veit ekki með íslenska rasista. Fífl deffinetlý. Hættulegir? Veitiggi.


| 21:33 |
komment

Hvað ertu að skæla yfir Nóa albínóa? Þetta var vitavonlaus mynd, persónuuppbygging nonexistent og sagan tilgangslaus. Var boðskapur í myndinni? Manni var svo skítsama um allar sögupersónur að trúlega hefði verið best að ALLIR hefðu drepist í myndinni. Þá hefði a.m.k. verið hægt að flissa að þessu og með góðum vilja sjá út einhverja ádeilu á almættið og pælingar um tilgangsleysi tilverunnar. Maður hélt, af því hvað allir voru upprifnir, að maður væri að fara að sjá góða mynd, en svo sökkaði hún bara!

Nr. 1 | Foli | 28.01.2004 | 8:18:57 | [+] |

Þegar svarti kassinn úr Challenger fannst hlustuðu menn á síðustu orðaskiptin:

Christa McAuliffe: Hvaða takki er þetta?

Nr. 2 | PÁÁ | 28.01.2004 | 9:34:46 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff