Föstudagur, 20. febrúar 2004
Dýpt þessarar færslu hér fyrir neðan er slík að enginn nær henni nema Tóta pönk. Þó Jack Torrance í The Shining hafi vissulega verið alki þá var ég ekki að senda út dulin skilaboð um að ég væri fallinn, hefði ekki tíma til þess falla ef ég kærði mig yfirleitt um það.
Fann samt smá glufu til þess að kíkja á frumsýninguna á Draugalest eftir Jón Atla á miðvikudaginn. Skemmtileg hugmynd og flott umgjörð utan um leikrit. Þetta er svona AA fundur án þess að það komi hvergi beinlínis fram og þar sem fíklar eru ekki nema svona í það mesta 15 steríótýpur kannaðist maður ansi vel við persónurnar fjórar; hef verið á fundum með einhverjum þeirra, unnið með öðrum og kannski var eitthvað af sjálfum manni í þeim líka. Þetta hefði samt ekki mátt vera mínútu lengra þá hefði þetta farið að verða þreytandi. Fundarlengd í rauntíma hefði verið kúl.
Jón Atli er helvíti klár. Hef vitað það alveg frá því ég hlustaði á hann á gömlu Aðalstöðinni á meðan ég beið eftir Páli Óskari og afgreiddi leiðinlega viðskiptavini á bensínstöðinni.
Hvaða grín er þessi kynþokkafulla kosning á Rás 2 eiginlega að verða? Þetta er auðvitað practically fegurðarsamkeppni starfsmanna RÚV þannig að mér er fyrirmunað að skila hvað veldur því að Ellý Ármanns kemst ekki á lista. Við eigum rosalega margar góðar myndir af henni niðri á blaði og ljósmyndararnir slást um að fá að mynda hana þegar tilefni gefast. Ljósmyndarar vita allt sem hægt er að vita um kynþokka. Ellý ætti auðvitað að vera á toppnum.
Við í aðdáendaklúbbi Ellýar munum að öllum líkindum mótmæla þessu kröftuglega og misnota alla fjölmiðla Baugs í þeim tilgangi.
Ellý og kynþokki eru óaðskiljanleg hugtök sem sést best á því að hún getur gert kynningu á hvaða ömurlega dagskrárefni sem er sexí. Ég er ósáttur við þennan lista. Jóhanna Vilhjálms er samt alveg málið. Hún er helvíti foxý þegar hún hjólar í viðmælendur sína.
| 23:39 |