»  off record  »  Ég læt sem ég vaki...
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Ég læt sem ég vaki...
Sunnudagur, 29. febrúar 2004

... en samt mun ég sofa.

Ég var búinn að ákveða að vaka yfir Óskarnum í kvöld og jafnvel lýsa athöfninni beint eins og ég gerði hérna í fyrra og á Strik.is árið 2001. Alan Hudson var með mér í anda og á kommentunum í fyrra og það hefði verið gaman að endurtaka leikinn. Þá var ég líka spenntur fyrir því að prufa þetta án þess að hafa tvær bjórkippur við hendina. Það hefði verið alveg nýtt.

Spáði fyrir um niðurstöðuna fyrir Óskarsgrein Kollu í blaðinu í dag en það er auðvitað ekkert hægt að spá fyrir um það hvernig þessi della fer.
Eníveis þá þufti ég að hanga í vinnunni fram eftir kvöldi og klukkustundirnar sem ég ætlaði að nota til að leggja mig fyrir Óskar fóru í að skirfa blað morgundagsins. Ég skilaði 261:43 vinnustundum í þessum stutta mánuði en mér skilst að það samsvari því að ég vinni 6,5 vinnuvikur á mánuði. Það er eitthvað að.

Dreif mig á bókamarkaðinn í Perlunni í gær. Ég er vanur að fara í lokin þegar ekkert er eftir en ákvað að tékka á þessu núna þegar allt væri stappað. Fann svo sem ekki mikið en kippti þó með mér Játningasögu Ísaks Harðarsonar, Þú sem ert á himnum... Þú ert hér!, á 480 kall. Ísak er uppáhaldsskáldið mitt en samt held ég að ég hafi keypt allar bækurnar hans á útsölum eða bókamörkuðum. Kippti líka með mér, bara að gamni, bækur eftir tvo félaga mína í Hróknum, Miklu meira en mest (1299) eftir Hrafn og Óskaslóðina (680) eftir Kristjón Kormák. Gaman að því. Svo gat ég ekki stillt mig um að kippa einum árgangi af Tarzan blöðum (800) með mér. Tók tvo í fyrra en nú var það árgangur 1984 sem varð fyrir valinu. Þetta keypti maður nú allt í áskrift frá Siglufjarðarprentsmiðju þegar maður var krakki og týndi því öllu. Þetta er auðvitað rusl og allar sögurnar eru eins en svona kemst ég í snertingu við barnið í mér. Fann enga Tígulgosa en það var til nóg af Bósa Sögu og klámsögum úr Villta Vestrinu. Þetta er spurning um að skríða undir sæng og lesa Dularfulli dalurinn og Trommur dauðans, eða hella uppá bleksvart og lýsa Óskarnum fyrir sjálfan mig og manninn á bökkum Hudson ár.


| 23:27 |
komment

Þetta er aðdáunarverður dugnaður að hanga svona yfir þessum leiðindum. Átti ekki annars að vera delay á dagskránni til að forða mætti vandræðalegum uppákomum a la Janet Jackson (og kannski ritskoða pólitíska vinningshafa?). Var ræðan hjá Sean Penn nokkuð endaslepp?

Nr. 1 | Óli Kr. | 1.03.2004 | 16:42:43 | [+] |

Æ helvítis. Ég setti kommentið við vitlausa færslu. Skrunaði aðeins of langt. Ætlaði þessu að koma í lok pistilsins um Óskarinn.

Nr. 2 | Óli Kr. | 1.03.2004 | 16:44:16 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff