»  off record  »  Gleymdi brjóstinu
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Gleymdi brjóstinu
Þriðjudagur, 03. febrúar 2004

jan.gifHvernig sem á því stendur gleymdi ég að gera upp við brjóstasýningu Janetar Jackson og Justin Timberlakes í Súper Bowlinu. Það er magnað að augnabliks glimps af brjósti poppstjörnu skuli setja allt á endann en mikið ofboðslega er samt gaman að þessu.

Ritstjórnir tveggja dagblaða lömuðust í gær í tæpar 10 mínútur á meðan helstu stjörnublaðamenn, ljósmyndarar, umbrotsmenn og tölvunördar stóðu á öndinni og biðu fyrir framan sjónvarpið og horfðu á alls konar amerískt treilertrash, Kid Rock og fleiri, gera sig að fíflum þangað til Janest og Justin og brjóstið dundu loks yfir.
Það er eins gott að þetta sé gott hugsaði maður með sér á meðan maður beið og dedlænið færðist nær. Svo gerðist það! Ég sá eiginlega ekki neitt en þetta er ógleymanlegt og ég mun alltaf muna hvar ég var staddur þegar búningurinn hennar Janetar bilaði og brjóstið datt.
Nú er hún bún að viðurkenna að þetta var næstum planað og þá geta fjölmiðlar farið að snúa sér að kjarna málsins. Er það ekta eða sílíkon? Ekta sýnist mér á replay í slo-mo og AP fréttamyndum í brjálaðri upplausn.


| 23:56 |
komment

mér fanst þetta nú ekkert merkilegt brjóst :o)
Enn það er nú skrítið hvað varð mikið mál úr þessu ljóta járna brjósti!!
Kveðja óli
ps farðu nú að koma í kaffi til mín kall!!!!!

Nr. 1 | óli v | 9.02.2004 | 14:59:09 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff