»  off record  »  Konungur sorppressunnar
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Konungur sorppressunnar
Fimmtudagur, 05. febrúar 2004

punisher.gif Jakob F. Ásgeirsson veður elginn í villu og svíma í einu af sínum tíðu æðisköstum í Viðskiptablaðinu (les. gamla DV) og tilnefnir Davíð Þór Jónsson leigupenna Baugsveldisins og gefur síðan "fólk í fréttum" dálkinum í Fréttablaðinu mikinn gaum og enn meira pláss í reiðilestri sínum.

Jakob kallar dálkinn að vísu heyrst hefur eða eitthvað í þá áttina en þetta er semsagt það efni sem ég kýs að kalla "slúður" í óformlegu daglegu tali. Það er auðvitað ekki hægt á prenti þar sem voða mörgum finnst slúður neikvætt og ljótt orð. Mér finnst það sætt og slúður skemmtilegt.
Hvað um það, Jakob lýsir því svo í smáatriðum hvernig Gunnar Smári Egilsson notar þennan efnisþátt til að rógbera menn í liði Davíðs (en samkvæmt Bush skilgreiningunni eru allir sem eru ekki í því liði óvinir Davíðs). Höfundi Viðskiptablaðsins finnst þetta nú vart sæta tíðindum enda uppnefnir hann Smára konung gulu pressunnar og virðist grundvalla þann titil á áður nefndum fólk í fréttum dálki.
Það sem einna helst hefur einkennt skrif Jakobs F. og annarra sem amast hafa sem mest við "Baugstíðindum" á prenti undanfarið er fullkominn vanþekking á öllu sem Fréttablaðinu viðkemur og blaðamennsku yfirleitt, þrátt fyrir að flestir geri þessir tindátar sem mest úr blaðamannsreynslu sinni (sem er auðvitað engin á nútímamælikvarða þar sem þeir voru flestir í einhverju "liði" og skrifuðu í flokksblöð.
Heimildavinna Jakobs er enginn eða í það minnsta brjáluð að þessu sinni þar sem það er enginn annar en sjálfur ég sem hef umsjón með slúðurdálkinum og GSE hefur aldrei, never, ever skipt sér að þessu efni. Hreinlega ekki minnst á fréttir af fólki við mig einu orði þannig að ég veit það manna best að molinn sem ærði óstöðugan Jakob kemur úr allt annarri átt. Þigg hins vegar nafnbótina konungur gulu pressunnar með þökkum, standi hann þeim til boða sem sér um þennan dálk.
Þegar ég tók við þessu efni á sínum tíma hafði ég ákveðnar efasemdir um að ég væri rétti maðurinn, búinn að fá hardcore uppeldi hjá Hrafni J. á Pressan.is og taldi mig vart hæfan til að framleiða efni sem væri prenthæft í 90.000 eintökum og benti á að ég væri siðblindur. Þá kom EIR með það á móti að ég væri sá einni þarna sem væri meðvitaður um eigin siðblindu og því heppilegastur í djobbið.
Það má þó alveg hártogast eitthvað um það hvort þessu moli hefði betur verið látinn liggja óbirtur í bakkanum en Jakob ætti auðvitað að hrekja slúðrið með því að sýna okkur diplómurnar og einkunnarspjöldin sín frekar en að eipa á síðum draugsins af DV undir stjórn Óla Björns.

Talandi um DV og EIR þá nær sá gamli gömlum hæðum í baksíðufréttinni í dag um konuna sem datt undir borð hjá Davíð. Vintage EIR. Hefur ekki verið betri síðan ÓRG datt af baki.


| 21:12 |
komment

Það er gott að þú ætlar ekki að standa við hótanirnar um að hætta að blogga.

Nr. 1 | delmo | 5.02.2004 | 22:35:55 | [+] |

Æ Tóts; vildi að þú værir hinu megin við þilið; gleymi stundum hvað þú ert listavel skrifandi og skynugur og skemmtilegur. Væri ekki amalegt að hafa þig við hlið mér.

Nr. 2 | Begga | 7.02.2004 | 1:39:27 | [+] |

Geisp!

Nr. 3 | Þór | 10.02.2004 | 10:50:10 | [+] |

Geisp!

Nr. 4 | Þór | 10.02.2004 | 10:50:33 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff