»  off record  »  Mellur í jarðarför
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Mellur í jarðarför
Föstudagur, 27. febrúar 2004

Íslenska markaðsfólkið kom saman í dag og klappaði sér á bakið fyrir vel unnin störf í auglýsingagerð. Þeir bestu fengu líka Lúðra. Ég sé það á ársgamalli færslu að ég var ekki viðstaddur þessi ósköp í fyrra en hafði mátt, starfs míns vegna, vera viðstaddur verðlaunin tvö ár í röð. Fullur að vísu en þetta var samt leiðinlegt. Ég prísaði mig sælan að sleppa í dag, annað árið í röð, þangað til ég heyrði í sjónarvotti sem lýsti markaðssviðinu fyrir mér.

Gaui litli hannaði víst sviðsmyndina sem gekk gersamlega fram að markaðsliðinu sem hafði það á tilfinningunni að það væri statt í jarðarför. Ræðupúltið var eins og predikunarstóll í kirkju og á miðju sviðinu var borð undir lúðrana og það minnti mest á líkkistu, skilst mér. Til þess að kóróna þetta allt saman voru einhverjar óþarfar píur, klæddar eins og mellur úr Villta Vestrinu, látnar rétta verðlaunaafhendurunum lúðrana. Allt var þetta svo baðað rauðri birtu þannig að það var eins og útförin færi fram í Helvíti.
Það hlaut að koma að því að það yrði eitthvað varið í þessar athafnir en mér heyrist samt að þessi sviðshönnunum muni varla fá neina lúðra að ári.


| 21:39 |
komment

Vel viðeigandi þegar auglýsingabransinn er annars vegar, fátt meira við hæfi.

Tek undir með þér að í þetta skiptið hefði ég viljað vera þarna, eins óhugnanlega leiðinlegt og hefur verið þarna þegar ég hef mætt.

Nr. 1 | Gunnar | 2.03.2004 | 22:40:46 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff