Fimmtudagur, 12. febrúar 2004
Eftir að hafa horft á þennan bráðskemmtilega breska krimma, State of Play, á RÚV hef ég endanlega komist að því að ég er í rétta starfinu, bara í röngu landi eða jafnvel rangri vídd.
Blaðamennirnir í Bretlandi pæla aldrei í deadlænum, 3-5 bestu blaðamennirnir á ritstjórninni eyða öllum sínum tíma í sömu fréttina, gutla í rauðvíni á fundum, spóka sig um bæinn með fulla vasa fjár og kaupa upplýsingar og það besta af öllu er að þeir skila aldrei inn grein. Aldrei! Blaðamennskan hefur ekki verið jafn mikill lúxus síðan afkastaminnsti blaðamaður sögunnar, Tinni, var og hét.
Það eina sem ég fæ ekki til að ganga upp í þessum fullkomna heimi er það að það á að reka stjörnublaðamanninn fyrir að sofa hjá konu sem tengist fréttinni. Eru blaðamenn allt í einu orðnir prestar, eða kennarar. Hvar stendur það í siðareglunum að blaðamenn megi ekki sofa hjá hverjum sem er? Stéttin væri þá orðin heldur fámenn hérna.
Það væri munur ef þetta væri svona hérna. Ég, Jakob, EIR, RT og GAR gætum sjálfsagt leyst flest óupplýst sakamál á landinu á mánuði ef við nytum þessara starfsskilyrða.
Okkur Gumma greinir samt á um morðið sem sýslumaðurinn játaði á sig á forsíðu DV í dag. Gummi er harður á að þetta sé mafíuhitt en ég veðja á öfgasinnaða umhverfisverndarsinna sem ætla að útrýma starfsmönnum við virkjunina. Mafíumorðin eiga eftir að koma þegar Impreglio kaupir sér vernd af félögum sínum á Sikiley.
Lilja Gnarr smáauglýsingabeib er búin að setja myndir frá Idolkeppni Fbl og DV á vefinn. Hinn bláeygi Geir Ólafsson var formaður dómnefndar og sannaði að hann veit ekki rassgat um tónlist þar sem ég skíttapaði þrátt fyrir það að ég hafi öskrað Light My Fire og lagt það á mig að grafa oddhvössustu kúrekastígvélin mín upp úr geymslunni, troða mér í 12 ára gamlar leðurbuxur og fara í Lizard King jakkann sem ég hef ekki notað síðan ég hætti að drekka (og ætlaði aldrei að fara í framar).
Geir er samt óumdeildur karókíkóngur Íslands en ég tek aldrei þátt í svona skrípaleik framar. Kolla Bergþórs hefur ekki talað við mig síðan, segir mig hafa stigið niður af ákveðnum stalli niður á plebbalegt úthverfalevel. Ljótt er ef satt er.
Furðulegt að eftir að ég hætti að blogga reglulega rýkur heimsóknafjöldinn upp úr öllu valdi. Þýðir þetta þá að Kreml fær fleiri gesti en Múrinn? Algengustu leitarorðin þessa dagana eru: Marilyn Monroe, thehun.com, Leoncie, idol, klám.is, Stöð 2, klám, fuck you, once upon a time in mexico, blogg, grafarþögn og hrókurinn.
Hrókurinn er auðvitað málið. Innanlandstraffíkin er samt dottin niður úr 65% í 49%. Strákarnir í bakherberginu eru greinilega að vakna til lífsins á meðan ég sef svefninum langa.
| 23:15 |