Síðasta færslan...
Þriðjudagur, 03. febrúar 2004
... er soldið löng, but who cares?
Gunnari á Hlíðarenda hefndist fyrir kinnhestinn og nú fær Ólafur af Bessastöðum borgað fyrir að uppnefna Dabba fyrir mörgum árum. Skítlegt eðli? Það er ljótt að skilja útundan.
Gunnar Smári Egilsson er mikill snillingur eins og sést best á því að eftir að hafa fyllt heilan kirkjugarð af gjaldþrota blöðum er hann orðinn fjölmiðlamógúll Íslands og Styrmi Gunnarsson hlýtur að hafa sviðið undan innganginum að viðtalinu við Smárann í Skýjum. Fyrir nokkrum árum hefði þessi lýsing ekki getað átt við neinn annan er ritstjóra Morgunblaðsins, og varla það.
Ég hef alltaf staðið bjargfastur í þeirri trú að ég myndi aldrei vinna hjá Norðurljósum en nú hefur það heldur betur breyst (sætti mig við það þar sem Sigurður G. er einn uppáhaldstöffarinn minn, alveg ekta).
Það var geggjað á þessum sameiningarfundi í Smáralindinni á föstudaginn og þar sannaðist hið fronkveðna að fallega fólkið vinnur í sjónvarpinu og ljóta fólkið á dagblöðunum. Ég held samt að ég sé með fínt andlit í útvarp.
En talandi um ljóta blaðamenn þá hef ég ekki haft tíma til að fara í bað í 4 daga og er orðinn fúlskeggjaður þannig að þetta Norðurljósa afrek Smára er í raun smámunir miðað við það að með því að færa mig til í starfi með meintri stöðuhækkun hefur honum tekist að rústa hreinlætisvenjum mínum og drepa Badabing.is þar sem ég sé ekki fram á að hafa ráðrúm til að skrifa meira hérna. Bað og rakstur hljóta að ganga fyrir og svo er það auðvitað batinn og sundið. Þessu öllu þarf að sinna og innihaldslausasta iðjan verður að sitja á hakanum.
Þetta er sárt þar sem ég er búinn að vera í banastuði og var búinn að leggja drög að nokkrum tímamótafærslum þar sem ég ætlaði að drulla hressilega yfir menn og málefni. Nú er það allt gleymt.
Afmæli Þórs var gott. Palli er skemmtilegur en mér finnst að hann ætti að birta eitthvað af myndunum sem hann tók á fínu diggitalvélina sína. Besti bloggarinn er auðvitað alltaf ferskur og melló en ofurframbjóðandanum Kolbeini Proppé var mikið niðri fyrir og sagði mér frá vini sínum (greinilega nojuðu kvikindi) sem fann það út að þessi færsla væri diss á Kobba. Við vorum sammála um að svo væri ekki en annars hefur hann greinilega ekkert róast síðan í MK og þegar hann er fullur minnir hann mig svolítið á sjálfan mig þegar ég var vel við skál. Það er skemmtilegt en ekki gott fyrir þá sem þurfa að sitja undir öllu bullinu.
Ármann J fór á kostum og er ekki bara fróður um hobbita og konungasögur heldur hefur hann líka stúderað íslenskan kvilla sem Dórið kallar nágrannafælni og er stórmerkilegur. Átti örstutt spjall við Sverri J um (meintar)fræðibækur, meinlausar og hættulegar. Það var fróðlegt.
Fréttinn sem ég skrifaði um meindýraeyðinn sem má uppræta framsóknarmenn vakti litla kátínu hjá húmorslausum framsóknarmönnum, held að vísu að þeir séu ekki til með húmor. Hvað um það Framsóknarflokkurinn er öflugur á Suðurlandi og nú er búið að svipta meyndýraeyðinn leyfinu, ekki bara á framsóknarmenn heldur líka mýs og skorkvikindi. Aldrei má maður ekki neitt en mér skilst að taugaveiklun frammaranna hafi verið svo geggjuð að einhver fundur um málefni snerist allur upp í diskússjónir um meindýr. Kommon!
Skrif mín um pöbbarölt þingmanna ollu minni kergju en ég hef fengið skilaboð frá einum þingmanni um að þessi skrif mín geti varla talist marktæk þar sem ég er hættur að sjást á Ölstofunni. Það fylgdi þó með að það hefur lítið breyst og þingheimur drekkur enn há Kormáki og Skyldi. Menn ættu þó að husa sig tvisvar um áður en þeir gera það en þar starfar komplexaður aftúrkreystingur í dyrunum sem taldi það frumskyldu sína að vísa undirrituðum á dyr þegar hann var upp á sitt besta. Dork. Grundvallast ekki rekstur svona staða á því að fólk kaupi á barnum og drekki sér til óbóta?
| 22:11 |