»  off record  »  Vinir og kunningjar
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Vinir og kunningjar
Laugardagur, 28. febrúar 2004

hrafn.gifJakob er að tala í útvarpið og dregur vini okkar og kunningja í loftið á færibandi. Hrafn var að yfirgefa svæðið, búinn að messa yfir King Kong um skáksóknina. Þeir sem misstu af forsetanum í útvarpinu ættu að drífa sig á hina glæsilegu skákhátíð okkar Hróksmanna á Broadway í dag og ekki síður að taka upp símann og hringja í 904 2004 og styðja Hrókinn til áframhaldandi stórverka í skáklífinu.

Nú er svo Reynir Trausta kominn í hljóðstofu til Bobba Woodwards og Steins og er að segja frá muninum á DV og Fréttablaðinu en Reynir er að fara frá okkur pempíunum yfir í sollinn á DV og þar með er enn einn töffarinn farinn yfir um. Illugi, Jakob, Mikki, Eiríkur, Garðar og meira að segja Jakob hafa skilið mig útundan í öllum reykpásum og virða mig ekki viðlits og nú missi ég manninn með hattinn yfir í þetta eineltispúkagengi.

Ég hef þó alltaf Hrafn, Hrókinn og herráðsfundi á Vegamótum.

Fram til sigurs!


| 10:49 |
komment

Reynir færir sig og Sigurði Boga sagt upp. Eru hreinsanir í gangi?

Nr. 1 | PÁÁ | 28.02.2004 | 14:10:04 | [+] |

Kemur þá ekki bara maður í manns stað? Dagblaðið fær Reyni og Fréttablaðið Sigga Boga?

Nr. 2 | Ó.K.Á. | 28.02.2004 | 16:52:54 | [+] |

Það er alltaf sama sagan með þig Þórarinn; Þessu gleymi ég seint. B

Nr. 3 | Begga | 28.02.2004 | 22:35:08 | [+] |

Ekki Garðar heldur, Þórarinn. B

Nr. 4 | Begga | 28.02.2004 | 23:03:21 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff