»  off record  »  mars 2004
off record
mars 2004

a long time ago...
Skítadjobb
Sunnudagur, 28. mars 2004

xpunisher.gifHorfði á Gigli um daginn og varð fyrir umtalsverðum vonbrigðum þar sem myndin hefur fengið skelfilega dóma og fullt af Gylltum kirsuberjum. Svona fokdýrar ruslmyndir með hálaunaleikurum eru nefnilega oft frábær skemmtun eins og hin kostulega Ishtar sýnir og sannar. Ben Affleck og Jennifer Lopez eru að sjálfsögðu ömurleg en þau komast samt nokkuð vel frá þessu þar sem þau eru ekki það versta við myndina. Handritið er ein mesta hörmung sem komist hefur á filmu og það er með ólíkindum að höfundurinn og leikstjórinn, Martin Brest, hafi ekki áttað sig á þessu eða að einhver hafi ekki aumkað sig yfir hann og bent honum á það að hann væri að filma skít.

Sá armi durgur, Affleck, er orðinn ansi flinkur við að velja sér hlutverk í myndum sem eru jafnvel verri en hann sjálfur. Honum verður til dæmis ekki einum kennt um að Daredevil hafi verið rusl. Hann er þó sýnu verri en Lopez í Gigli enda gat Lopez einu sinni leikið (sbr. U-Turn).
Get samt huggað mig við að þetta var ekki tímasóun vegna þess að alltaf þegar ég geri eitthvað tilgangslaust eða er staðinn að einhverju vandræðalegu eins og að kaupa einkadans, brjálast í blakkáti, fara í meðferð, lesa Málefnin.com eða horfa á myndir með Ben Affleck þá afsaka ég mig með því að ég sé í vinnunni. Þetta er gott fyrirkomulag þó þetta sé vissulega skítadjobb, en einhver verður að gera þetta.

Nýjasta þrætuepli þeirra sem þykjast vita allt sem og annarra er hvort fjölmiðlafólk eigi að birta viðtöl við vitgranna glæpamenn og þá sem þeim tengjast. Siðferðisspurning sígilda er að sjálfsögðu dregin upp þó þetta sé auðvitað engin spurning og fólk hefur verið að lesa viðtal DV við Heiðveigu og viðtal Fbl við Grétar upp til agna um helgina. Sjálfum finnst mér innlegg Jónasar Inga í afturhlutanum hjá mínu fólki í dag standa upp úr; skrautskrift og frímerkjasöfnun? Datt í hug að Sveinn Andri hefði ekki þjálfað hann fyrir svona beisikk hver?, hvar?, hvaðan? spurningar og hann sýndi á sér enn eina snilldarhliðina.
Fólk getur þrætt endalaust um réttmæti þess að birta viðtöl við menn sem eru ódæmdir, nýsloppnir úr gæsluvarðhaldi. Það virðast þó allir vilja lesa þetta og auðvitað vilja blaðamenn birta stöffið. Það hlýtur að vera fagnaðarefni að upp sé að rísa ný kynslóð mislukkaðra íslenskra glæpona sem vilja deila hugrenningum sínum með fjöldanum. Mikið var reynt að fá strákana sem fengu milljónirnar lánaðar hjá Símanum í viðtal á sínum tíma. Þeir höfðu hins vegar og hafa enn vit á að þegja.
Einhverjir vilja meina að Jóhanna og Þórhallur hefðu mátt vera betur undirbúin þegar þau tóku á móti Jónasi en hann spilaði þetta auðvitað snilldarlega og fékk að bulla út í eitt sem jók skemmtigildi spjallsins til muna. Saknaði þess samt að þau skyldu ekki spyrja hann hvort hann hafi ekki fundið neina lykt í bílnum þegar hann keyrði á Neskaupstað með (ekki) þriggja daga lík í teppi í aftursætinu.
Annars brilljant sjónvarp.

Málverjarnir bregðast ekki væntingum mínum frekar en fyrri daginn. Verð eiginlega að leggja það á mig að copy/peista þetta í notepad. Óborganlegar lesningar. Við Gummi áttum hvor sinn þráðinn á laugardaginn. Kommentin auðvitað misgáfuleg, eins og við var að búast, en helvítið hann Gummi er með 7 síður á móti mínum 6 en þegar heildarfjöldi þráða er tekinn saman mala ég keppnina um málverjadissið.


Leki: Málefnaskýrsla
Föstudagur, 26. mars 2004

Vefurinn Málefnin.com er orðinn helsti fundarstaður íslenskra stjórnleysingja, hryðjuverkamanna og geðsjúklinga.
Dómsmálaráðuneytið hefur vefsvæðið sem er fríríki í .com landi undir ströngu eftirliti. Sálsjúkir terroristarnir sem þar ala manninn skáka að hætti sannra raggeita í skjóli nafnleyndar og ráðuneytið hefur því látið sérfræðing sinn í Internetmálum taka saman ítarlega skýrslu um vefinn.

Hlutar úr skýrslu Agent SFR, eða Okkar maður fyrir Norðan, eins og þeir kalla hann hjá Leyniþjónustu Íslands hafa lekið til fjölmiðla í einni grófustu aðför að lögregluríkinu sem sögur fara af.
Siðblindingjarnir á BadaBing eru svo æstir í að vinna nýju blaðamannaverðlaunin, Gullbjörninn, sem Blaðamannafélag Íslands veitir árlega þeim fjölmiðli sem tekst að pirra dómsmálaráðherra mest, að þeir birta hér brot úr skýrslunni á undan ritbullunum á DV sem eru of uppteknar þessa dagana við að hræra laxerolíu saman við Skyr.is fyrir Mæðrastyrksnefnd.

24.03.20XX

Meðal Málverji á að baki misheppnaðan feril í stúdentapólitík en gegnir oft stöðu meðstjórnanda eða gjaldkera í húsfélagi blokkarinnar sem hann býr í. Í huga meðal Málverjans togast á löngun til að stinga af úr landi með hússjóðinn eða gera hallarbyltingu og ná formanssætinu af Jónasi í 2.B svo hægt sé að bárujárnsklæða húsið.
Meðal Málverjinn er með fleiri "nikk" á Einkamálum.is en Málefnunum.com.
Meðal Málverjinn leitar til heimilislæknis að meðaltali 6 sinnum í mánuði.
Meðal Málverjinn er áskrifandi að Newsweek, Cheri og Huster Barely Leagal.
Meðal Málverjinn sækir flestan sinn fróðleik í 60 Minutes, Discovery Channel og Nýjasta tækni og vísindi.
Meðal Málverjinn kaupir ekki DV en les það á bensínstöðvum.
Meðal Málverjinn er hvítur, einhleypur karlmaður á aldrinum 25-47 ára.
Meðal Málverjinn ólst upp í dreifbýli en er að aðlagast borgarlífinu.
Meðal Málverjinn hlustar daglega á Útvarp Sögu en hringir ekki í stöðina þar sem það er fyrir neðan virðingu hans.
Meðal Málverjinn horfir á Boston Public, Yes Dear og CSI á Skjá Einum en tekur þættina jafnan upp á myndband og hraðspólar síðan í gegnum auglýsingarnar þar sem honum býður við auglýsingum í ókeypis miðlum.
Meðal Málverjinn er vel byrgur af hvítum hlýrabolum frá Guðsteini og borðar kaldar Heinz baunir upp úr dósinni á meðan hann fær útrás fyrir gremju sína á Netinu.
Meðal Málverjinn hefur ekki verið í fastri vinnu síðasta eitt og hálfa árið.

(Pínlegustu málfarsvillum, ambögum í stíl og óþarfa endurtekningum hefur verið eytt eða breytt)


Bullseye!
Fimmtudagur, 25. mars 2004

Þetta gæti ekki passað betur...


Ernest HEMINGWAY (1899-1961)
You are like the famous writer Ernest Hemingway.
There is a curse upon you and your family .Some
of your relatives have killed themselves
before. It seems to be in your genes .
And you have a weakness for alcohol, especially
Absinth. You can express yourself very good
with writing. You have seen a lot of bad things
in your life (for instance war) that also
changed you a lot. Youll marry about 4 times,
but in the end therell be nobody left. With
your good heart, you are a benefactor. After
youll suffer from a heart disease youll get
depressions and kill yourself with a shotgun at
7:00 am.
Your whole life you take issue with love, death,
fate violence and loneliness.


~Which famous suicide would you be?+8 different,long results and pics!!~
brought to you by Quizilla


Is there life before death?
Fimmtudagur, 25. mars 2004

<img class=Spyr Martin Fallon í hinni bráðskemmtilegu bók Jacks Higgins A Prayer for the Dying (En messe for en morderer). Eftir þessari bók var gerð bíómynd sem hefði getað orðið besta mynd Mickey Rourke, ever (fyrir utan Angel Heart auðvitað) og tryggt feril hans. Því miður þurftu menn að klúðra því með því að fylgja bókinni ekki eftir og láta Bob Hoskins leika prest og Alan Bates illmenni þegar hvaða casting bjáni (fyrir utan stúdíófíflið sem spurði Rod Steiger hvort hann gæti talað með suðurríkjahreim, fyrir The Specialist, þrátt fyrir að karlanginn hafi fengið Óskarinn fyrir einmitt það í In the Heat og the Night) í heimi ætti vita að hlutverkaskipanin hefði akkúrat átt að vera hinsegin.


Hvað er eftir af lífi manns sem situr í vinnunni síðdegis á miðvikudegi og hugsar um það eitt að komast í heitt bað og hvað sé í sjónvarpinu í kvöld? Las einu sinni smásögu eftir Stephen King þar sem sögumaðurinn var gamall kall sem var hættur að reykja. Inn á milli hryllingsins sagði hann alltaf I still wish I was a smoking man. Mín útgáfa af þessu væri þá væntanlega I still wish I was a drinking man, eða hvað?
Spurning um að byrja að synda aftur, eða gera eins og EIR benti mér á í dag: Klæða mig upp í smóking, blanda mér Manhattan og standa við stofugluggann og horfa yfir Vesturbæinn á meðan ég drekk hann. Eini augljósi gallinn á þessu annars stórgóða plani er auðvitað sá að ég er með ofnæmi fyrir áfengi. EIR sagði að það yrði bara að hafa það. Þetta yrði a.m.k. tilbreyting.
Annars stakk hann líka upp á því að ég færi upp á Álftanes og skriði á fjórum fótum á túni bónda nokkurs. Síðan þarf ég bara að gelta að rollunum hans og þá skýtur hann mig á færi, ef ég er heppinn.
Ég hef verið í óeðlilega miklum samskiptum við framhaldsskólanema vegna vinnunnar undanfarið. Skemmtilegt þetta unga fólk. Maður fær næstum menntaskóla nostalgíu af því af tala við þau (þ.e.a.s. ef menntaskólaárin hefðu ekki verið hreinn viðbjóður). Í dag komu Versló krakkar að sýna mér drykkjuspilið sem þau eru að markaðssetja. Þau lögðu mikið upp úr þróunarvinnunni og þurftu að prófa vöruna í mörgum partíum áður en hún fór á markað. Verslingar kunna, öðrum fremur að plögga, og gáfu mér þess vegna einn stokk en skutu sig í fótinn þegar þau sögðu að ég gæti prufað spilið um helgina. Þá fór minn í fýlu: "ÉG ER ALKI OG MÁ ÞAÐ EKKI!" Ef ég væri ekki í dúndurbata myndi ég hefna mín á þeim með því að birta ekki stafkrók um uppátækið, sem er annars nokkuð sniðugt.
Talandi um skólakrakka og plögg þá er áberandi hversu þéttir Verslingarnir eru í plögginu. Allt sem þeir gera, söngleikir eða whatever er plöggað með fagmannlegri ýtni og offorsi sem getur endað sem áreiti. Aðrir skólar standa VÍ langt að baki hvað þetta varðar en svona PR horror er sjálfsagt hluti af námsefni þeirra í Fílabeinsturni frjálshyggjunnar eins og skólinn hét á mínum menntaskólaárum en þá voru Verslingar hvimleið kvikindi sem keyrðu allir á hvítum VW Golf eða MMC Colt með Garfield dúkku með sogskálum í hliðarrúðunum.

Fleiri highlights úr A Prayer for the Dying:

What kind of a God allows a world where children can be happily singin one minute and blown into strips of bloody flesh the next?

If he exsist your God I wish to hell he coukd make up his mind. He´s big on how and when, not so hot on why?

Labbaði við í Nexus í dag og fékk smá fyrirlestur um Ra's Al Ghul og Batman hjá Pétri sem sagði mér í óspurðum fréttum að Sjálfsmorðsbók kanínunnar seldist eins og heitar lummur. Allt sómakært fólk ætti að drífa sig í Nexus og fá sér eintak og kaupa um leið Elskið okkur og Drepið okkur eftir Hulla. Hann er að reyna að hefta fleiri bækur saman as we speak...


Reykjur
Laugardagur, 20. mars 2004

<img class=Það eru nokkur ár síðan ég komst að því að Camel Lights (þessar í bláu pökkunum) eru bestu sígaretturnar á markaðnum. Þær virðast loksins hafa slegið í gegn enda sé ég æ fleiri handfjatla bláu pakkana og í dag lenti ég í því að Blár Camel var búinn á tveimur sölustöðum (Snælands videó við Ægissíðu og í Söluturninum Hagamel 67). Það er svo sem ekkert nýtt að þessi tegund sé ekki til í Söluturninum þar sem það er yfirleitt ekkert til þar. Drew Carey týpan tilkynnti mér að nú væri þetta ekki honum að kenna þar sem Camel Lights væri búinn hjá ÁTVR. Sannar kenningu mína.

Pabbi reykti Winston og því lá beinast við að byrja í Winston þegar það kom að því að hefja reykingar. Winston voru góðar sígarettur, nafnið er líka flott (Churchill) og pakkinn sæmilega stílhreinn. Ég hélt tryggð við Winston eftir að Marlboro urðu aftur fáanlegar hérna en þær þóttu alltaf voða töff vegna þess að þær voru ófáanlegar. Pakkinn er að vísu flottari en Winston, lógóið er á latínu Veni, Vidi, Vici og John Taylor í Duran Duran reykti líka Markboro. Annars eru þær ekkert spes en þykja enn voða vínar og svoldið "erlendis" af því þær voru ófáanlegar hér um árabil.
Ég reykti Winston þar til fyrir svona eins og sex árum síðan þegar tjörumagnið var minnkað í þeim. Þá urðu þær ógeðslegar á bragðið og manni finnst maður alltaf vera þunnur þegar maður reykir þær. Það tók mig því þrjá mánuði að fatta það að það væri búið að breyta þeim.
Bogart, Marlowe og alvöru töffarar reykja filterslausan Camel. Reyndi það um stundar sakir og prufaði líka filterslausar Pall Mall um svipað leyti. Þreyttist fljótt á því að hrækja tóbaksflyksum og tékkaði á Lucky Strike. Bargðvondar og leiðinlegar sígarettur. Það er mest power í Prince og ég reykti þær á bensínstöðinni eitthvert árið. Fóru illa í hálsinn minnir mig. Þekki bara tvo sem reyja Prince. Báðir svakalegir rannsóknarblaðamenn á DV.
Reyndi síðan við Camel Filters. Alltaf þótt þessi múlasni með kryppuna á pakkanum sjarmerandi. Það var samt eitthvað bogið við þessar sígó, rétt eins og Winston enda hafði tjörumagnið verið minnkað í þeim líka. Þá var mér bent á Camel Lights og hef reykt þær síðan. Alveg hreint frábærar sígarettur.
Eina tegundin sem ég hef aldrei reykt að staðaldri er Viceroy. Þá tek ég auðvitað ekki Salem, Salem Lights og allan annan methol viðbjóð með. Það tóbak sem ekki er hægt að reykja. Lenti stundum í því í partíium undir morgun að allar reykjur nema Salem voru búnar og gat ekki einu sinni reykt þær þó ég væri nánast meðvitundarlaus af drykkju. Hreinn viðbjóður.
Það er líka eitthvað frámunalega kellingalegt við Salem. Óli á bensínstöðinni reykti grænan Salem og ég stríddi honum soldið á því enda hinn mesti jaxl á ferðinni. Hann skammaðist sín held ég alltaf dáldið fyrir þetta en var voða drjúgur þegar hann fékk sér að reykja í hléinu á Carlito´s Way. Carlito reykti nebblilega grænan Salem í diskófíverinu.
Hvað um það. Það eru semsagt Viceroy sem eru sígaretturnar með sígarettubragði sem ég hef aldrei getað reykt. Þær eru vondar og þar fyrir utan gerðum við Óli einu sinni óvísindalega könnun á bensínstöðinni og komumst að því að það fólk sem reykir Viceroy er almennt leiðinlegra en annað fólk. Þetta þótti okkur stórmerkilegt og mér þykir það enn en allir leiðinlegustu, nöldurgjörnustu kúnnarnir, auk þeirra sem áttu aldrei pening og reyndu að fá allt skrifað reyktu bara Viceroy.
Þetta er frétt!


Kasparov og skötuselurinn
Þriðjudagur, 16. mars 2004

Hann var full langur hádegisverðarfundurinn með Karpov, Kasparov og Short í dag enda máttu menn brjótast í gegnum brauð, súpu, skötusel og undarlega eplaköku á meðan Kasparov hitaði egóið upp.
Skemmtilegur fundur samt, Karpov alltaf jafn rólegur og talaði soldið eins og gömul kona, Kasparov gerði sig líklegan til að æsa sig og þá sperrtu sorpblaðamenn eyrun en Short var áberandi hressastur og skemmtilegastur. Ákaflega geðþekkur gaur með þvottekta breskt nördalúkk. Hálfgerður Adrian Mole.

Símon, rísandi DV stjarna, rúllaði fundinum upp með gáfulegum spurningum og þekkingu á viðfangsefninu, Jakob sá um gamanmálin, endurorðaði spurningar fyrir Moggamanninn og reyndi að kreista upp úr stóru stórmeisturunum hver væri besti íslenski skákmaðurinn og hver væri leiðinlegasti skákmaður í heimi. Fátt var um svör en í staðinn fengum við skemmtilegar sögur af því hversu það getur verið hættulegt að tala við blaðamenn.
Moggamaðurinn átti samt spurningu dagsins þegar hann forvitnaðist um hvort við þyrtfum ekki annað kalt stríð til að fá spennu í skákina. Kasparov breyttist í órangútan í augnablik á meðan hann hreytti "WHY?" út úr sér. Manngarmurinn þekkir sjálfsagt ekki Moggamentalítetið.

Ástþór er búinn að klaga Moggann, fyrir að að gera lítið úr kosningabaráttu sinni, til Colins Powell. Menn bíða spenntir eftir viðbrögðum þessa alþjóðlega varðhunds lýðræðis og frjálsra kosninga. Navy Seals yfirtaka ritstjórnina sjálfsagt á næstunni nema Mogginn faxi myndina af Thor Magnusson og Bill Clinton til Hvíta hússins.


Alltaf fjör á Kleppi
Mánudagur, 15. mars 2004

xpunisher.gifLas það í hinu bráðskemmtilega blaði DV í dag að stjórn KB banka hafi rekið útibússtjórann minn í Háaleitinu. Heimskuleg ráðstöfun enda Gunnar öðrum mönnum duglegri að hækka heimildir og veita lán og festa bankanum þannig viðskiptavini. Alltaf þótt vænt um kallinn og þótt gott að kíkja við hjá honum þegar pjéninga vantaði. Starfsmannamál í útibúinu eru í upplausn og viðskiptavinirnir elta Gunnar til Landsbankans í Hafnarfirði. Ég fer þangað enda örugglega nóg af peningum í Hafnarfirðinum.

Málverjakleppararnir eipuðu, allir 20, yfir færslunni hér fyrir neðan. Gaman að því. Best þegar skoffínin byrjuðu að dæla út djúpsálfræðilegum kenningum um rætur andúðar minnar á þeim. Þessir slefberar taka sig svo hátíðlega að það hvarflar ekki að þeim eitt augnablik að maður geri þetta bara just for the hell of it og til að fá fram þessi sjúklegu viðbrögð.
Eníveis. Í þræðinum sem var tileinkaður mér og var aðsóknardrjúgur hjá bjánunum í dag, sem og hinum feykilanga og taugaveiklaða lesendabréfsþræði DV sem telur 16 síður samkvæmt síðustu talningu, afhjúpa vitringarnir 20 grunnhyggni sína og fákunnáttu og staðfesta um leið allt það sem illa innrættir menn hafa skrifað um þá. Meginþorri þeirra sem gjamma á Málefnunum eru ekkert annað en lásí rógberar. Tvö skotheld dæmi: Þeir byrja á því að ákveða að lesendasímtalið hafi verið samið á ritstjórn DV og birta svo nafn og kennitölu Guðmundar smala og fullyrða að hvorki hann né aðrir Guðmundar hafi hringt þetta geggjaða bréf inn. Ryðst þá einhver Guðmundur fram og vill endilega taka á sig innhringinguna. Áfram halda svo moðhausarnir þegar þeir blása það upp að ég sé Málverji og rökstyðja það með link á einhvern aftúrkreisting sem bullar þarna undir nikkinu badabing. Ergo: Þetta er Tóti. (VEIIIIII) Rannsóknarblaðamennska á háu stigi og röksemdafræslan svo massív að hún er einungis á færi snjöllustu Málverja. Stundum bíð ég stúlku heim sem veit ekki að ég er ég og svo framvegis.
Þrátt fyrir það að ég sé orðinn prinsipplaus maður með öllu mun ég aldrei pósta stafkrók á kverúlantavef á borð við Málefnin (það e rhins vegar rétt hjá þingmanninum sem þorir að skrifa undir nafni að ég kíki reglulega þarn ainn og skemmti mér konunglega). Þar fyrir utan fær maður ekki betri meðmæli en andúð Málverja, nema ef til vill skammir frá Birni Bjarnasyni. Mest hissa á að Ólafur Teitur hafi ekki skotið sig eftir að Málverjar fóru að mæra hann sem besta blaðamann landsins. Annars eru auðvitað Óli Björn, Ólafur Teitur og aðrir DV lúserar líklega meginuppistaða Málverjanna, svona ef maður notar málverjahundalógík og ályktar út frá geggjaðri andúð þeirra á DV sem byggir öll á innihaldslausum upphrópunum og formælingum galandi bændadurga með kyndla og heykvíslar.
Önnur dead cert vísbending er sjálfhverfa Málverjanna. Sjálfum er þeim tíðrætt um sjálfhverfu blaðamanna en eltast í næsta þræði við rassgatið á sjálfum sér af afbrigðilegum áhuga og hafa aldrei jafn mikið til málanna að leggja en einmitt þegar umræðan snýr að þeim og hvað þeir séu æðislegir eða heimskir.
Auðvitað lesa aðeins fleiri Málefnin.com en Viðskiptablaðið en það er einmitt þess vegna sem þessi einkenni Málverjanna eru betur geymd á síðum þess.

Fokk off.


Ég blessa þessi fífl!
Sunnudagur, 14. mars 2004

Gunnar í Krossinum er æði. Hef aldrei verið sammála honum en hann er andskotanum skemmtilegri. Hann stóð upp á málþingi um Jesúmyndina og "blessaði þessa mynd!" og bætti við að hér væri komið nýtt tæki til trúboðs.
Gunnar er blessaður og einn af þessum ómissandi karakterum sem brjóta upp mónótóninn í umræðunni. Gunnar og Magnús Skarphéðinsson fylltu úrklippubækurnar mínar á árum áður. Magnús er hvorki álft né hvalur í dag en Gunnar klikkar aldrei.

Ástþór var skondinn einu sinni en eftir því sem hann verður geðveikari fer hann að gera minna gagn fyrir umræðuna og sömu sögu er að segja um vinkonu mína, Leoncie, sem snappaði endanlega í bítið um daginn. Nú vill enginn tala við hana lengur. Rasistasöngurinn er orðinn þreyttur en þetta var fyndið á meðan hún hjólaði í Sigurjón Kjartansson og Geir Ólafsson en Jón Ólafsson er nánast helgur maður (ég blessa þennan mann!) og þessi ósmekklega árás að mannorði hans verður seint fyrirgefin.
Ástþór, Leoncie, Magnús Skarphéðinsson og Gunnar í Krossinum eru þó öll snillingar með eðalkjaft fyrir neðan nefið samanborið við vænisjúku fábjánana á Málefnunum sem eru nú, í mikilmennskubrjálæði sínu, búnir að komast að því að þeir hafi móðgað einhverja á Baugstíðindum og sett dómsmálaráðherra út af laginu vegna þess að hjá þeim þrífst óritskoðuð umræða sem enginn getur stjórnað og þar fyrir utan sé hún svo æðislega upplýst og up to date að Málefnin séu faktískt búinn að leysa aðra fjölmiðla af hólmi.
Tótal, genuine ídjót en við Gunnar erum aumingjagóðir og blessum þessi fífl jafnvel þó það liggi ljóst fyrir að Gunnar myndi fyrr ná sýnilegum árangri í afhommunum en að frelsa þessi dómsdagsídjót undan oki heimskunnar.


Píslarsögur
Fimmtudagur, 11. mars 2004

Last-Temptation-of-Christ.gifÉg ætlaði að fara á forsýningu á Jesúmyndinni hans Mels Gibson í dag en náði ekki að loka blaðinu tímanlega og sendi því Dignus í minn stað. Ég er svo sem ekkert að svekkja mig á þessu þar sem ég hef mátulega mikinn áhuga á þessari mynd. Ég meina hvað þarf að segja og filma þessa sögu af Krosslafi oft?

Það er ekki eins og þetta sé spennandi og ef fólk sá ástæðu til að kvarta yfir því að það vissi að Titanic myndi enda með því að dallurinn sykki hvað má þá segja um píslarsögu himnadraugsins sem smollinkríaði móður sína? Ég er sjálfsagt ekki að skemma fyrir neinum þó ég upplýsi það hér og nú að hann endar á krossinum.
Ætli það séu ekki komin 15 ár síðan maður sá The Last Temptation of Christ í Laugarásbíó. Þrusugóð mynd og ég hef bara ekki fundið til neinnar löngunnar eftir því að sjá meira af ævintýrum Jesúms á hvíta tjaldinu.
Hefur Gibson einhverju við TLTOC að bæta? Ég held að Scorsese hafi sagt allt og örugglega gott betur þar sem myndin hans vakti mun meiri úlfúð en Gibson myndin? Mig minnir endilega að allir Gunnarar í Krossinum á landinu hafi komið saman fyrir utan Laugarásbíó og mótmælt sýningu myndarinnar.
Gunnari finnst nýja myndin frábær og það eru helst einhverjar gyðingatuskur sem eru að svekkja sig á þessu en það lið er ekki marktækt enda löngu búið að segja sig úr samfélagi mannanna og girða sig af í geðveiki sinni.
Ég grét það sem sagt þurrum tárum að komast ekki á Jessa í kvöld þar til ég mundi eftir því að þokkafyllsta leikkona ever, Monica Bellucci, fer með hlutverk Maríu hóru. Einhver sagði mér nú að hún léki meyjuna líka. Það væri ágætt hjá Gibson að láta sömu konuna leika báðar Maríurnar í lífi Krissa þar sem það gefur sögunni Freudíska dýpt. Ætli maður verði ekki að gera sér ferð á þetta til þess að sjá Monicu.
James Caviezel sem leikur Jesúm þoli ég hins vegar engan veginn og fannst hann best geymdur í þeim hroðalega hreinsunareldi sem það hlýtur að hafa verið að leika á móti Jennifer Lopez í Angel Eyes.


Botninum náð
Miðvikudagur, 10. mars 2004

bender.gifSagan segir að fíklar og fyllibyttur finni botninn sinn og taki sig þá á og fari í meðferð eða drepist bara. Ég sá til botns í fyrra sumar en var ekki kominn þangað og nú vill svo einkennilega til að ég virðist fyrst vera að ná botninum núna eftir 8 mánaða edrúmennsku.

Landsins snjallasti í síðustu viku og mynd í Séð&Heyrt í dag. Þetta verður ekki verra og þetta hefði aldrei komið fyrir mig þegar ég var fyllibytta. The Lizard King (ammaðín!) stóð vörð um ákveðna lágmarks kúlstaðla og hefði hvorki látið beibu troða í sig karamellubúðingi né lent í skotlínu papparazza, syngjandi karókí á ógeðslegri búllu. Og þó?

Bækur hafa ekki verið uppfærðar hér í rúmt ár enda hef ég hvorki tíma né nennu til að skrifa um bækur án þess að fá borgað fyrir það. Bækur verða því Comix héðan í frá.
Það þarf auðvitað ekki að taka það fram að allar myndasögur sem ég fjalla um fást í Nexus, nema annað sé tekið fram. Tarzan blöðin gömlu fást til dæmis bara einu sinni á ári á Bókamarkaðnum.


Regnbogabörnum fjölgar
Þriðjudagur, 09. mars 2004

baby.gifBlaðamenn eru rosalega skemmtilegir og engir skemmtilegri en þeir sem eru skemmdir af drykkju (ef það er yfirleitt hægt að eyðileggja sig á áfengi. Afhverju er áfenginu alltaf kennt um allt þegar fólk er í grunninn fífl og búsið gerir ekkert nema laða það versta fram í fari þess?) og fullir af beiskju og gremju. Þetta eru mennirnir sem láta hlutina gerast.

Það er samt ekki gott að hafa slíka menn á bakinu til lengdar en nú eru víst einhverjir svona hardcore blaðamenn að leggja PÁÁ í einelti. Þetta hlýtur að vera svæsið tilfelli þar sem PÁÁ kallar ekki allt ömmu sína og þetta er svo langt gengið að hann bloggar um að "beiskir blaðamenn" séu "sérlega hvimleitt afbrigði" af leiðinlegu fólki.
Verst þykir mér að ég skil ekki alveg umkvörtunarefni PÁÁ, frekar en þeir sem kommennta á færsluna hjá honum og eru uppi með getgátur um hver vondi blaðamaðurinn sé (ég er auðvitað líka gramur og beiskur yfir að vera ekki nefndur með the usual suspects en ég er auðvitað langt því frá að vera miðaldra). Mér dettur helst í hug að PÁÁ sjái eftir því að hafa gerst illgjarn eineltispúki og grínast með eyru dómsmálaráðherra og leiðist að sjá skammarstrikið tíundað á prenti. Annars var ekkert fréttnæmt við þessa kvikindislegu færslu fyrr en BB snupraði PÁÁ fyrir að gera grín að ytra útliti sínu. Það er bæði ljótt, ómerkilegt og fyrir neðan virðingu allra sem eru ekki gramir og skemmdir af drykkju (þeir mega nefnilega allt). Þar fyrir utan var þetta auðvitað heimskulegt þar sem BB er ekki maður sem maður vill eiga að óvini. Allra síst ef maður ætlar að vinna á RÚV. Right?


Éttu bara þinn búðing
Mánudagur, 08. mars 2004

SW7.gifÞetta Landsins snjallasti rugl ætlar greinilega að draga dilk á eftir sér. Óskar Hrafn íþróttagúru er búinn að gera mikið úr aumingjaskap mínum; í fyrsta lagi fékk ég víst besta búðinginn og svo telur hann sig geta klárað þennan skammt á 3 sek.
Var eitthvað að þrasa við Eygló í myndasafninu um það hversu eðlilegt það væri að ætlast til þess að myndir af Darth Vader væru til á safni og þá slengir þessi dagfarsprúða kona framan í mig: "Éttu bara þinn búðing!"

Það þarf ekki að fjölyrða um að ég tapaði þessum debatt.
Jakob vill ekki einu sinni ræða frammistöðu mína í þættinum en Reynir er auðvitað sá eini sem skilur mig og hafði orð á því að fyrirlitning mín á þættinum hefði ekkert farið á milli mála, enda sparifýlusvipurinn uppi nánast allan tímann. RT vill meina að ég hafi einn gert mér grein fyrir (Símon og Freysi pínu líka) því að þetta var ömurlegt dæmi. Hinir hafi gengist upp í þessu og haldið að þetta snerist um að vera sniðugur eða snjall þegar punkturinn í þessu er að gera þátttakendur að fíflum.

Annars ét ég bara minn búðing.


Blakkát í frumskóginum
Sunnudagur, 07. mars 2004

tarzan1.gifÞessi snilld er úr sögunni Trommur dauðans í Tarzan blaði no. 1 árg 1984.

Vondi kallinn: "KOMIÐ MEÐ ELDVATNIÐ!"

Vondi kallinn: "ÞETTA VATN GEFUR OKKUR BÆÐI HUGREKKI OG ÞRÓTT"

Tarzan: "NÚ SKIL ÉG! ÞAÐ ER ÁFENGIÐ SEM HEFUR BREYTT ÞEIM!"

Tarzan: "EN HVAÐAN FÁ ÞEIR ÞETTA? VERSLUN MEÐ ÁFENGI ER BÖNNUÐ Í SKÓGINUM!"

Vondi kallinn: "NÚ BYRJUM VIÐ DANSINN!"

Tarzan: "ALLIR ERU DAUÐADRUKKNIR!"

Tarzan: "SÓLIN ER AÐ SETJAST. EFTIR ÞRJÁ TÍMA SKÍN MÁNINN!"


[...]

Lena (systir vonda kallsins): "SÍÐAN MENNIRNIR BYRJUÐU AÐ DREKKA ELDVATNIÐ ER ALLT SKELFILEGT!"

svona getur nú áfengið farið illa með menn en þá er nú gott að Tarzan er ekki langt undan.


Bowling for Hagamelur
Föstudagur, 05. mars 2004

punisher.gif Gleymdi að borga af Stöð 2. Kemur ekki að sök fyrr en á sunnudaginn (24), nenni ekki að horfa á Apocalypse Now á sjónvarpsskjá, er búinn að sjá Dead Calm of oft, og er í of vondu skapi fyrir 70 mínútur.

Fannst ég bara komast bærilega frá þessu Landsins snjallasti, var ekki nógu mikið í mynd til þess að búðingafíaskóið yrði of ömurlegt. Biggi glansaði í gegnum Af fingrum fram hjá Jóni Ólafssyni. Það er eitthvað ekta við hann Bigga. Laus við alla tilgerð.

Helvítis sjónvarp. Bregst alltaf. Bandaríkjamenn fá nýjan Sópranós þátt á sunnudaginn en það hjálpar mér ekki neitt.

Búinn að vera edrú í átta mánuði á morgun. Það er partí í blokkinni eina ferðina enn. Einu sinni voru öll helstu partíin hérna haldin heima hjá mér. Ekki lengur. Það pirrar mig á kvöldum eins og þessu.


Ástþór og Marilyn
Fimmtudagur, 04. mars 2004

Ástþór Magnússon brunaði upp leitarorðavinsældalistann hér á BadaBing! um daginn en náði þó ekki að hrófla við Marilyn Monroe sem hefur trónað á toppnum í tvo mánuði. Þeir sem leita að upplýsingum um MM verða þó fyrir vonbrigðum hér þar sem ég býð bara upp á eina skjáborðsmynd.

Ástþór er nú dottinn út ag Topp 20 sem hlýtur að vera áhyggjuefni fyrir hann þar sem kosningabaráttan er ekki byrjuð fyrir alvöru. Gamla sexbomban sækir hins vegar í sig veðrið og nú birtist Marilyn Monre, með margvíslegum rithætti, fjórum sinnum á Topp 20, þar af bæði í 1. og 2. sæti. Geri aðrir betur.
thehun.com er ekki fjarri góðu gamni og stendur nú í þriðja sæti en Leoncie kemur næst. Hún dúkkar svo aftur upp í 10. sæti og jafnast því ekki á við Monroe. DV er í 11. sæti, Heimur farfuglanna í 12. og góðkunningi minn Hugleikur Dagsson í því 14. Hulli er alltaf á uppleið og á eftir að slá í gegn með Tvíhöfða teiknimyndunum. Tóta pönk er númer 16 einu sæti á undan sjálfum Harry Potter. Leitarorðið blogg er í 19. sæti og Dorrit rekur lestina í því tuttugasta.

Tveir Fréttablaðamenn verði í sjónvarpinu á morgun. Glöggir áhorfendur RÚV eru sjálfsagt búnir að sjá treilerinn með Bigga en hann verður hjá Jóni Ólafssyni í Af fingrum fram. Biggi ætlar að frumflytja nýtt lag í þættinum þannig að ég mæli með að allir fylgist með honum. Svo er hann líka svo mikið krútt. Á meðan þessu fer fram í skyldusjónvarpinu verð ég að éta karamellubúðing á Skjá Einum. Eins og ég sagði. Horfið á Bigga.

Ég er ekki mikið fyrir ritskoðun og tel að allt það sem menn láta út úr sér á Netinu eigi að standa og þannig stendur margt hér inni sem ég hef látið fjúka í ölæði og gremjuköstum óhaggað, eins og meitlað í stein. Ég var hins vegar beðinn fallega um að eyða kommentum hérna og sá enga ástæðu til að verða ekki við því enda er síðan mitt syndaregistur og óðarfi að vera að hýsa annarra manna bömmera hér.


Workaholics anonymous
Fimmtudagur, 04. mars 2004

Áður en ég útskrifaðist af Teigi hét ég því að láta ekki hliðarfíknir ná taki á mér en er nú kolfallinn vinnualki. 260 vinnustundir í febrúar getur ekki talist heilbrigt samkvæmt nokkrum mælikvörðum.
Þá vill svo óheppilega til að ég er að fá ýmsar hugmyndir sem vert væri að færa í letur en það gerir maður ekki þegar maður situr 12-13 tíma á dag við að skrifa í dagblað.

Spurning að púlla Tótu pönk á þetta og fara að skúra. Meiri frítími - sömu laun. Hef samt unnið við ræstingar (á leikskólum) og það reið mér næstum að fullu andlega. Skelfilegra en Víetnam og bensínstöðin til samans.
Setti því skúringarnar á hold og fór að leita að WA (Workaholics anonymous) deild á Íslandi en fann enga. Skilst að það hafi verið reynt að stofna eina. Fyrsti fundur var boðaður klukkan 19.00 á fimmtudegi en enginn kom. Næst var reynt við 20.00 en enginn kom. Þá 21.00 en enginn kom. Því næst 22.00 en enginn kom og eftir að enginn mætti á fund boðaðan klukkan 23.00 gáfust menn upp. Afhverju kom aldrei neinn? Þeir voru allir í vinnunni.


Það var fokkings blast...
Þriðjudagur, 02. mars 2004

bleyja.gifFyrirsagnir eru dásamlegt fyrirbæri og fyrirsagnagerð er mikil listgrein enda getur vond fyrirsögn drepið góða frétta og góð fyrirsögn getur stundum gert vonda frétt.

Ég bað mitt fólk um að "poppa" fyrirsagnirnar sínar upp um daginn og gera þær svolítið catchy. Fékk þessa FOKKINGS BLAST skömmu síðar. Blaðamaðurinn sem tók þetta svona bókstaflega vann einu sinni á Mogganum þar sem ekki mátti gera margt í fyrirsögnum þannig að hann vildi reyna á þanþolið hjá mér.
Einu sinni var hann tekinn á teppið hjá ritstjóra Morgunblaðsins fyrir að nota orðið Jesú í fyrirsögn. Þá fékk hann við það tækifæri að vita það að Sokkabuxur væri líka bannorð í fyrirsögnum. Óskafyrirsögnin héðan í frá er því:

ÞAÐ VAR FOKKINGS BLAST ÞEGAR JESÚ BIRTIST Á SOKKABUXUNUM OG LÆRISVEINARNIR URÐU GRAÐIR

Forsíða DV myndi auðveldlega bera þetta en það vantar því miður frétt sem getur réttlætt þessa snilld.


Yeeessssssssssss
Mánudagur, 01. mars 2004

angie.gifÞetta er allt að ganga upp og engin nastí surpræs só far. Sofia Coppola fékk verðlaunin fyrir besta frumsamda handritið og Nicholas frændi gargaði af gleði.
Síðan kom fíflið hann Tom Cruise með leikstjóraumslagið en innihaldið var rétt þar sem Peter Jackson fékk styttuna og Hringurinn því kominn í Tíu.

Krúttið mitt hún Charlize Theron vann bestu leikkonuna, eins og búið var að færa til bókar fyrir löngu, stóð sig eins og hetja og grenjaði ekki en missti sig næstum þegar hún þakkaði mömmu sinni fyrir að drepa pabba sinn. Og af því að þetta er góð stelpa þakkaði hún öllum í Suður-Afríku, heimalandi sínu, svona til að vega upp á móti öllum kveðjunum til Nýja-Sjálands.

Yes, yes, yes. Sean Penn vann og skríllinn stendur upp og klappar. Nú þarf Hringurinn bara eina dollu í viðbót og réttlætinu hefur verið fullnægt. Penn tekur við þessu á sinn hógværa og svala hátt. Johnny Depp segir "respect" með svipbrigðum en Bill Murray virðist soldið svekktur.
"Bill don´t go. We love you," segir Billy Crystal í huggunartón á meðan konan hans Bills klappar honum.

Síðan kemur sjálfur Spielberg með bestu myndar umslagið, opnar og segir "clean sweep". Magnað! Hringurinn með 11 tilnefningar og fær 11 verðlaun og Jackson stormar með allt gengið upp á svið hobbitahalarófuna, McKellen og Liv Tyler. Þetta er sætt.

Þessar Óskarsverðlaunaafhendingar eru að verða leiðinlegri með hverju árinu hvað umgjörð og skemmtanagildi varðar en niðurstaðan þarna í kvöld er sú ásættanlegasta í áraraðir. Sýnist í fljótu bragði spáin mín hafa staðist 100%, fyrir utan það að ég þorði ekki að láta mig dreyma um að Sean Penn fengi það sem hann átti skilið.


LOTR ekki besta erlenda myndin

Hringurinn kominn með Átta. Besta lagið Into The West.
The Barbarian Invasion frá Kanada var valin besta myndin og blessað fólkið sem gerði hana þakkaði sínum sæla fyrir að Return of the King slapp ekki inn í þennan flokk líka. Fullt hús hjá Hringnum so far og hann á auðvitað að hirða bestu mynd og leikstjóra, þannig að þetta gæti endað í 11.
Sko, fær Hringurinn Níundu styttuna, nú fyrir besta handrit byggt á öðru verki. Þetta er magnaður andskoti.


Látinna minnst

Þá er komið að tárum og gæsahúð: Gregory Peck, Wendy Hiller, David Hemmings, Hope Lange, George Haterton, Charles Bronson, Michael Jeter, David Newman, Ron O´Neal, Art Carney, Elia Kazan, Leni Riefenstahl, Karen Morley, Buddy Epsen, John John Schlesinger, Ray Stark, John Ritter, Hume Cronyn, Buddy Hackett, Michael Kamen, John Gregory Dunne, Robert Stack, Alan Bates, Gregory Hines, Jack Elam, Ann Miller.

Hringurinn með Sex. Besta frumsamda tónlist. Howard Shore. Nei bíðið við....
Hringurinn með Sjö. Besta klipping.

Þetta er allt að koma

Hringurinn með Fjóra. Förðun.
Hringurinn með fimm. Hljóðblöndun.

Þetta er allt í rétta átt.

Billy Crystal upplýsir að það sé hér með opinbert það er búið að þakka öllum á Nýja Sjálandi í kvöld.

Julia Roberts minnist Katherine Hepburn. Það er eitthvað annarlegt og nánast siðferðislega rangt við það. Er það bara ég eða hafa brjóstin á Juliu Roberts stækkað?

Geisp

Nú er þetta orðið virkilega leiðinlegt. Hvert ömurlega tónlistaratriðið á eftir öðru. Annie Lennox eldist samt vel. Hvað er þetta annars með gömlu konurnar og mestu klívigginn; Jamie Lee Curtis er nánast vandræðaleg og Susan Sarandon er ansi hreint flegin líka og hún er með börnin sín með sér.

Ben Stiller og Owen Wilson voru fyndnir en það var hræðilegt þegar gaurarnir sem unnu fyrir bestu leiknu stuttmyndina komu að segja takk. Annar malaði út í eitt á meðan hinn (sá minni) beið spenntur með ræumiðann sinn og vildi líka fá að segja "takk allir". Hann komst aldrei að og var sár á svipinn þegar hljómsveitinn yfirspilaði félagann og þeim var báðum rutt af sviðinu. Í meðvirkni minni missti ég næstum meðvitund.

Hringurinn með Þrjár styttur. Visual effects.

Jim Carrey, brandarakall, að hylla Blake Edwards. Heiðursóskar fyrir karlugluna. Hann hefur líklega gert fleiri vondar myndir en góðar en þær góðu eru andskoti góðar.

standing ovation

Angelína. Húah!


Bla, bla, bla

issss.... BadaBing! var á undan imdb.com með fyrstu niðurstöður.

Rosalega eru þessar þakkarræður leiðinlegar og mikið voðalega er þessi Bylgjugaur sem blaðrar ofan í þetta á íslensku klikk. "Ööö, kemur Tom Hanks. Hann hefur sko oft unnið Óskarinn." Hversu oft er oft? "Nei, sko. Enn einn Óskarinn til Lord of the Rings sem er þá kominn með tvo." Hvaða bull er þetta?

Hringurinn kominn með Tvær styttur. Búningar.

Renée Zellweger besta aukaleikkonan. No surprises there.

The Return of the Host

Billy Crystal er auðvitað bestur í þetta kynningardæmi en er, því miður, greinilega farinn að slappast. Opnunarsenan var engan veginn nógu fyndin og söngatriðið var hvorki fugl né fiskur miðað við það sem hann hefur gert áður. Alltof lítill húmor í textanum og enginn broddur. Crystal er samt sem áður langbesti kynnirinn og hann hitti í mark með brandaranum að að Sofia Coppola væri svo æst í að vinna að Peter Jackson hafi vaknað með hausinn á Seabiscuit uppi í rúmi.

Tim Robbbins besti karl aukaleikarinn. Það er í samræmi við spá mína og gerir Gay Harden og Penn strax heitari. Þetta gæti því orðið spennandi. Annars fynnst mér að Depp og Penn ættu báðir að fá styttu fyrir það að nenna að mæta. Svakalega flottir gaurar. Allt of flottir fyrir þetta krapp.

Kemur Angelína. Húah!

Hringurinn kominn með Eina styttu. Art direction.

Nemo besta teiknimyndin - ekkert við það að athuga.


Á teppinu

Jude Law bar sig sæmilega en ég fer alltaf að strykjast í þeirri trú minni að hann sé heimskingi. Fallegur, vissulega en virðist voðalega takmarkaður.
Johnny Depp var langflottastur á teppinu. Sætur, kúl og enn steinhissa á því að hann skuli vera tilnefndur.
Alltaf finnst mér Nicole Kidman sæt en það er samt eitthvað bogið við hana í kvöld. Held samt að þessi kjóll sé að virka. Renée Zellweger er alltaf eins og ofvaxið barn eða hálfbjáni en kjólinn var O.K. Svo birtist Angelina og allar aðrar konur á dreglinum urðu að engu. Hún sagðist fíla sig sexý í kjólnum sínum og það er nákvæmlega það sem hún er. Æði.
Ian McKellen var brattur og flottur og svo sást aðeins glitta í Sean Connery, alveg últra kúl að vanda.
Michael Doglas verður ljótari og fýldari með hverju árinu. Zeta-Jones var alveg sæmilega foxý en samt virðist hún vera að líkjast karlkvölinni sinni meira með hverju árinu sem líður. Hún verður búin að vera eftir 5 ár.
Annars er þessi upphitunarþáttur og niðurtalningin með því leiðinlegra sem ég hef séð. Það er eins og allt flotta fólkið hafi tekið sig saman um að vera eins og fífl. Nema auðvitað að þau séu öll fífl. Sofia Coppola til dæmis. Alveg eins og hálviti, jafvel sorglegri en hún var í Godfather III.


First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff