Það var fokkings blast...
Þriðjudagur, 02. mars 2004
Fyrirsagnir eru dásamlegt fyrirbæri og fyrirsagnagerð er mikil listgrein enda getur vond fyrirsögn drepið góða frétta og góð fyrirsögn getur stundum gert vonda frétt.
Ég bað mitt fólk um að "poppa" fyrirsagnirnar sínar upp um daginn og gera þær svolítið catchy. Fékk þessa FOKKINGS BLAST skömmu síðar. Blaðamaðurinn sem tók þetta svona bókstaflega vann einu sinni á Mogganum þar sem ekki mátti gera margt í fyrirsögnum þannig að hann vildi reyna á þanþolið hjá mér.
Einu sinni var hann tekinn á teppið hjá ritstjóra Morgunblaðsins fyrir að nota orðið Jesú í fyrirsögn. Þá fékk hann við það tækifæri að vita það að Sokkabuxur væri líka bannorð í fyrirsögnum. Óskafyrirsögnin héðan í frá er því:
ÞAÐ VAR FOKKINGS BLAST ÞEGAR JESÚ BIRTIST Á SOKKABUXUNUM OG LÆRISVEINARNIR URÐU GRAÐIR
Forsíða DV myndi auðveldlega bera þetta en það vantar því miður frétt sem getur réttlætt þessa snilld.
| 22:06 |