»  off record  »  Ástþór og Marilyn
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Ástþór og Marilyn
Fimmtudagur, 04. mars 2004

Ástþór Magnússon brunaði upp leitarorðavinsældalistann hér á BadaBing! um daginn en náði þó ekki að hrófla við Marilyn Monroe sem hefur trónað á toppnum í tvo mánuði. Þeir sem leita að upplýsingum um MM verða þó fyrir vonbrigðum hér þar sem ég býð bara upp á eina skjáborðsmynd.

Ástþór er nú dottinn út ag Topp 20 sem hlýtur að vera áhyggjuefni fyrir hann þar sem kosningabaráttan er ekki byrjuð fyrir alvöru. Gamla sexbomban sækir hins vegar í sig veðrið og nú birtist Marilyn Monre, með margvíslegum rithætti, fjórum sinnum á Topp 20, þar af bæði í 1. og 2. sæti. Geri aðrir betur.
thehun.com er ekki fjarri góðu gamni og stendur nú í þriðja sæti en Leoncie kemur næst. Hún dúkkar svo aftur upp í 10. sæti og jafnast því ekki á við Monroe. DV er í 11. sæti, Heimur farfuglanna í 12. og góðkunningi minn Hugleikur Dagsson í því 14. Hulli er alltaf á uppleið og á eftir að slá í gegn með Tvíhöfða teiknimyndunum. Tóta pönk er númer 16 einu sæti á undan sjálfum Harry Potter. Leitarorðið blogg er í 19. sæti og Dorrit rekur lestina í því tuttugasta.

Tveir Fréttablaðamenn verði í sjónvarpinu á morgun. Glöggir áhorfendur RÚV eru sjálfsagt búnir að sjá treilerinn með Bigga en hann verður hjá Jóni Ólafssyni í Af fingrum fram. Biggi ætlar að frumflytja nýtt lag í þættinum þannig að ég mæli með að allir fylgist með honum. Svo er hann líka svo mikið krútt. Á meðan þessu fer fram í skyldusjónvarpinu verð ég að éta karamellubúðing á Skjá Einum. Eins og ég sagði. Horfið á Bigga.

Ég er ekki mikið fyrir ritskoðun og tel að allt það sem menn láta út úr sér á Netinu eigi að standa og þannig stendur margt hér inni sem ég hef látið fjúka í ölæði og gremjuköstum óhaggað, eins og meitlað í stein. Ég var hins vegar beðinn fallega um að eyða kommentum hérna og sá enga ástæðu til að verða ekki við því enda er síðan mitt syndaregistur og óðarfi að vera að hýsa annarra manna bömmera hér.


| 22:47 |
komment

Ég er nú svo forvitinn. Gætir þú birt kommentið sem þú varst beðinn að eyða út?

Nr. 1 | Organistinn | 4.03.2004 | 23:07:51 | [+] |

nú hættir þú þessu vinnualkavæli, stormar inn á skrifstofu gunnars smára á meðan hann tekur síðdegislúrinn, steytir hnefa og segir honum að þetta gangi ekki lengur - þú sért á leiðinni í bensíndæluna aftur ef þessari geðveiki linnir ekki. Svo máttu tala um hvað ég sé mikill snillingur o.s.frv.

skvettu smá vatni á ennið á þér og gerðu ástþórs-augu áður en þú stormar inn á kallinn for extra kreisí-effekt

Nr. 2 | Laugurinn sjálfur | 5.03.2004 | 8:39:40 | [+] |

Ég er nafnlaust kvikindi svo gott og vel að mínu kommenti hafi verið eytt þess vegna, en að klína upp á mig einhverjum skandal... ekki sátt við það. Well what ever, áfram KR gott fólk!-

Nr. 3 | úllen dúllen | 6.03.2004 | 23:03:11 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff