»  off record  »  Bowling for Hagamelur
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Bowling for Hagamelur
Föstudagur, 05. mars 2004

punisher.gif Gleymdi að borga af Stöð 2. Kemur ekki að sök fyrr en á sunnudaginn (24), nenni ekki að horfa á Apocalypse Now á sjónvarpsskjá, er búinn að sjá Dead Calm of oft, og er í of vondu skapi fyrir 70 mínútur.

Fannst ég bara komast bærilega frá þessu Landsins snjallasti, var ekki nógu mikið í mynd til þess að búðingafíaskóið yrði of ömurlegt. Biggi glansaði í gegnum Af fingrum fram hjá Jóni Ólafssyni. Það er eitthvað ekta við hann Bigga. Laus við alla tilgerð.

Helvítis sjónvarp. Bregst alltaf. Bandaríkjamenn fá nýjan Sópranós þátt á sunnudaginn en það hjálpar mér ekki neitt.

Búinn að vera edrú í átta mánuði á morgun. Það er partí í blokkinni eina ferðina enn. Einu sinni voru öll helstu partíin hérna haldin heima hjá mér. Ekki lengur. Það pirrar mig á kvöldum eins og þessu.


| 23:20 |
komment

Til hamingju Tóti minn og vertu glaður í sinni; það er svo leiðinlegt að vera fullur; trúðu mér. Þetta verður nefnilega alltaf skemmtilegra og skemmtilegra.
See you on sunday.
B

Nr. 1 | Begga | 5.03.2004 | 23:39:19 | [+] |

Æ, ekki skjóta á húsið mitt. Innstinnstinnstinni er ég góð stelpa.

Nr. 2 | Tóta Pönk | 6.03.2004 | 20:31:41 | [+] |

Til hamingju. Pældu íðí hvernig lífið væri annars. Annars finnst mér þú alltaf flottastur. Hvernig sem þú ert.

Nr. 3 | Ingólfur | 8.03.2004 | 22:55:59 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff