»  off record  »  Kasparov og skötuselurinn
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Kasparov og skötuselurinn
Þriðjudagur, 16. mars 2004

Hann var full langur hádegisverðarfundurinn með Karpov, Kasparov og Short í dag enda máttu menn brjótast í gegnum brauð, súpu, skötusel og undarlega eplaköku á meðan Kasparov hitaði egóið upp.
Skemmtilegur fundur samt, Karpov alltaf jafn rólegur og talaði soldið eins og gömul kona, Kasparov gerði sig líklegan til að æsa sig og þá sperrtu sorpblaðamenn eyrun en Short var áberandi hressastur og skemmtilegastur. Ákaflega geðþekkur gaur með þvottekta breskt nördalúkk. Hálfgerður Adrian Mole.

Símon, rísandi DV stjarna, rúllaði fundinum upp með gáfulegum spurningum og þekkingu á viðfangsefninu, Jakob sá um gamanmálin, endurorðaði spurningar fyrir Moggamanninn og reyndi að kreista upp úr stóru stórmeisturunum hver væri besti íslenski skákmaðurinn og hver væri leiðinlegasti skákmaður í heimi. Fátt var um svör en í staðinn fengum við skemmtilegar sögur af því hversu það getur verið hættulegt að tala við blaðamenn.
Moggamaðurinn átti samt spurningu dagsins þegar hann forvitnaðist um hvort við þyrtfum ekki annað kalt stríð til að fá spennu í skákina. Kasparov breyttist í órangútan í augnablik á meðan hann hreytti "WHY?" út úr sér. Manngarmurinn þekkir sjálfsagt ekki Moggamentalítetið.

Ástþór er búinn að klaga Moggann, fyrir að að gera lítið úr kosningabaráttu sinni, til Colins Powell. Menn bíða spenntir eftir viðbrögðum þessa alþjóðlega varðhunds lýðræðis og frjálsra kosninga. Navy Seals yfirtaka ritstjórnina sjálfsagt á næstunni nema Mogginn faxi myndina af Thor Magnusson og Bill Clinton til Hvíta hússins.


| 20:54 |
komment

Þú náttúrlega gleymir því þegar Kasparov missti gjörsamlega stjórn á skapi sínu og Helgi neyddist til að hrökklast í burt...

Nr. 1 | Símon Birgisson | 17.03.2004 | 9:21:59 | [+] |

Þetta hefði ég viljað sjá en verð að fylgjast með fjörinu úr útlöndum. Takk annars fyrir bloggið, haltu því áfram.

Nr. 2 | Gummi T | 21.03.2004 | 22:45:31 | [+] |

Er þetta ekki að verða óvenju löng pása?

Nr. 3 | Þór | 23.03.2004 | 18:14:42 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff