»  off record  »  Leki: Málefnaskýrsla
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Leki: Málefnaskýrsla
Föstudagur, 26. mars 2004

Vefurinn Málefnin.com er orðinn helsti fundarstaður íslenskra stjórnleysingja, hryðjuverkamanna og geðsjúklinga.
Dómsmálaráðuneytið hefur vefsvæðið sem er fríríki í .com landi undir ströngu eftirliti. Sálsjúkir terroristarnir sem þar ala manninn skáka að hætti sannra raggeita í skjóli nafnleyndar og ráðuneytið hefur því látið sérfræðing sinn í Internetmálum taka saman ítarlega skýrslu um vefinn.

Hlutar úr skýrslu Agent SFR, eða Okkar maður fyrir Norðan, eins og þeir kalla hann hjá Leyniþjónustu Íslands hafa lekið til fjölmiðla í einni grófustu aðför að lögregluríkinu sem sögur fara af.
Siðblindingjarnir á BadaBing eru svo æstir í að vinna nýju blaðamannaverðlaunin, Gullbjörninn, sem Blaðamannafélag Íslands veitir árlega þeim fjölmiðli sem tekst að pirra dómsmálaráðherra mest, að þeir birta hér brot úr skýrslunni á undan ritbullunum á DV sem eru of uppteknar þessa dagana við að hræra laxerolíu saman við Skyr.is fyrir Mæðrastyrksnefnd.

24.03.20XX

Meðal Málverji á að baki misheppnaðan feril í stúdentapólitík en gegnir oft stöðu meðstjórnanda eða gjaldkera í húsfélagi blokkarinnar sem hann býr í. Í huga meðal Málverjans togast á löngun til að stinga af úr landi með hússjóðinn eða gera hallarbyltingu og ná formanssætinu af Jónasi í 2.B svo hægt sé að bárujárnsklæða húsið.
Meðal Málverjinn er með fleiri "nikk" á Einkamálum.is en Málefnunum.com.
Meðal Málverjinn leitar til heimilislæknis að meðaltali 6 sinnum í mánuði.
Meðal Málverjinn er áskrifandi að Newsweek, Cheri og Huster Barely Leagal.
Meðal Málverjinn sækir flestan sinn fróðleik í 60 Minutes, Discovery Channel og Nýjasta tækni og vísindi.
Meðal Málverjinn kaupir ekki DV en les það á bensínstöðvum.
Meðal Málverjinn er hvítur, einhleypur karlmaður á aldrinum 25-47 ára.
Meðal Málverjinn ólst upp í dreifbýli en er að aðlagast borgarlífinu.
Meðal Málverjinn hlustar daglega á Útvarp Sögu en hringir ekki í stöðina þar sem það er fyrir neðan virðingu hans.
Meðal Málverjinn horfir á Boston Public, Yes Dear og CSI á Skjá Einum en tekur þættina jafnan upp á myndband og hraðspólar síðan í gegnum auglýsingarnar þar sem honum býður við auglýsingum í ókeypis miðlum.
Meðal Málverjinn er vel byrgur af hvítum hlýrabolum frá Guðsteini og borðar kaldar Heinz baunir upp úr dósinni á meðan hann fær útrás fyrir gremju sína á Netinu.
Meðal Málverjinn hefur ekki verið í fastri vinnu síðasta eitt og hálfa árið.

(Pínlegustu málfarsvillum, ambögum í stíl og óþarfa endurtekningum hefur verið eytt eða breytt)


| 16:43 |
komment

HAHAHAAHAHAHAHAH Þetta er bara rétt hjá þér elsku dúllan mín AHAHAHAHAAHAHAHAH......................

Nr. 1 | Goa | 26.03.2004 | 21:02:56 | [+] |

Það er alveg rétt, malefnin.com hafa vakið nokkra athygli að undanförnu. En af endemum einskærum. Ef þú Salvör heldur að gagnrýni sem fram hafi komið á þennan rakalausa þvætting sem veður þar uppi sé sprottinn af ótta hinna "hefðbundnu miðla" um að þungi samfélagsumræðunnar (sic) sé að færast þangað ... tjah, ég veit eiginlega ekki hvernig ég á að orða þetta... þá ertu á miklum villigötum.

Sjálfur batt ég nokkrar vonir við að þetta nýja tjáningarform kynni jafnvel að leiða til aukinnar umræðu en hef orðið fyrir sárum vonbrigðum. Raunar svo miklum að liggur við að ég farinn að finna fyrir votti af mannfyrirlitningu sem ekki örlaði á áður. Allt vegna þess mikla fjölda vitgrannra manna sem þarna belgjast um í fullkominni vissu um eigið ágæti. Ég hafði ekki áttað mig á því fyrr hversu margir fuglaheilarnir eru flögrandi um í mannheimum.

Kveðja,
Jakob

Nr. 2 | jakob | 28.03.2004 | 2:37:43 | [+] |

"Allt vegna þess mikla fjölda vitgrannra manna sem þarna belgjast um í fullkominni vissu um eigið ágæti. Ég hafði ekki áttað mig á því fyrr hversu margir fuglaheilarnir eru flögrandi um í mannheimum"
"Vefurinn Málefnin.com er orðinn helsti fundarstaður íslenskra stjórnleysingja, hryðjuverkamanna og geðsjúklinga.
Dómsmálaráðuneytið hefur vefsvæðið sem er fríríki í .com landi undir ströngu eftirliti. Sálsjúkir terroristarnir sem þar ala manninn skáka að hætti sannra raggeita í skjóli nafnleyndar og ..."

Þið eruð skemmtilegir, Kobbi og Tóti. En kannski ekkert sérlega málefnalegir sjálfir.

Nánari dæmi:
"Það eru nokkur ár síðan ég komst að því að Camel Lights (þessar í bláu pökkunum) eru bestu sígaretturnar á markaðnum. Þær virðast loksins hafa slegið í gegn enda sé ég æ fleiri handfjatla bláu pakkana og í dag lenti ég í því að Blár Camel var búinn á tveimur sölustöðum (Snælands videó við Ægissíðu og í Söluturninum Hagamel 67). "

Voðalega merkilegt. Og í þokkabót birt undir skírnarnafni!! LOL. Gangi ykkur betur í framtíðinni.

dc

Nr. 3 | drcronex | 29.03.2004 | 3:41:43 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff