Fimmtudagur, 11. mars 2004
Ég ætlaði að fara á forsýningu á Jesúmyndinni hans Mels Gibson í dag en náði ekki að loka blaðinu tímanlega og sendi því Dignus í minn stað. Ég er svo sem ekkert að svekkja mig á þessu þar sem ég hef mátulega mikinn áhuga á þessari mynd. Ég meina hvað þarf að segja og filma þessa sögu af Krosslafi oft?
Það er ekki eins og þetta sé spennandi og ef fólk sá ástæðu til að kvarta yfir því að það vissi að Titanic myndi enda með því að dallurinn sykki hvað má þá segja um píslarsögu himnadraugsins sem smollinkríaði móður sína? Ég er sjálfsagt ekki að skemma fyrir neinum þó ég upplýsi það hér og nú að hann endar á krossinum.
Ætli það séu ekki komin 15 ár síðan maður sá The Last Temptation of Christ í Laugarásbíó. Þrusugóð mynd og ég hef bara ekki fundið til neinnar löngunnar eftir því að sjá meira af ævintýrum Jesúms á hvíta tjaldinu.
Hefur Gibson einhverju við TLTOC að bæta? Ég held að Scorsese hafi sagt allt og örugglega gott betur þar sem myndin hans vakti mun meiri úlfúð en Gibson myndin? Mig minnir endilega að allir Gunnarar í Krossinum á landinu hafi komið saman fyrir utan Laugarásbíó og mótmælt sýningu myndarinnar.
Gunnari finnst nýja myndin frábær og það eru helst einhverjar gyðingatuskur sem eru að svekkja sig á þessu en það lið er ekki marktækt enda löngu búið að segja sig úr samfélagi mannanna og girða sig af í geðveiki sinni.
Ég grét það sem sagt þurrum tárum að komast ekki á Jessa í kvöld þar til ég mundi eftir því að þokkafyllsta leikkona ever, Monica Bellucci, fer með hlutverk Maríu hóru. Einhver sagði mér nú að hún léki meyjuna líka. Það væri ágætt hjá Gibson að láta sömu konuna leika báðar Maríurnar í lífi Krissa þar sem það gefur sögunni Freudíska dýpt. Ætli maður verði ekki að gera sér ferð á þetta til þess að sjá Monicu.
James Caviezel sem leikur Jesúm þoli ég hins vegar engan veginn og fannst hann best geymdur í þeim hroðalega hreinsunareldi sem það hlýtur að hafa verið að leika á móti Jennifer Lopez í Angel Eyes.
| 22:05 |