Þriðjudagur, 09. mars 2004
Blaðamenn eru rosalega skemmtilegir og engir skemmtilegri en þeir sem eru skemmdir af drykkju (ef það er yfirleitt hægt að eyðileggja sig á áfengi. Afhverju er áfenginu alltaf kennt um allt þegar fólk er í grunninn fífl og búsið gerir ekkert nema laða það versta fram í fari þess?) og fullir af beiskju og gremju. Þetta eru mennirnir sem láta hlutina gerast.
Það er samt ekki gott að hafa slíka menn á bakinu til lengdar en nú eru víst einhverjir svona hardcore blaðamenn að leggja PÁÁ í einelti. Þetta hlýtur að vera svæsið tilfelli þar sem PÁÁ kallar ekki allt ömmu sína og þetta er svo langt gengið að hann bloggar um að "beiskir blaðamenn" séu "sérlega hvimleitt afbrigði" af leiðinlegu fólki.
Verst þykir mér að ég skil ekki alveg umkvörtunarefni PÁÁ, frekar en þeir sem kommennta á færsluna hjá honum og eru uppi með getgátur um hver vondi blaðamaðurinn sé (ég er auðvitað líka gramur og beiskur yfir að vera ekki nefndur með the usual suspects en ég er auðvitað langt því frá að vera miðaldra). Mér dettur helst í hug að PÁÁ sjái eftir því að hafa gerst illgjarn eineltispúki og grínast með eyru dómsmálaráðherra og leiðist að sjá skammarstrikið tíundað á prenti. Annars var ekkert fréttnæmt við þessa kvikindislegu færslu fyrr en BB snupraði PÁÁ fyrir að gera grín að ytra útliti sínu. Það er bæði ljótt, ómerkilegt og fyrir neðan virðingu allra sem eru ekki gramir og skemmdir af drykkju (þeir mega nefnilega allt). Þar fyrir utan var þetta auðvitað heimskulegt þar sem BB er ekki maður sem maður vill eiga að óvini. Allra síst ef maður ætlar að vinna á RÚV. Right?
| 22:24 |