Sunnudagur, 28. mars 2004
Horfði á Gigli um daginn og varð fyrir umtalsverðum vonbrigðum þar sem myndin hefur fengið skelfilega dóma og fullt af Gylltum kirsuberjum. Svona fokdýrar ruslmyndir með hálaunaleikurum eru nefnilega oft frábær skemmtun eins og hin kostulega Ishtar sýnir og sannar. Ben Affleck og Jennifer Lopez eru að sjálfsögðu ömurleg en þau komast samt nokkuð vel frá þessu þar sem þau eru ekki það versta við myndina. Handritið er ein mesta hörmung sem komist hefur á filmu og það er með ólíkindum að höfundurinn og leikstjórinn, Martin Brest, hafi ekki áttað sig á þessu eða að einhver hafi ekki aumkað sig yfir hann og bent honum á það að hann væri að filma skít.
Sá armi durgur, Affleck, er orðinn ansi flinkur við að velja sér hlutverk í myndum sem eru jafnvel verri en hann sjálfur. Honum verður til dæmis ekki einum kennt um að Daredevil hafi verið rusl. Hann er þó sýnu verri en Lopez í Gigli enda gat Lopez einu sinni leikið (sbr. U-Turn).
Get samt huggað mig við að þetta var ekki tímasóun vegna þess að alltaf þegar ég geri eitthvað tilgangslaust eða er staðinn að einhverju vandræðalegu eins og að kaupa einkadans, brjálast í blakkáti, fara í meðferð, lesa Málefnin.com eða horfa á myndir með Ben Affleck þá afsaka ég mig með því að ég sé í vinnunni. Þetta er gott fyrirkomulag þó þetta sé vissulega skítadjobb, en einhver verður að gera þetta.
Nýjasta þrætuepli þeirra sem þykjast vita allt sem og annarra er hvort fjölmiðlafólk eigi að birta viðtöl við vitgranna glæpamenn og þá sem þeim tengjast. Siðferðisspurning sígilda er að sjálfsögðu dregin upp þó þetta sé auðvitað engin spurning og fólk hefur verið að lesa viðtal DV við Heiðveigu og viðtal Fbl við Grétar upp til agna um helgina. Sjálfum finnst mér innlegg Jónasar Inga í afturhlutanum hjá mínu fólki í dag standa upp úr; skrautskrift og frímerkjasöfnun? Datt í hug að Sveinn Andri hefði ekki þjálfað hann fyrir svona beisikk hver?, hvar?, hvaðan? spurningar og hann sýndi á sér enn eina snilldarhliðina.
Fólk getur þrætt endalaust um réttmæti þess að birta viðtöl við menn sem eru ódæmdir, nýsloppnir úr gæsluvarðhaldi. Það virðast þó allir vilja lesa þetta og auðvitað vilja blaðamenn birta stöffið. Það hlýtur að vera fagnaðarefni að upp sé að rísa ný kynslóð mislukkaðra íslenskra glæpona sem vilja deila hugrenningum sínum með fjöldanum. Mikið var reynt að fá strákana sem fengu milljónirnar lánaðar hjá Símanum í viðtal á sínum tíma. Þeir höfðu hins vegar og hafa enn vit á að þegja.
Einhverjir vilja meina að Jóhanna og Þórhallur hefðu mátt vera betur undirbúin þegar þau tóku á móti Jónasi en hann spilaði þetta auðvitað snilldarlega og fékk að bulla út í eitt sem jók skemmtigildi spjallsins til muna. Saknaði þess samt að þau skyldu ekki spyrja hann hvort hann hafi ekki fundið neina lykt í bílnum þegar hann keyrði á Neskaupstað með (ekki) þriggja daga lík í teppi í aftursætinu.
Annars brilljant sjónvarp.
Málverjarnir bregðast ekki væntingum mínum frekar en fyrri daginn. Verð eiginlega að leggja það á mig að copy/peista þetta í notepad. Óborganlegar lesningar. Við Gummi áttum hvor sinn þráðinn á laugardaginn. Kommentin auðvitað misgáfuleg, eins og við var að búast, en helvítið hann Gummi er með 7 síður á móti mínum 6 en þegar heildarfjöldi þráða er tekinn saman mala ég keppnina um málverjadissið.
| 23:54 |