»  off record  »  Workaholics anonymous
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Workaholics anonymous
Fimmtudagur, 04. mars 2004

Áður en ég útskrifaðist af Teigi hét ég því að láta ekki hliðarfíknir ná taki á mér en er nú kolfallinn vinnualki. 260 vinnustundir í febrúar getur ekki talist heilbrigt samkvæmt nokkrum mælikvörðum.
Þá vill svo óheppilega til að ég er að fá ýmsar hugmyndir sem vert væri að færa í letur en það gerir maður ekki þegar maður situr 12-13 tíma á dag við að skrifa í dagblað.

Spurning að púlla Tótu pönk á þetta og fara að skúra. Meiri frítími - sömu laun. Hef samt unnið við ræstingar (á leikskólum) og það reið mér næstum að fullu andlega. Skelfilegra en Víetnam og bensínstöðin til samans.
Setti því skúringarnar á hold og fór að leita að WA (Workaholics anonymous) deild á Íslandi en fann enga. Skilst að það hafi verið reynt að stofna eina. Fyrsti fundur var boðaður klukkan 19.00 á fimmtudegi en enginn kom. Næst var reynt við 20.00 en enginn kom. Þá 21.00 en enginn kom. Því næst 22.00 en enginn kom og eftir að enginn mætti á fund boðaðan klukkan 23.00 gáfust menn upp. Afhverju kom aldrei neinn? Þeir voru allir í vinnunni.


| 0:04 |
komment

Gunnar Smári alltaf sami þrælapískarinn, með allt undirmannað og alla á föstum verktakaskítalaunum?

http://birgir.com/000040.html

Nr. 1 | Birgir Baldursson | 4.03.2004 | 23:18:51 | [+] |

Hjá Smára er enginn á verktakalaunum; Frétt ehf er nú meira professional en það; þetta er alvöru fyrirtæki og gefur bæði út skemmtilegasta blað landsins og stærsta blað landsins; en ekki er hægt að neita því að honum líkar vel að sjá fólk vinna og það lengi.
BD

Nr. 2 | Begga | 4.03.2004 | 23:33:03 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff