»  off record  »  Ég sagði þeim að ég væri alki
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Ég sagði þeim að ég væri alki
Laugardagur, 10. apríl 2004

Þetta Sugababes partí var lítið annað en kraðak af beibum og ógurlegum töffurum, sem sagt alveg eins og meðalkvöld á hvaða miðlungs skemmtistað í borg óttans. Beta er búin að gera þetta partí upp í stuttu máli og í sjálfu sér ekki mikið við það að bæta:

en sugarbabes. nei...þær mættu ekki einu sinni í partýið. mjög svo leim. kíktum inn í hálfa pepsí og fórum svo bara.

Hún hefur kannski farið of snemma þar sem ég héld að ég hafi kannski séð glitta í eitt Súggíbeibið, ekki þessa svörtu og ekki þessa hvítu, heldur hina. Annars get ég ekki verið viss þar sem ég þekki ekki Súggíbeibs í sjón. Tróðst inn á þröngt VIP svæðið í krafti 100.000 prentaðra eintaka á dag en þar var ekkert fréttnæmt að gerast. Eiginlega bara meira fjör í almenningnum.

Veit ekki hvort það segir meira um mig eða crowdið að það þekkti mig enginn þarna nema Ísi og Tinna á Skjá Einum sem mundi eftir mér úr Landsins snjallasta. Glæsilegur árangur! Hápuktur næturinnar var því tvímælalaust þegar löggan stoppaði mig á leiðinni heim.

Fóstur í júníformi: Ég er að kanna ástand bifreiða og ökumanna. Eru með skírteini.

Alki: Já, svona gamalt bleikt (sem þýðir að ég hef ekki verið sviptur á síðustu árum).

Fóstur í júníformi: Hefurðu smakkað það í kvöld?

Ég sagði honum að ég væri alki. Ég væri á leiðinni heim....

Fóstur í júníformi: Þurr? Búinn með kvótann. Merkilegt af þeim sex sem við höfum stoppað í kvöld ertu fjórði alkinn.

Hvað er að gerast með þessar löggur. Alvöru löggur sjá það á ökulaginu þegar menn eru fullir.
Spurning: Hvers vegna keyra alkar á næturnar?
Svar: Af því þeir mega það.

Hrein og bein var í Sjónvarpinu um daginn. Góð mynd og því undarlegt að fólk láti eins og hún hafi aldrei komið fyrir sjónir manna og verið í bíó. Þá hafði ég þetta að segja...


| 23:42 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff