»  off record  »  Hangir eitthvað á spýtunni?
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Hangir eitthvað á spýtunni?
Föstudagur, 09. apríl 2004

krosslafur.gifFöstudagurinn leiðinlegi brást ekki væntingum mínum og var leiðinlegur. Fyrsti svona dagurinn sem ég vakna ekki þunnur í 12 ár en samt boring.
Píslargangan í vinnunni dróst á langinn og ég komst ekki til þess að horfa á Krissa kveljast á hvíta tjaldinu. Heppinn.

Stormskerið klikkaði hins vegar ekki frekar en fyrri daginn. Gat auðvitað ekki notað helminginn af því sem hann lét flakka í hinu borgaralega Fréttablaði, sem hinn mjög svo borgaralegi dómsmálaráðherra er hættur að tala við. Það þykir mér ljóður á ráði ráðherrans sem var mjög viðræðugóður þegar ég tók afmælisviðtal við hann í miðri prófkjörsbaráttu. Fórum yfir það spjall í síma fyrir prentun og lokaniðurstaðan varð hvorugum til skammar. Nema auðvitað að ég drap fínt viðtal með handónýtri fyrirsögn.
Hvað um það Stormskerinu finnst þessi dagur líka leiðinlegur vegna heilagleika, hátíðleika og svona kristnikjaftæði. Hann fór því með þetta ljóð eftir sig í símann í dag:

Ég lít í anda Jesú,
engjast á krossinum.

Maður eða guð?
Veit það ekki.

En eitt veit ég: Það hangir eitthvað á spýtunni.

Annars var ég að biðja hann um nýja málshætti. Þessa setti ég ekki í blaðið:

Sumir eru 10 ár í sambúð en Michael Jackson er með 10 ára í sambúð.

Takk fyrir matinn. Ég er alveg að springa. (Orð lög í munn væntanlegs fórnarlambs hryðjuverkaárásar á veitningastað).

Ekki ættu holdsveikir að kasta höndunum til verksins.

Oft kemur presturinn fermingabörnum á kné. (Þessi er nú í lagi, ef þessi fylgir ekki í kjölfarið og fólk les ekki DV)

Fermt barn forðast prestinn.

Sá mér til mikillar furðu að það var opið á bensínstöðinni í dag. Þar með er eina réttlæting þessa ömurlega dags farinn fjandans til. Er þessi fokkings verkalýðshreyfing alltaf að semja af sér frídaga gamalla félaga minna?
Annars finnst mér að Gneistinn ætti að taka góða rispu á ranglætinu sem felst í því að vér heiðingjar getum ekki lifað eðlilegu lífi þessa andskotans bænadaga fyrir lögverndaðri kirkjukúgun.

Nennesseggi. Sugababes partíið og ævintýri liðinnar nætur með tilheyrandi viðskiptum við lögregluna bíða betri tíma.


Woe to you, Oh Earth and Sea, for the Devil sends the Beast with wrath, because he knows the time is short... Let him who hath understanding reckon the number of the beast for it is a human number, its number is Six hundred and sixty six.


| 23:55 |
komment

Tóts minn; ekkert skil ég í þessu; þessir dagar eru dagar lífs mín; dásamlegir. Rólegt og heimilislegt; þetta er mesti misskilningur að það sé leiðinlegt og föstudagurinn langi er og hefur alltaf verið hafður fyrir rangri sök. Dagar leti, lesturs, netflakks, áts og bíltúra. Hvað er hægt að biðja um það betra einu sinni á ári. Líklega ertu ekki orðinn nógu stór til að skilja þetta kalinn minn.
Begga

Nr. 1 | Begga | 10.04.2004 | 0:44:27 | [+] |

Björn Bjarna er bara alinn upp í bómull, mér er skítsama um það að hann hafi misst föður sinn vofeilega (how ever you spell it), hann hefur augljóslega verið of gamall eða plokkaður til að læra nokkuð af því. Sorglegt fyrir annars farsælan forsætisráðherra að hann sé að bakka þennan veruleika fyrrta góðborgara upp. Og veistu, ef maður er farinn að finnast karakterinn Sverrir Stormskeir magnaður gæi þá er endirinn í nánd..
Nú er ég hætt að bögga ykkur hjónin ;)

Nr. 2 | Úllen Dúllen | 11.04.2004 | 22:06:46 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff